SKÝRSLAN: Eyjamenn eru komnir á toppinn
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn voru sterkari aðilinn heilt yfir í leiknum. Þeir sköpuðu sér töluvert af færum á meðan Grótta voru ekki nægilega beittir sóknarlega.
Bestu leikmenn
1. Tómas Bent Magnússon
Stjórnaði leiknum inn á miðjunni hjá ÍBV og var mjög mikið í boltanum. Hann átti einnig margar góða sendingar á samherja sína og flottur varnarlega.
2. Sverri Páll Hjalteted
Gerir mikilvægt mark sem skipti sköpum.
Atvikið
Þegar Grótta fer í sína fyrstu sókn í síðari hálfleik og skora úr henni og þá allt í einu breytist leikurinn. Grótta voru ekki búnir að ógna neitt að ráði og allt í einu kominn smá skálfti í Eyjamenn en þeir náðu samt sem áður að klára þetta.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV eru komnir í toppsætið þar sem að Fjölnir gerði jafntefli. Grótta situr enn á botni deildarinn með 13 stig.
Vondur dagur
Það var svo sem enginn sem átti eitthvað slæman dag en að sjálfsögðu tapaði Grótta og erfitt að taka einhvern einn út fyrir sviga.
Dómarinn - 8
Mjög vel dæmdur leikur og lítið um vafaatriði.


