Leik lokið!
Haukar kláruðu þetta með stæl!
Völsungur kveður .Net bikarinn.
90. mín
Uppbótartími í gangi
88. mín
Flott skot!
Magnús Ingi Halldórsson
Höfum fengið fínustu mörk hérna í kvöld.84. mín
Var þetta ekki hendi víti???
Santiago Feuillassier Abalo
Völsungar vilja víti en ekkert dæmt. Gult á bekkinn fyrir mótmæli.82. mín
Dregið verður í hádeginu á föstudag í 8-liða úrslit
Stefnir allt í að Haukar verði í pottinum.
81. mín
Gerir væntanlega út um þetta!
Frosti Brynjólfsson
Skorar úr annarri tilraun eftir að fyrra skot hans var varið, hirti frákastið.80. mín
Jakob Héðinn með skot úr þröngu færi beint í fangið á markverði Hauka.
79. mín
InnFinnbogi Laxdal Aðalgeirsson
ÚtGuðjón Pétur Lýðsson
78. mín
Völsungur sækir mikið
Virðist færast nær jöfnunarmarki.
75. mín
Inn
ÚtÓliver Steinar Guðmundsson
Hetja Hauka í síðustu umferð kemur inn.
75. mín
InnMagnús Ingi Halldórsson
ÚtGuðmundur Axel Hilmarsson
74. mín
Völsungur nálægt því að jafna!!!
Jakob Héðinn í dauðafæri en Magnús ver enn og aftur vel!
73. mín
Gult spjald
Andri Már Harðarson
Fyrir brot62. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtArnar Páll Matthíasson
62. mín
InnRafnar Máni Gunnarsson
ÚtTryggvi Grani Jóhannsson
62. mín
InnJakob Gunnar Sigurðsson
ÚtBenedikt Kristján Guðbjartsson
Nýjasti leikmaður KR kemur inná
61. mín
Frábær tilraun núna hjá Andra Steini!
Rosalegt skot í þverslána. Hefði verið draumamark.
59. mín
Andri Steinn með skot rosa langt framhjá.
57. mín
Guðmundur Axel skorar flott mark en er flaggaður rangstæður!
Þetta var mjög tæpt.
48. mín
Gestur Aron með fína aukaspyrnu!
Í hornið en Magnús ver vel.
47. mín
Seinni hálfleikur hafinn og Völsungur fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
46. mín
Stjörnufans í stúkunni
Gamli markahrókurinn Mihjailo Bibercic og tónlistarstjarnan Matti í Pöpunum eru meðal áhorfenda. Eiga syni í sitthvoru liðinu, sonur Bibercic leiðir sókn Hauka en Arnar Páll sonur Matta leikur á miðju Völsungs.
45. mín
Völsungur kallar eftir víti en dómarinn flautar bara til hálfleiks.
43. mín
Fjör á Völlununum!
Markamínútan mikla!
Gestur Aron Sörensson
Þetta líka huggulega markið! Tekur skotið frá vítateigslínunni hægra megin og boltinn syngur í fjærhorninu!Fjör á Völlununum!
40. mín
Gaui Lýðs með frábæra aukaspyrnu
Fannar Óli skallar rétt framhjá.
38. mín
Völsungar sækja í sig veðrið
Fínt uppspil Völsungs endar með skoti úr miðjum teignum frá Arnari Páli. Maggi gerir vel í markinu og ver.
33. mín
Gult spjald
Djordje Biberdzic
Dæmdur rangstæður réttilega en skaut eftir flautið, setti boltann í markið en uppsker ekkert annað en gult spjald.32. mín
Ævar Daði með slæm mistök í vörn Hauka en Völsungar ná ekki að refsa. Fá horn sem ekkert verður úr.
27. mín
Haukar bjarga á línu!
Andri Már eftir að Benedikt átti skalla eftir horn.
25. mín
Haukar strax að hóta þriðja markinu!
Skot framhjá eftir stórhættulega sókn. Haukar eiga þennan leik sem stendur!
23. mín
Guðmundur Axel kom frá Þrótti og opnar markareikning sinn í fyrsta leik.
Nýju mennirnir á eldi!!!
Guðmundur Axel Hilmarsson
Gestirnir hafa verið í miklu brasi með Guðmund Axel sem tvöfaldar hér forystu heimamanna! Eftir þunga sókn nær hann að skora með hnitmiðuðu skoti í hornið.Guðmundur Axel kom frá Þrótti og opnar markareikning sinn í fyrsta leik.
21. mín
Máni Mar Steinbjörnsson í fínu færi en skaut beint á markvörð Völsungs. Flott sókn Hauka sem hafa byrjað vel.
18. mín
Andri kom við sögu í einum leik í Bestu deildinni fyrri hluta tímabilsins en hann hefur síðustu tímabil leikið með Ými sem er venslafélag HK.
Flott mark í fyrsta leik!
Andri Már Harðarson
Haukar hafa tekið forystuna. Andri Már Harðarson sem kom á láni frá HK skoraði laglegt mark, leitaði inn og átti flott skot við vítateigsendann.Andri kom við sögu í einum leik í Bestu deildinni fyrri hluta tímabilsins en hann hefur síðustu tímabil leikið með Ými sem er venslafélag HK.
17. mín
Fínn fótboltaleikur
Bæði lið að láta boltann ganga og skiptast á að sækja.
10. mín
Hættuleg sókn Völsungs. Benedikt Kristján Guðbjartsson nálægt því að ná til boltans en Maggi í marki Hauka kemur á hárréttum tíma úr marki sínu og handsamar boltann.
6. mín
Guðmundur Axel með skot af löngu færi
Sá markvörð Völsungs kominn talsvert af línunni og reynir að skjóta yfir hann..það tekst en boltinn framhjá.
4. mín
Gaui Lýðs með fyrirliðabandið hjá Haukum

3. mín
Nýju mennirnir byrja báðir hjá Haukum
1. mín
Blásvellir ekki að standa undir nafni, það er dúnalogn!
Húsvíkingar hófu leik. Haukar sækja í átt að nýja knatthúsinu.
Fyrir leik
Það rignir!
Súldin breyttist í alvöru rigningu. Íslenska sumarið maður lifandi. Það er allt klárt hér á Ásvöllum, smá vonbrigði að Jakob Gunnar fær ekki byrjunarliðssæti í kvöld. En vonandi kemur hann sem fyrst af bekknum!
Fyrir leik
Þessi textalýsing er í gegnum síma
Ekki eins ítarleg og oftast tíðkast en við reynum að færa fréttir af öllu því helsta! Góða skemmtun!
Fyrir leik
Þetta verður einhver stemningsþvæla á Ásvöllum. Fullt af mörkum og Haukarnir áfram á 90mín. Vonandi fer þetta svo að skána allt hjá Haukum eftir þennan sigur.
Sverrir Mar spáir 3-2 sigri Hauka

Þetta verður einhver stemningsþvæla á Ásvöllum. Fullt af mörkum og Haukarnir áfram á 90mín. Vonandi fer þetta svo að skána allt hjá Haukum eftir þennan sigur.
17.07.2024 10:30
Sverrir Mar spáir í 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins
Fyrir leik
Þegar þessi lið áttust við í 2. deildinni þann 1. júní hér á Ásvöllum þá vann Völsungur 3-1 útisigur. Hinn umtalaði Jakob Gunnar Sigurðsson skoraði þrennu í þeim leik.
Jakob er sautján ára unglingalandsliðsmaður og hefur skorað ellefu mörk í 2. deild í sumar. Í dag var staðfest að hann gengur í raðir KR eftir sumarið.
Haukar í hefndarhug?

17.07.2024 15:40
Jakob Gunnar í KR (Staðfest) - Klárar tímabilið með Völsungi
Fyrir leik
Völsungur vann 3-2 útisigur gegn Hvíta Riddaranum í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins þann 19. júní. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Tryggvi Grani Jóhannsson skoraði sigurmarkið.
Skák og mát gegn Hvíta Riddaranum

Völsungur vann 3-2 útisigur gegn Hvíta Riddaranum í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins þann 19. júní. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Tryggvi Grani Jóhannsson skoraði sigurmarkið.
Fyrir leik
Haukar unnu Víði í 32-liða úrslitum
„Þetta var helvíti gaman. Það er gaman að koma í Garðinn," sagði Birkir Brynjarsson sem var hetja Hauka sem unnu 3-1 útisigur gegn Víði í Garði í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins fyrir um mánuði síðan.
Birkir skoraði tvö mörk í blálokin og tryggði Haukum sigurinn.
„Það var bara eitt markmið hjá okkur, það var bara vinna hérna á útivelli. Taka meistarana strax og klára þetta. Við förum þá léttari leið í úrslitin. Það væri helvíti gaman að spila á Laugardalsvellinum. Það er markmiðið allavega."

19.06.2024 22:35
Hetja Hauka: Væri helvíti gaman að spila á Laugardalsvellinum
Fyrir leik
Hér mætast Haukar og Völsungur í spennandi viðureign, þessi lið eru 5. og 6. sæti í 2. deildinni og má búast við hörkuleik.
Dómari: Guðni Páll Kristjánsson.
Aðstoðardómari 1: Bergur Daði Ágústsson.
Aðstoðardómari 2: Kári Mímisson.
Eftirlitsmaður Fótbolta.net: Valur Gunnarsson.
Velkomin með okkur á Ásvelli

16-liða úrslit í þeirri yngstu og sprækustu
16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda, fara fram í dag en dregið verður í 8-liða úrslitin á föstudag.
Víðismenn urðu fyrstu sigurvegarar þessarar nýju keppni á síðasta ári en þeir féllu út gegn Haukum í 32-liða úrslitum og því ljóst að nýtt nafn fer á bikarinn í ár.
Guðmundur Aðalsteinn, sá lærði, hitaði upp fyrir umferðina í sérstökum hlaðvarpsþætti sem fór í loftið á mánudaginn.
Fótbolti.net bikarinn
15:00 KFA-Ýmir (Fjarðabyggðarhöllin)
18:00 Tindastóll-KH (Sauðárkróksvöllur)
18:00 Kári-Magni (Akraneshöllin)
18:00 Haukar-Völsungur (BIRTU völlurinn)
18:00 KF-Augnablik (Ólafsfjarðarvöllur)
19:15 Árbær-Víkingur Ó. (Domusnovavöllurinn)
19:15 Vængir Júpiters-KFK (Fjölnisvöllur - Gervigras)
19:15 Selfoss-KFG (JÁVERK-völlurinn)

15.07.2024 17:07
Leiðin á Laugardalsvöll - Baddi um Árbæ og markamaskína í spjalli