Leik lokið!
Liðin skipta stigunum á milli sín
Slök útfærsla á aukaspyrnu ÍBV og dómarinn flautar leikinn af.
96. mín
30 sekúndur eftir af uppgefnum uppbótartíma. ÍBV fær aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateigshornið. Síðasti séns!
95. mín
Gult spjald
Ragnar Óli Ragnarsson
95. mín
ÍBV fær álitlega sókn, Eyþór Orri geysist upp vinstra megin en fyrirgjöfin sem var ætluð Arnari Breka var ekki nægilega góð. Markspyrna.
94. mín
Það er þreyta í leikmönnum og ekki merkilegur fótbolti í gangi hérna í lokin.
91. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 6 mínútur
90. mín
Bæði lið að eiga feilsendingar sitt á hvað. Fáum við dramatískt sigurmark í þessum leik?
88. mín
Gult spjald
Hermann Helgi Rúnarsson
85. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Auðvitað er það Birkir Heimisson sem tekur spyrnuna.
84. mín
InnEyþór Orri Ómarsson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
84. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
82. mín
STÖNGIN INN!!!
Sigfús Fannar Gunnarsson (stoðsending: Aron Ingi Magnússon)
Virkilega vel gert hjá Þór, Rafael Victor kemur boltanum á Aron Inga sem kemur boltanum á Sigfús sem nær óverjandi skoti, Stöngin inn!82. mín
Birkir Heimis með hornspyrnu sem Felix skallar frá.
80. mín
Þór að reyna að sækja og ÍBV að fá hættulegar skyndisóknir. Aron Birkir í marki Þórs tók boltann með höndum frá samherja og heimamenn kölluðu eftir því að fá óbeina aukaspyrnu en ekkert dæmt.
79. mín
Hermann Helgi með slakan fallhlífarbolta inn í teiginn sem Hjörvar í marki ÍBV grípur auðveldlega. Siggi Höskulds hristir hausinn í boðvangnum.
78. mín
Guðjón Ernir Hrafnkelsson þarf aðhlynningu.
77. mín
Sverrir Páll kemst í stórhættulega stöðu, á skot sem er ekki sérlega gott og Aron Birkir ver. Þarna átti Sverrir vafalítið að gera betur.
75. mín
Birkir Heimis með fyrirgjöf úr aukaspyrnu, hætta í teignum og leikmenn Þórs kalla eftir hendi en Guðmundur Páll dómari lætur sér fátt um finnast.
74. mín
Arnar Breki með hættulega fyrirgjöf, Bjarki er nálægt því að ná til boltans en hann flýgur afturfyrir. Stuðningsmenn ÍBV farnir að láta í sér heyra "ÍBV klapp klapp klapp".
73. mín
Bjarki Þór Viðarsson leikur á varnarmann og á skot fyrir utan teig. Hátt yfir.
72. mín
Kristófer Kristjánsson þurfti aðhlynningu en virðist geta haldið leik áfram. Í þessum skrifuðu orðum á Rafael Victor marktilraun en skýtur framhjá.
70. mín
InnHenrik Máni B. Hilmarsson
ÚtJón Ingason
68. mín
Arnar Breki með fyrirgjöf og Alex Freyr tekur skot í teignum en framhjá. Sleikir hliðarnetið.
67. mín
Hver er Bjarki Björn? - Markaskorari ÍBV
Fyrir þetta tímabil kom Bjarki aftur til ÍBV á láni frá Víkingi Reykjavík. Bjarki var hjá ÍBV á síðasta tímabili en náði ekki að spila nema ellefu leiki vegna meiðsla.
Bjarki er 23 ára miðjumaður sem lék tvo leiki með Víkingi í Lengjubikarnum í vetur. Hann var svo á bekknum í leiknum gegn Val í Meistarakeppni KSÍ og gegn Stjörnunni í 1. umferð Bestu deildarinnar.
Í fyrra skoraði hann eitt mark fyrir ÍBV sem féll úr Bestu deildinni. Hann viðbeinsbrotnaði sem hélt honum frá vellinum í talsverðan tíma. Bjarki er samningsbundinn Víkingi út tímabilið 2025.

65. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
64. mín

Myndir af ÍBV fagna marki sínu

63. mín
InnKristófer Kristjánsson
ÚtVilhelm Ottó Biering Ottósson
63. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtAlexander Már Þorláksson
57. mín
Oliver að reyna að komast í boltann en sparkar í Aron markvörð og fær sína aðra áminningu.
ÞAÐ ER JAFNT Í LIÐUM!!! OLIVER FÆR SITT ANNAÐ GULA!
Oliver Heiðarsson
Eyjafólkið hér í fréttamannastúkunni telur að um réttan dóm sé að ræða. Þá hlýtur þetta að vera skothelt!Oliver að reyna að komast í boltann en sparkar í Aron markvörð og fær sína aðra áminningu.
54. mín
Stórglæsilegt hjá lánsmanninum frá Víkingi!
MARK AF DÝRARI GERÐINNI!
Bjarki Björn Gunnarsson (stoðsending: Tómas Bent Magnússon )
Tómas Bent gerir vel, stekkur upp og skallar boltann sem berst á Bjarka Björn sem tekur skot með boltann á lofti frá vítateigsendanum og hann syngur í netinu!Stórglæsilegt hjá lánsmanninum frá Víkingi!
51. mín
Eyjamenn eru ekki að ná að tengja vel þrátt fyrir að vera ellefu gegn tíu. Bjarki Björn með fyrirgjöf á svæði þar sem engin hvít treyja er sjáanleg.
50. mín
Tómas Bent með lipur tilþrif og Eyjamenn láta boltann ganga sín á milli. Á endanum á Alex Freyr Hilmarsson skot en það er ekki upp á margar loðnur. Hittir ekki á rammann.
49. mín
Mörg kunnugleg andlit hér í stúkunni í Eyjum. Palli Magg er auðvitað mættur og Jói lögga er með kaffibolla. Tveir menn sem hafa séð sirka trilljón ÍBV leiki í gegnum árin.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Sigfús Fannar með upphafsspyrnu seinni hálfleiks.
46. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtÁrni Elvar Árnason
Þórsarar gera skiptingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Nær ÍBV að nýta liðsmuninn í seinni hálfleik?
Bæði lið sköpuðu hættur í teig andstæðingana í uppbótartímanum en ekkert var skorað í fyrri hálfleiknum. Staðan markalaus en Eyjamenn eru fleiri á vellinum! Nú er komið að þjálfurunum að láta ljós sitt skína í hálfleiksræðum sínum.

45. mín
+2
Oliver Heiðarsson
Brýtur á leikmanni Þórs , Ragnari Óla, við varamannabekk Akureyrarliðsins og við það skapast mikil læti. Dómarinn lyftir upp gula spjaldinu. "Er nóg að öskra?" kallar einhver úr stúkunni.45. mín
+1
Jón Ingason sparkar Rafael Victor niður á vallarhelmingi Þórs. Rafael kveinkar sér þegar hann stendur á fætur.
45. mín
Bjarki Björn með skot fyrir utan teig, dapurt skot sem fer framhjá. Það eru þrjár mínútur í uppbótartíma í fyrri hálfleik.
44. mín
Oliver með skot yfir
Oliver fær boltann á lofti í teignum úr hornspyrnunni, hörkugott færi en Oliver hittir boltann ekki eins og hann hafði óskað sér. Yfir.
43. mín
Eyjamenn að sækja og Oliver vinnur hornspyrnu.
41. mín
Vicente í hættulegri stöðu í teignum en dómarinn flautar, hann lagði boltann fyrir sig með hendinni og það er víst ekki leyfilegt.
38. mín
Eins og við var búist er þokkaleg barátta hér á Hásteinsvelli

37. mín
Eyjamenn i stúkunni væntanlega að rifja upp bikarleikinn gegn Grindavík
Grindavík vann ÍBV hér á Hásteinsvelli í bikarnum í upphafi tímabils þrátt fyrir að hafa misst mann af velli með rautt í fyrri hálfleik. Eyjamenn léku afskaplega illa þar 11 gegn 10 og verða að gera betur hér í dag.
34. mín
DAUÐAFÆRI!
Guðjón Ernir notar hraða sinn og kemst í dauðafæri en hittir boltann afleitlega, hátt yfir markið. Illa farið með afskaplega gott færi.
30. mín
FÆR SITT ANNAÐ GULA SPJALD OG ÞAR MEÐ RAUTT!
Jón Jökull Hjaltason
Það er ekki hægt að mótmæla þessu... Jón Jökull er farinn í sturtu. Alltof seinn og nær ekki til boltans, tekur Oliver Heiðarsson niður og Oliver tekur nokkrar veltur í grasinu!30. mín
Tómas Bent skallar boltann í horn eftir aukaspyrnu Birkis, Þórsarar fá tækifæri.
28. mín

Hafliði Breiðfjörð er mættur með myndavélina enda einn tryggasti vinur Vestmannaeyja

26. mín
Bjarki Björn með skot sem hittir ekki á rammann. ÍBV að eiga fleiri marktilraunir.
23. mín
Hemmi Hreiðars heimtar víti!
Hermann Hreiðarsson
Sverrir Páll Hjaltested fer niður í teignum í mikilli baráttu. Mér fannst þeir báðir vera að toga í hvorn annan. Hemmi fær gult fyrir mótmæli en ég held að þetta hafi verið hárrétt hjá dómaranum.22. mín
Bjarki Björn vinnur hornspyrnu fyrir ÍBV. Felix býr sig undir að taka spyrnuna. Hættulegur bolti... Alex Freyr skallar boltann og hann berst á Oliver sem er í erfiðri stöðu við fjærstöngina og nær ekki að stýra knettinum á markið.
19. mín
Gult spjald
Vicente Rafael Valor Martínez
18. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtIngimar Arnar Kristjánsson
Ingimar er aftur farinn niður í grasið... Þór þarf að gera skiptingu.
14. mín
Gult spjald
Jón Jökull Hjaltason
Fór í hörkutæklingu og braut á Vicente Valor.14. mín
Alex Freyr skallaði hornspyrnuna frá og boltinn barst á Jón Jökul sem tók skotið af löngu færi en hitti boltann engan veginn og hann var langt frá því að fara á markið.
13. mín
Langur bolti frá Þórsurum sem Eiður Atli skallar afturfyrir í hornspyrnu.
12. mín
Ingimar skokkar inná völlinn aftur, getur haldið leik áfram sem eru góð tíðindi.
11. mín
Ingimar Arnar liggur eftir á vellinum og þarf aðhlynningu.
8. mín
Lekur framhjá!
Flott sókn ÍBV og Sverrir Páll Hjaltested á skot sem fór af varnarmanni og lak framhjá markinu.
3. mín
ÍBV: 4-3-3
Hjörvar
Guðjón - Eiður - Jón - Felix
Alex - Tómas - Vicente
Oliver - Sverrir - Bjarki
Guðjón - Eiður - Jón - Felix
Alex - Tómas - Vicente
Oliver - Sverrir - Bjarki
2. mín
Tómas Bent rangstæður, álitleg sókn en rangstaða dæmd.
1. mín
Þór: 4-4-2
Aron
Jón - Bjarki - Ragnar - Vilhelm
Ýmir - Árni - Birkir - Ingimar
Rafael - Alexander
Jón - Bjarki - Ragnar - Vilhelm
Ýmir - Árni - Birkir - Ingimar
Rafael - Alexander
1. mín
Sverrir Páll með upphafssparkið
ÍBV byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl. Þórsarar eru í svörtu og rauðu og ÍBV í hvítu.
Jón Jökull Hjaltason er í byrjunarliði Þórs en hann er Eyjamaður og er boðinn sérstaklega velkominn á Hásteinsvöll.
Jón Jökull Hjaltason er í byrjunarliði Þórs en hann er Eyjamaður og er boðinn sérstaklega velkominn á Hásteinsvöll.
Fyrir leik
Hér í Herjólfi er þjálfari toppliðs Njarðvíkur, Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er á leið á leikinn. Hann spáir hörkuleik og 2-2 jafntefli. Rafael Victor, hans maður, skori bæði mörk Þórs. Sverrir Páll Hjaltested og Arnar Breki Gunnarsson með mörk ÍBV. Arnar Breki kemur af bekknum og jafnar á 91. mínútu. Úrslit sem yrðu býsna fín fyrir hann og hans menn.
Gunnar Heiðar í Herjólfi

Óbreytt hjá ÍBV
Byrjunarliðin eru komin inn. ÍBV er með óbreytt lið frá sigrinum gegn Þrótti.
Þrjár breytingar hjá Þór ef við miðum við síðasta deildarleik. Árni Elvar Árnason, Vilhelm Ottó Biering Ottósson og Alexander Már Þorláksson koma inn. Út fara Egill Orri Arnarsson og Hermann Helgi Rúnarsson og Fannar Daði Malmquist Gíslason

Bein útsending:
Fyrir leik
„Lífið í Eyjum er mjög gott, ég er búinn að festa mig hérna; keypti mér einbýlishús í fyrrasumar, kominn með kærustu og við vorum að fá okkur hund. Lífið er mjög gott hérna," segir Oliver Heiðarsson, sóknarmaður ÍBV, í skemmtilegu viðtali við Sæbjörn Steinke sem var tekið á dögunum.
Oliver skoraði þrennu gegn Þrótti og var valinn leikmaður umferðarinnar í síðustu umferð deildarinnar. Það verður verkefni fyrir varnarmenn Þórs að reyna að hafa hemil á honum í dag.
Þrennukóngurinn sem er búinn að festa rætur í Eyjum

„Lífið í Eyjum er mjög gott, ég er búinn að festa mig hérna; keypti mér einbýlishús í fyrrasumar, kominn með kærustu og við vorum að fá okkur hund. Lífið er mjög gott hérna," segir Oliver Heiðarsson, sóknarmaður ÍBV, í skemmtilegu viðtali við Sæbjörn Steinke sem var tekið á dögunum.
Oliver skoraði þrennu gegn Þrótti og var valinn leikmaður umferðarinnar í síðustu umferð deildarinnar. Það verður verkefni fyrir varnarmenn Þórs að reyna að hafa hemil á honum í dag.
13.05.2024 16:15
Líður mjög vel í Eyjum og er búinn að festa rætur - Alltaf með F og U í reit
Fyrir leik
Hinn nítján ára gamgli Ingimar Arnar Kristjánsson skoraði bæði mörk Þórs í 2-0 sigri á Fjölni í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Egilshöll í síðustu viku.
„Hann hefur verið hrikalega flottur í allan vetur. Hann nær hámarkshraða sama hvaða tími er á klukkunni, hann er í ævintýralegu standi og getur refsað liðum," sagði Siggi um Ingimar í viðtali eftir leik.
Funheitur í bikarsigri

15.05.2024 12:44
Fékk hjálp frá aðstoðarþjálfaranum með ritgerð og er byrjaður að borga til baka
Fyrir leik
Hemmi Hreiðars og hans menn í ÍBV töpuðu óvænt fyrir nýliðum Dalvíkur/Reynis á útivelli í fyrstu umferð. Heimamenn unnu verðskuldaðan sigur gegn döprum Eyjamönnum 3-1 en Sverrir Páll Hjaltested skoraði eina mark ÍBV, af vítapunktinum.
ÍBV svaraði þessum óförum hinsvegar með því að vinna 4-2 sigur gegn Þrótti á Hásteinsvelli í 2. umferð. Oliver Heiðarsson með þrennu og Sverrir með eitt. Eyjamenn sýndu gæði sín í þessum leik.
Gott svar Eyjamanna

13.05.2024 20:00
Var ósáttur með sjálfan sig og svaraði með þrennu gegn gömlu félögunum
Fyrir leik
Siggi Höskulds og lærisveinar í Þór eru búnir að safna fjórum stigum í fyrstu tveimur umferðunum. Þeir gerðu 1-1 jafntefli gegn Þrótti í 1. umferð þar sem Rafael Victor kom Þór yfir af vítapunktinum en Þróttur jafnaði í uppbótartíma.
Í 2. umferðinni vann Þór svo stórleik umferðarinnar gegn Aftureldingu 4-2 í Boganum góða. Afturelding komst tveimur mörkum yfir snemma leiks en Birkir Heimisson kom Þór á bragðið með hreint frábæru aukaspyrnumarki. Afturelding missti mann af velli með rautt spjald snemma í seinni hálfleik og heimamenn gripu gæsina. Egill Arnarsson jafnaði í 2-2 og eftir að Afturelding missti annan mann af velli með rautt, Oliver Bjerrum, skoraði Þór tvö mörk í uppbótartímanum; Rafael Victor og Sigfús Gunnarsson skoruðu.
Þór vann stórleik síðustu umferðar

10.05.2024 11:11
Sjáðu geggjað aukaspyrnumark Birkis Heimis í Boganum
09.05.2024 19:26
Ætlaði allt um koll að keyra á Akureyri - „Stuðningsmennirnir alveg geggjaðir"
Fyrir leik
Guðmundur Páll Friðbertsson sér um að dæma leikinn í Eyjum. Bergur Daði Ágústsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson hlaupa línurnar.
Maðurinn með flautuna

Guðmundur Páll Friðbertsson sér um að dæma leikinn í Eyjum. Bergur Daði Ágústsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson hlaupa línurnar.
Fyrir leik
Gunni Mall spáir öruggum sigri Þórs
Gunnar Malmquist Þórsson er spámaður umferðarinnar. Hann er leikmaður Aftureldingar sem mætir FH í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.
Spá Gunnars: ÍBV 0 - 3 Þór
Passion yfir peninginn, þorparinn fer í bátinn frá Þorlákshöfn í 20m/s og nær í sannfærandi vinnusigur á Hásteinsvelli

Spá Gunnars: ÍBV 0 - 3 Þór
Passion yfir peninginn, þorparinn fer í bátinn frá Þorlákshöfn í 20m/s og nær í sannfærandi vinnusigur á Hásteinsvelli

Fyrir leik
Ég er að fara til Eyja
Annar í Hvítasunnu, einn skemmtilegasti frídagur ársins, er í dag og þriðja umferð Lengjudeildarinnar heldur áfram. Ég er á leið til Vestmannaeyja þar sem ÍBV og Þór eigast við klukkan 14. Tvö lið sem verða líklega að berjast um að komast upp, að minnsta kosti fara í umspilið góða.