Fotbolti.net
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Hellidemba
Þróttur R.
Þróttur R.
5 - 0
ÍR
ÍR
Sigurður Steinar Björnsson 21'1 - 0Kári Kristjánsson 37'2 - 0Ísak Daði Ívarsson 54'3 - 0Kári Kristjánsson 74'4 - 0Jorgen Pettersen 77'5 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Glæsilegur sigur hjá Þrótti í dag, ÍR-ingar þurfa að gera mun betur um næstu helgi gegn ÍBV.
ÍR
90. mín
Gult spjald

Bergvin Fannar Helgason

Þróttur R.
90. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtBirkir Björnsson
Flottur í dag hann Birkir.
90. mín
Róbert gerir vikrilega vel og sækir aukaspyrnu á fínum stað.
Þróttur R.
87. mín
Gult spjald

Viktor Andri Hafþórsson

86. mín
Smá hætta í teignum eftir hornið en ekkert gerist.
85. mín
Einar með fyrirgjöf sem endar bara sem skot sem Þórhallur ver yfir í horn.
84. mín
Boltinn endar á fjærstöngina hjá Róbert Elís sem á skot sem Þórhallur ver.
84. mín
Ágúst sækir horn fyrir ÍR.
81. mín
Jörgen með frábæra fyrirgjöf á Hlyn sem skallar rétt framhjá í flottu færi.
Þróttur R.
79. mín
InnKostiantyn Iaroshenko
ÚtKári Kristjánsson
Þróttur R.
79. mín
InnIzaro Abella Sanchez
ÚtSigurður Steinar Björnsson
Þróttur R.
77. mín
Gegn sínum gömlu félögum!!!

Jorgen Pettersen

Jörgen fær boltann frá Birki Björnssyni og hamrar á markið en Villi ver vel, Jörgen svo mætur og skallar boltann inn.

Skelfileg frammistaða hjá Breiðhyltingum!
Þróttur R.
74. mín
Skrýtið mark!

Kári Kristjánsson (stoðsending: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal)

Kári Kristjánsson skýtur boltanum í boga yfir Villa í teignum upp úr engu. Leit út fyrir að vera á leið yfir,

ÍR niðurlægðir hér!
ÍR
72. mín
InnEinar Karl Árnason
ÚtAlexander Kostic
Þróttur R.
72. mín
InnViktor Andri Hafþórsson
ÚtÍsak Daði Ívarsson
Þróttur R.
70. mín
Gult spjald

Guðmundur Axel Hilmarsson

Gulasta spjald síðari tíma, rífur í Ágúst og rígheldur.
69. mín
Bergvin að sækja aukaspyrnu á góðum stað.
66. mín
Beint í lúkurnar á Þórhalli.
65. mín
ÍR fær horn.
ÍR
64. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtStefán Þór Pálsson
59. mín
Frammistaða ÍR hálfskammarleg í dag, ekki upp á marga fiska.
Þróttur R.
54. mín
Þróttarar að ganga frá þessu!

Ísak Daði Ívarsson

Þróttarar sleppa einir í gegn eftir klaufaskap í vörn ÍR-inga, Villi ver vel en Ísak mættur í frákastið og skorar.

3-0!
Þróttur R.
48. mín
Gult spjald

Birkir Björnsson

Mjög harkaleg tækling, hefði getað verið annar litur.
Þróttur R.
46. mín
InnGuðmundur Axel Hilmarsson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
46. mín
Komið í gang á ný.
Þróttarar hefja leik í seinni
ÍR
46. mín
InnMarteinn Theodórsson
ÚtAron Daníel Arnalds
Þreföld skipting í hálfleik.
ÍR
46. mín
InnBergvin Fannar Helgason
ÚtSæmundur Sven A Schepsky
Þreföld skipting í hálfleik.
ÍR
46. mín
InnHrafn Hallgrímsson
ÚtMarc Mcausland
Þreföld skipting í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Þróttarar sanngjarnt yfir hér, tökum okkur 15 mínútur og snúum svo aftur.
43. mín
Þróttur fær hér horn en ekkert úr því og aftur fyirir hinum meginn.
Þróttur R.
37. mín
Mark!

Kári Kristjánsson (stoðsending: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal)

Þróttarar tvöfalda!

Frábær sókn hjá Þrótturum og boltinn endar hjá Eiríki sem kemur með boltann fyrir á Kára sem potar honum inn!
36. mín
Þórhallur keyrir hér niður ÍR-ing í teignum, hefði verið hægt að dæma víti en hann fór þó klárlega fyrst í boltann.
32. mín
Kári í fínni stöðu fyrir utan teig en skýtur vel yfir.
26. mín
Dauðafæri!!!!!!!!
Sæmundur Sven!!!! Elsku kallinn minn hvernig ferðu að þessu!? Bragi einn í gegn en lætur Þórhall verja frá sér en fær hann aftur og leggur hann á Sæmund sem er einn gegn opnu marki á marklínunni en einfaldlega bara stoppar boltann með sköflungnum.

Þetta getur verið dýrt!
23. mín
Bragi gerir vel og sækir horn.
Þróttur R.
21. mín
Þvílíkt mark!

Sigurður Steinar Björnsson

Alvöru mark hjá Sigurði!

Tekur hann á lofti rétt fyrir utan teig og nær að setja hann í stöngina og inn.

Þróttarar leiða!
20. mín
Einstaklega lítið flæði í þessu. Það verður að segjast.
18. mín
Stebbi Páls með skot sem hann reynir að snúa í fjærhornið en þetta er hátt yfir.
18. mín
Vilhjálmur kominn á fætur og mun halda áfram.
16. mín
Vilhjálmur Kaldal fær hér aðhlynningu, nær vonandi að halda leik áfram.
13. mín
Þórhallur handsamar þetta mjög örugglega.
13. mín
ÍR fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir fyrirgjöf.
12. mín
Mikið jafnræði með liðunum í upphafi.
11. mín
Eiríkur byrýtur hér á Sæmundi sem var á fleygiferð, heppinn að sleppa við spjald.
9. mín
Kári tekur aukaspyrnuna í vegginn og aftur fyrir. Horn.
ÍR
9. mín
Gult spjald

Ágúst Unnar Kristinsson

Rífur niður mann sem var við það að sleppa í gegn.
6. mín
Birkir Björns með fínan bolta fyrir en Villi vel á verði og slær þetta út.
5. mín
ÍR halda alfarið í boltann hér í upphafi.
3. mín
ÍR-ingar með horn hér en ná ekki að gera neitt úr því en fá innkast
1. mín
ÍR eru að spila í eitthversskonar æfingatreyju, áhugavert.
1. mín
Leikur hafinn
ÍR byrja með boltann og sækja í átt að Suðurlandsbraut.
Fyrir leik
Chico snúinn aftur!
Jordian Farahani eða Chico eins og hann er alltaf kallaður er í byrjunarliði ÍR í dag en þetta er hans fyrsti leikur í tæpt ár en hann meiddist mjög illa á hné seinasta sumar. Hefur verið dyggur þjónn Breiðholtsins mjög lengi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrir leik
Þróttur R.
Þróttarar eru á sínu öðru tímabili í deildinni eftir að hafa farið upp úr 2. deild árið 2022. Þróttur gerði virkilega vel og hélt sér uppi á nokkuð öruggan hátt í fyrra. Síðan þá hefur Ian Jeffs sagt upp störfum og tekið við Haukum, Sigurvin Ólafsson tók síðan við. Einhverjir leikmenn hafa farið og ber þar helst að nefna Hinrik Harðarson sem samdi við ÍA. Gengið í upphafi tímabils hefur verið afleitt og situr liðið nú í neðsta sæti með eitt stig. Þróttarar munu líta á þennan leik sem skyldusigur ef að snúa á genginu og sumrinu við. Sögulína í kringum þennan leik er meðal annars það að Jörgen Pettersen spilar hér við sína gömlu félaga í ÍR en Jörgen spilaði í hvítu og bláu á árunum 2021 og 2022, við virkilega góðan orðstír.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
ÍR
ÍR-ingar eru nýliðar í deildinni, gengið í upphafi móts hefur verið sæmilegt en liðið situr í 6. sæti með 5 stig eftir fjórar umferðir. Eftir frabæran sigur í fyrstu umferð gegn Keflvíkingum eru íbúar í 109 farnir að klægja í fingurnar eftir því að fá að fagna öðrum sigri með liðinu sem þeir elska svo heitt. Niðurstaðan í seinasta leik var 1-1 jafntefli gegn Dalvíkingum en ÍR var einum fleiri í rúmlega hálfan leik þar, jafntefli því að öllum líkindum vonbrigði en mark ÍR skoraði Ágúst Unnar Kristinsson. Miðjumaðurinn geðþekki, Alexander Kostic, hefur ekki verið með síðan í fyrstu umferð vegna meiðsla, nausynlegt er að hann snúi aftur í þessum leik, Alexander er liðinu mjög mikilvægur.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Góða kvöldið!
Komið sæl og verið velkominn í beina textalýsingu frá leik Þróttar og ÍR í 5. umferð Lengjudeild karla. Leikurinn fer fram á heimavelli Þróttara, Avis Vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.