Fotbolti.net
@fotboltinetHákon Dagur Guðjónsson
Vestri
Vestri
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
10/10
2 - 2
Afturelding
Afturelding
Silas Dylan Songani 23'1 - 0Vladimir Tufegdzic 43'2 - 02 - 161' Ivo Alexandre Pereira Braz2 - 283' Elmar Kári Enesson Cogic
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Afturelding kom til baka og bjargaði stigi fyrir vestan

Hvað réði úrslitum?

Afturelding kom af miklum eldmóð út í seinni hálfleikinn á meðan Vestri ætluðu að sitja niðri og halda fegnum hlut. Það getur boðið hættunni heim og það varð raunin. Ætli það sé þá ekki hálfleiksræðan hans Magga sem ræður úrslitum?

Bestu leikmenn

1. Silas Songani

Frábær í þessum leik, mark og stoðsending. Varnarmenn Afturelding réðu ekkert við hraða hans í dag

2. Ivo Braz

Erfitt að velja á milli í liði gestanna, en mark hans braut ísinn og ruddi veginn fyrir jöfnunarmarkið. Virkaði hættulegur þegar hann fékk boltann.

Atvikið

Tæklingin hjá Ásgeiri. Hlakka til að sjá hvað Hrafnkell hefur að segja um hana en "live" þá var hann ekki að reyna við boltann heldur einungis að fara af fullum krafti í manninn.

Hvað þýða úrslitin?

Eitt stig skilur nú að Aftureldinu og ÍA á toppi deildarinnr, fáir hefðu spáð því fyrir nokkrum vikum. Pakkinn sem berst um sæti í úrslitakeppni heldur áfram að vera jafn þéttur og óútreiknanlegur og áður. Vestri þarf að sækja stig í Breiðholtið í næstu umferð.

Vondur dagur

Elvar Baldvinsson. Seldi sig ódýrt í jöfnunarmarkinu og átti nokkrum sinnum í erfiðleikum í dag.

Dómarinn - 4

Slakur. Línan hans var óskýr allan leikinn, var að flauta á smælki hér og þar og þorði ekki að taka stóru flautin. Átti að senda Ásgeir í sturtu og jafnvel flauta víti á heimamenn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.