Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
Þór
Þór
1 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Birkir Heimisson 37'1 - 01 - 146' Rafael Máni Þrastarson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Hasar og læti í Þorpinu

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn nýttu sér ekki liðsmuninn, lítið gengið upp hjá liðinu undanfarnar víkur. Hins vegar virkilega sterkt hjá Þórsurum manni færri, fengu tækifæri til að vinna leikinn.

Bestu leikmenn

1. Rafael Máni Þrastarson

Rafael kominn aftur í Fjölni en hann var á láni hjá Vængjum Júpíters og var markahæstur í 3. deild. Heldur áfram að skora og hefði getað bætt við fleirum í dag.

2. Sigfús Fannar Gunnarsson

Þórsarar náðu ekki að virkja hann nægilega mikið. Hann var mjög frískur og bjó til hættuleg færi til að koma liðinu í forystu í seinni hálfleik.

Atvikið

Rauða spjaldið á Birki Heimisson. Klárt rautt. Það sauð upp úr á bekkjunum en Úlfur Arnar þjálfari Fjölnis sagði við Fótbolta.net að honum hafi verið boðið í slagsmál í látunum.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir missti toppsætið til ÍBV en liðið hefur ekki unnið í fimm leikjum í röð. Þór er í 9. sæti sex stigum frá fallsæti.

Vondur dagur

Birkir Heimisson var allt í öllu í fyrri hálfleik. Skorar glæislegt mark en var svo rekinn af velli fyrir að gefa Mána Austmann olnbogaskot. Vildi fá aukaspyrnur í aðdragandanum en það réttlætir ekki svona hegðun. Mikill missir fyrir Þór miðað við frammistöðu hans fram að þessu í dag.

Dómarinn - 8

Dómgæslan mikið rædd eftir leikinn en að mínu mati átti teymið virkilega góðan dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.