SKÝRSLAN: Njarðvík lyfta sér upp úr fallsæti eftir tæpan seinni hálfleik á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið spiluðu góðan leik en Njarðvík náði að skapa sér betri færi í fyrrihálfleik og nýttu sét þau en Selfoss komu með miklu betra hugarfar í seinni og sýndu góðan karakter að koma sér inní leikinn
Bestu leikmenn
1. Rafael Victor (Njarðvík)
Var frábær í fyrri hálfleik og skoraði tvö miklvæg mörk fyrir Njarðvík og var svo einn af fáum leikmönnum Njarðvíks sem sýndu kraft í sókninni
2. Gonzalo Zamorano (Selfoss)
Erfitt að velja á milli Gonzalo, Aron Einars og Oumar en ég gef Gonzalo þetta fyrir að skora eitt og leggja upp og koma spennu í þenna leik
Atvikið
Fyrsta mark Njarðvík er mögulega flottasta mark Lengjudeildarinnar og kom Njarðvík á bragðið í fyrri hálfleiknum
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss miss Njarðvík framúr sér og taflan lýtur svona út
7. Þór- 23 stig
8. Grindavík- 22 stig
9. Njarðvík-20 stig
10. Selfoss- 19 stig
11. Þróttur- 18 stig
12. Ægir- 8 stig
Njarðvík búnir að lyfta sér úr fallsætinu og Þróttur sem töpuðu fyrir Þór komnir í næst síðasta sætið 10 stigum á undan Ægi
Vondur dagur
Vondur fyrri hálfleikur hjá Selfossi sem fá á sig þrjú flott mörk og eru þrem mörkum undir og eru í erfiðum málum í seinni hálefleik en gera vel og koma sér inní leikinn undir lokin og eru nálægt því að jafna
Dómarinn - 7/10
Var ágætur en gat dæmt á nokkur 50/50 brot í leiknum


