Fotbolti.net
Besta deildin
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Fylkir
Fylkir
Besta-deild kvenna
Würth völlurinn
4 - 1
Tindastóll
Tindastóll
0 - 110' Jordyn RhodesAbigail Patricia Boyan 38'1 - 1Helga Guðrún Kristinsdóttir 50'2 - 1Guðrún Karítas Sigurðardóttir 70'3 - 1Kolfinna Baldursdóttir 88'4 - 1
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson
Leik lokið!
Annar sigur Fylkis í sumar staðreynd!
Fylkir sigrar hér á heimavelli!! Skýrsla og Viðtöl væntanleg.
91. mín
Það eru þrjár mínútur í uppbótartíma.
Fylkir
91. mín
InnKatrín Sara Harðardóttir
ÚtGuðrún Karítas Sigurðardóttir
Fylkir
91. mín
InnElísa Björk Hjaltadóttir
ÚtGuðrún Karítas Sigurðardóttir
Fylkir
88. mín
Fylkir að klára þetta!!

Kolfinna Baldursdóttir

MAAAARK!! Fylkir komið þremur mörkum yfir. Góð sókn hjá Fylkiskonum sem eru svoleiðis að ganga frá þessum leik. Kemur sending yfir á Kolfinnu sem er ein á móti Monicu og klárar færið glæislega.
Tindastóll
87. mín
InnKristrún María Magnúsdóttir
ÚtLara Margrét Jónsdóttir
Fylkir
84. mín
Gult spjald

Tinna Brá Magnúsdóttir

Gult spjald fyrir leiktöf.
Fylkir
83. mín
InnKlara Mist Karlsdóttir
ÚtÞórhildur Þórhallsdóttir
81. mín
Tindastóll að sækja!
Tindastóll í leit að marki. Kemur hættulegur bolti inn á teig FYlkis en engin nær til hanns.
79. mín
Krista Sól með fast skot fyrir utan teig en varið af Monicu.
76. mín
Leikurinn stöðvaður um þessar mundir. Eitthvað að hrjá Þórhildi og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt. Leikurinn hafinn á ný og virðist sem Þórhildur geti haldið leik áfram.
75. mín
Laufey komin í vænlega stöðu inn á teig Fylkis en er rangstæð.
Fylkir
74. mín
InnMarija Radojicic
ÚtHelga Guðrún Kristinsdóttir
Tindastóll
73. mín
InnKrista Sól Nielsen
ÚtHugrún Pálsdóttir
Fylkir
70. mín
MAAAARK! Fylkir tvöfaldar forystuna!

Guðrún Karítas Sigurðardóttir (stoðsending: Helga Guðrún Kristinsdóttir)

Fylkir tvöfaldar forystuna! Helga kemur með sendingu inn á teiginn. Guðrún ræðst á boltann og nær til hanns. Með tvo varnarmenn í sér en gerir vel og kemur boltanum í markið! Fyklir komið tveimur mörkum yfir.
67. mín
Vel gert hjá Helgu! Prjónar sig inn á teiginn og á fast skot á markið. Vel varið hjá Monicu í marki Tindastóls.
Tindastóll
66. mín
Gult spjald

Lara Margrét Jónsdóttir

60. mín
Dauðafæri!
Þórhildur vinnu boltann hátt uppi á vellinum. Ein á móti markmanni en ákveður að fara framhjá henni en þá er skotfærið ansi þröngt og boltinn í hliðarnetið.
Fylkir
58. mín
Gult spjald

Kolfinna Baldursdóttir

57. mín
Abigail með skot fyrir utan teig. Fast skot en boltinn yfir.
54. mín
Fylkir heldur áfram!
Fylkiskonur komið orkumiklar út í þennan seinni hálfleik. Nú er það Þórhildur sem er komin í gegn. Boltin skoppandi og tekur hann á lofti. Hittir hann fínt en beint á Monicu.
Fylkir
50. mín
MAAAARK!

Helga Guðrún Kristinsdóttir

Fylkir er komið yfir!! Markið kemur eftir horn. Boltinn inn á teiginn og á fjær lúrir Helga. Hún setur boltann á markið, yfir allan pakkan og inn. Vel gert!
48. mín
Darraðardans inn á teig Stólana eftir horn. Fylkiskonur ná skoti en boltinn í varnarmann. Annað horn. Í þetta sinn er það Monica sem ver vel í marki Tindastóls.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Gestirnir rúlla seinni af stað.
Fylkir
45. mín
InnViktoría Diljá Halldórsdóttir
ÚtÍris Una Þórðardóttir
45. mín
Allt jafnt í hálfleik!
Þá er komin hálfeikur í Árbænum. Fjörugur leikur hingað til. Stólarnir sterkaði aðilinn framan af en Fylkir náði að vinna sig inn í leikinn. Færi á báða bóga, tvö mörk og spenna. Tökum korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
45. mín
Tindastóll fær horn. Ekkert verður úr því
45. mín
Beint á Monicu.
Abigail í með helling af plássi ein á móti markmanni. SKýtur á markið en skotið er beint á Monicu sem grípur.
44. mín
Enn sækir Tindastóll. Jordyn Rhodes í þröngu skotfæri. Skotið varið af Tinnu og Stólarnir uppskera horn. Gott horn. Jordyn nær skalla á mark en Tinna grípur.
41. mín
Vel varið!
Stórhætta! Hröð sókn hjá stólunum og kemur boltinn inn á teigin. Hugrún hendir sér á hann og kemur boltanum á markið. Vel varið hjá Tinnu.
Fylkir
38. mín
Geðveikt mark! Fylkir jafnar metin!

Abigail Patricia Boyan

MAAARK! Heimakonur búnar að jafna metin! Helga gefur boltann á Abigail. Fær boltann fyrir framana miðju, rekur hann upp að teignum, kemur sér í skotfæri og klárar glæsilega. Litla markið!
37. mín
Langskot!
Þórhildur lætur vaða fyrir utan teig. Skotið gott en varið af Monicu.
33. mín
Hætta!
íris Una með frábæra stungusendingu inn fyrir vörn Stólana. Guðrún sloppin í gegn en fyrsta snertingin er ekki góð og missir hún boltann frá sér.
31. mín
Færi!
Boltinn berst inn á teig gestanna. Þórhildur lúrir á fjær og nær næstum að pota honum á markið en góð tækling frá Bryndísi stöðvar hana.
28. mín
Góð sókn hjá Fylki. Eva Rut með flotta sendingu yfir á Helgu sem keyrir upp vinstri kantinn. Gefur hann fyrir en enginn nær til hanns.
23. mín
Fylkir fær horn. Hættuleg spyrna á nær. Erna nær til boltans en nær ekki að stýra honum á markið.
23. mín
Abigail við það að komast í vænlega stöðu en, enn og aftur fer flaggið á loft.
20. mín
Fylkir að ógna!
Þórhildur með hættulegan boltan inn á teig Stólana. Monica rýkur úr marki sínu og slær boltann í burtu.
14. mín
Fylkir fær horn. Boltinn gefin meðfram jörðu út í teigin. Sóley á skot sem hafnar í varnarmanni.
13. mín
Rangstæða
Kolfinna fær sendingu í gegn. Er komin ein á móti Monicu en er rangstæð.
Tindastóll
10. mín
Tindastóll tekur forystuna!!!

Jordyn Rhodes (stoðsending: Elísa Bríet Björnsdóttir)

MAAAARK Elísa Bríet með boltann úti á hægri katninum. Gefur hann inn á teiginn og þar Jordyn Rhodes með heilan helling af plássi og tíma. Hún tekur han niður og klárar framhjá Tinnu í markinu.
7. mín
Tindastóll að byrja vel!
Há pressa frá gestunum. Fylkiskonur eru í stökustu vandræðum að komast upp völlinn.
4. mín
Fyrsta horn leiksins er Tindastóls. Elísa tekur. Boltinn hár og svífur aftur fyrir endamörk.
1. mín
Birgitta Rún á fyrsta skot leksins. Kemst inn á teig Fylkis, skýtur en boltinn yfir.
1. mín
Þetta er komið í gang!
Fylkir byrjar með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Leikmenn ganga nú inn á völlinn. Styttist í upphafsflautið!
Fyrir leik
Katla Tryggva spáir í spilin!
Katla Tryggvadóttir, landsliðskona, er spákona umferðarinnar! Hún spáir markalausu jafntefli hér í dag Fylkir 0 - 0 Tindastóll Mikilvæg stig í boði fyrir bæði lið en ég held að þetta endi með steindauðu 0-0 jafntefli. Það verður ekki mikið um marktækifæri en nokkuð gul spjöld.
   19.07.2024 13:40
Katla Tryggva spáir í 13. umferð Bestu deildar kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Tindastóll hafði betur fyrr í sumar
Liðin mættust á Akureyri fyrr í sumar og var það Tindastóll sem hafði betur. Tindastóll sigraði sannfærandi 3-0. Mörk Tindastóls skoruðu þær Elísa Bríet Björnsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir og Laufey Harpa Halldórsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Óli Njáll Ingólfsson er dómari hér í dag og eru það þeir Daníel Ingi Þórisson og Arnþór Helgi Gíslason sem verða honum til aðstoðar. Varadómari er Hreinn Magnússon og Eftirlitsmaður KSÍ er Ingvar Örn Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Njáll dæmir leikinn í dag.
Fyrir leik
Tindastóll
Stólarnir eru fyrir leikinn í 8. sæti deildarinnar. Tindastóli hefur ekki tekist að sigra í síðustu þremur leikjum sínum en gerðu jafntefli við Stjörnuna í síðustu umferð þar sem engin mörk litu dagsins ljós og enduðu leikar 0-0.
Mynd: Siggi Photography
Tindastóll missti lykilleikmann úr herbúðum sínum í glugganum en Gwendolyn Mummert er farin frá Stólunum. Hennar í stað hefur Tindastóll samið við Mariu del Mar sem kemur frá spáni.
Fyrir leik
Fylkir
Fylkir hefur verið í miklu brasi í sumar og eru fyrir leikinn í neðsta sæti deildarinnar með sex stig eftir tólf leiki. Fylkir er einungis með einn sigur á tímabilinu en sá sigur kom gegn Keflavík í 3. umferð. Fylkir hefur tapað fjórum af síðustu fimm en nældu sér þó í gott stig gegn Víkingum í þarsíðustum umferð. Fylkir mætti Keflavík í síðasta leik. Þar enduðu leikar 1-0 fyrir Keflvíkingum. Fylkir getur, með sigri hér í dag, jafnað Keflavík að stigum og með tveggja marka sigri hoppað upp fyrir þær í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir hefur fengið til sín einn leikmann það sem af er glugga en Árbæingarnir fengu Írisi Unu á láni frá Þrótti. Íris er 23 ára varnarmaður. Hún hefur spilað 184 KSÍ leiki með Keflavík, Selfoss og Þrótti. Hún kannast vel við sig í Árbænum enda var hún leikmaður Fylkis tímabilin 2020 og 2021.
   16.07.2024 16:36
Íris Una lánuð í Fylki (Staðfest)
Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan dag og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Fylkis og Tindastóls í Bestu deild kvenna! Leikurinn fer fram á Wurth-vellinum og hefst kl. 18:00!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.