Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
6° hiti, norðaustanátt og skýjað. Sumar.
KA
KA
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Ásgeir Sigurgeirsson 8'1 - 01 - 130' Jóhann Árni Gunnarsson (víti)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Líf og fjör á Greifavellinum - og tvöfalt lokaflaut

Hvað réði úrslitum?

Jafntefli var sanngjörn niðurstaða, þegar á hólminn er komið. En þetta hefði hæglega getað verið 4-4 leikur frekar en 1-1. Hetjulegar bjarganir varnarmanna, mislagðir fætur sóknarmanna og flottar markvörslur komu í veg fyrir markaveislu.

Bestu leikmenn

1. Steinþór Már Auðunsson (KA)

Var frábær í dag. Öruggur í öllum sínum úthlaupum, greip vel inn í og átti bara heilt yfir glimrandi góðan leik.

2. Daníel Laxdal (Stjarnan)

Stýrði vörn Stjörnunnar vel og nýtti alla sína reynslu. Afar öflugur í loftinu þar sem að tímasetningar hans eru yfirleitt uppá 10.

Atvikið

Fyrra lokaflaut Ívars Orra Kristjánssonar var vægast sagt athyglisvert augnablik. Að lágmarki var uppbótartíminn 4 mínútur, en þegar klukkan var sirka 93:30 flautaði Ívar leikinn af og það var eins og hver einasti einstaklingur í grennd við völlinn og inná honum væri ringlaður. Enda tók hann flautið til baka - eitthvað sem að ég hef aldrei séð áður og við fengum dauðafæri Daníels í kjölfarið.

Hvað þýða úrslitin?

KA situr í 8. sæti Bestu-deildarinnar með 24 stig, en Stjarnan er sæti ofar með 25 stig. KA mætir Fram á útivelli í næstu umferð, en Framarar eiga leik til góða á þessi lið og eru í 6. sæti með 26 stig. Stjarnan mætir HK á Samsungvellinum í næstu umferð.

Vondur dagur

Það er erfitt að henda þessum stimpli á einhvern í þessum ágæta leik. Ætli undirritaður sé ekki fyrst og fremst bara svekktur yfir því að hafa ekki fengið fleiri mörk í leikinn, þar sem að færin sem að boðið var uppá hefðu sannarlega getað endað með betri uppskeru.

Dómarinn - 7

Bara fínn leikur í dag hjá Ívari, þó að þetta lokaflaut hafi verið smá heilafrost.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.