SKÝRSLAN: Fyrsti útisigur Fylkis í sumar
Hvað réði úrslitum?
Fylkismenn voru bara betri, svo einfalt er það. Þeir voru líklegri í fyrri hálfleiknum án þess þó að koma boltanum í netið. Þeir missa svo mann af velli á 53. mínútu og í staðinn fyrir að verða litlir gáfu þeir í og það var ekki að sjá að þeir væri einum færri það sem eftir lifði leiks.
Bestu leikmenn
1. Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Oftast þegar Fylkir spilar leik þá er það fyrirliðinn sem er besti maður liðsins. Lætur allt tikka og leiðir með fordæmi. Tekur af skarið þegar það þarf að brjóta leikinn upp og er bara gríðarlega traustur.
2. Sigurbergur Áki Jörundsson (Fylkir)
Sigurbergur stóð vaktina vel í dag. Hann var mikið að bera boltann upp völlinn og skilaði honum langoftast vel frá sér, stóð vörnina vel með Orra Sveini en liðið hélt hreinu sem er ekki búið að gerast neitt rosalega oft í sumar.
Atvikið
Fyrsta markið sem Fylkir skoraði sló HK almennilega út af laginu. Búnir að vera einum fleiri í rúmlega 20 mínútur á þeim tímapunkti og voru aðeins að færast ofar á völlinn en var kippt harkalega niður á jörðina. Það var líka ánægjulegt að sjá Eið Gauta snúa aftur á völlinn eftir að hann lenti í hrikalegu samstuði við samherja í byrjun júní og er búinn að vera frá síðan.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn koma sér af botni deildarinnar og fara upp fyrir HK. Þeir ná þó ekki að koma sér úr fallsæti en eru bara einu stigi á eftir Vestra sem eru í 10. sætinu. HK situr eftir á botninum en eiga leik inni gegn KR sem verður spilaður í þessari viku.
Vondur dagur
Dekkunin í báðum mörkunum var í besta falli vandræðaleg hjá HK. Einum fleiri og í bæði skiptin er maður aleinn og óvaldaður inn í teig og fær að klára færið sitt alveg óáreittur. Halldór Jón Sigurður lét líka veiða sig út af sem var mjög klaufalegt en sem betur fer fyrir hann kostaði það liðið ekki í þetta skiptið.
Dómarinn - 6
Mér fannst þetta smá skrýtinn leikur hjá Vilhjálmi í dag. Virtist nokkuð óviss í nokkrum ákvörðunum framan af og þar var sérstaklega skrýtið þegar hann virtist vera að dæma víti á HK, benti á punktinn, en var svo fljótur að skipta um skoðun og dæma Fylkismanninn brotlegan. Hann flautaði stundum fullmikið en eftir þessa skrýtnu byrjun stóð hann sig prýðilega. Rauða spjaldið var hárrétt, hann hefði mögulega getað lyft fleiri gulum en þau voru öll á mörkunum.



