Fotbolti.net
Árni Gísli Magnússon
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
16 gráður og skýjað. Frábært fótboltaveður.
Þór
Þór
2 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 17' Hinrik Harðarson24' Hinrik Harðarson (misnotað víti)Alexander Már Þorláksson 26'1 - 1Ragnar Óli Ragnarsson 90'2 - 1
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: Ragnar Óli tryggði Þór dramatískan sigur í Þorpinu

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar nýttu aðeins eitt af fjölmörgum færum sínum í fyrri hálfleik auk þess að misnota vítaspyrnu.
Þór komst betur inn í leikinn eftir jöfnunarmarkið og bæði lið virtust vera sætta sig við stigið þegar Ragnar Óli stangaði boltann inn á 90. mínútu sem var markið sem réði svo sannarlega úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Aron Birkir Stefánsson

Varði vítaspyrnu og fjölmörg skot sem komu á hann og átti teiginn í fyrirgjöfum. Er líka alltaf fljótur að koma boltanum í leik þegar Þórsliðið vill sækja hratt.

2. Marc Rochester Sörensen

Lagði upp bæði mörk Þórs í dag átti bara virkilega flottan leik. Frábær vinnsla í honum á miðjunni og þetta er pottþétt leikmaður sem flestum líður vel með hliðina á sér inni á vellinum.

Atvikið

Það verður að vera þegar Ragnar Óli Ragnarsson stangaði boltann í netið á síðustu mínútu venjulegs leiktíma og tryggði Þór dramatískan sigur.

Hvað þýða úrslitin?

Stigin þrjú þýða að Þór hefur 23 stig í 7. sæti og er einungis stigi frá Vestra sem er í 5. sæti sem er síðasta umspilssætið.
Þróttur er áfram í ellefta og næstneðsta sæti með 18 stig en aðeins eitt stig er í öruggt sæti og stutt í næstu lið þar fyrir ofan.

Vondur dagur

Bara allt Þórsliðið fyrstu 25 mínúturnar eða svo. Þróttarar skora snemma og eru óheppnir að skora ekki allavega tvö til þrjú mörk í viðbót.
Þór byrjaði í 3-5-2 kerfi sem gekk bara alls ekki upp og Láki breytti strax eftir 12 mínútur.

Dómarinn - 8

Vítið sem Þróttur fær finnst mér vera réttur dómur þegar Guðmundur Axel er rifinn niður.
Hins vegar átti Þór að fá víti á 41. mínútu þegar Fannar er augljóslega tæklaður inni í teig eftir að hann sendir boltann fyrir.
Að öðru leyti var þetta nokkuð vel dæmdur leikur sem innihélt hörku á köflum sem einhverjir hefðu spjaldað meira fyrir en það var engin þörf á því í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.