SKÝRSLAN: Mark í uppbótartíma skilar stigi fyrir Fjölni og Gróttu
Hvað réði úrslitum?
Gróttumenn voru öflugir í skyndisóknum og sköpuðu góð færi og hefðu mögulega getað nýtt fleiri. Aftur á móti var Fjölnir mikið með boltan en gekk ekki vel að skapa færin fram að því að þeir brjóta ísinn og þá hrönnuðust mörkin inn. Það var svo einbeitingaleysi í stöðunni 3-2 fyrir Fjölni á 92. mínútu þegar Grótta fær innkast og þeir kasta langt inn í teig og jafna leikinn.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Steinar Björnsson (Grótta)
Sigurður skorar og leggur upp í leiknum. Hann var öflugur sóknarlega og þurfti einnig að skila góðu dagsverki varnarlega. Stoðsendingin hans fyrir annað markið var alveg úr efstu hillu.
2. Dagur Ingi Axelsson (Fjölnir)
Dagur var hættulegur allan leikinn á hægri kantinum. Hann á að ég held óbeinan eða beinan þátt í öllum mörkum Fjölnis.
Atvikið
Dofri Snorrason á líkast til að fá víti á 53. mínútu leiksins. Hann fer framhjá tveimur mönnum og er síðan felldur inn í teig. Mér fannst þetta vera víti þegar ég sá þetta fyrst og miðað við endursýningar sem eru reyndar ekki góðar þá finnst mér þetta ennþá vera víti.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta fellur liður í 8. sæti með 21 stig og eru 3 stigum frá fallsæti en einnig bara 3 stigum frá umspilssæti. Fjölnismenn eru ennþá í 3. sæti 7 stigum á eftir toppsætinu.
Vondur dagur
Varnarleikur Gróttumanna í svona 15 mínútur fer bara algjörlega út um gluggan. Frá því að þeir fá fyrsta markið á sig fer þessi varnarleikur sem var búinn að vera svo góður allan leikinn í skrúfuna.
Dómarinn - 7
Arnar Ingi og hans teymi fannst mér dæma þennan leik bara vel. Þetta var svakalega erfiður leikur að dæma þar sem það var mikil harka og mikið undir. Hann fer aðeins niður um einkunn þar sem mér fannst Fjölnismenn eiga að fá víti á 53. mínútu en annars er hann með aðra stóra dóma rétta að mínu mati.



