SKÝRSLAN: Hænuskrefi nær toppnum
Hvað réði úrslitum?
Keflvíkingar voru í hreinskilni sagt skrefi framar í dag á flestum sviðum leiksins. Munurinn á milli liða kannski ekki risastór í leik dagsins en nægur þó til að skilja á milli.
Bestu leikmenn
1. Frans Elvarsson
Hornfirðingurinn átti miðjunna með öllu í dag. Hleypti engu fram hjá sér og var lykilpúsl í sóknaruppbyggingu heimamanna.
2. Mihael Mladen
Erfitt að horfa framhjá tveimur mörkum. Hefði átt að bæta stoðsendingu við líka en valdi eigingjörnu leiðina og skaut sjálfur á markið.
Atvikið
Mark Kára Sigfússonar sem kom inn á sem varamaður og skoraði með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Annars var ekki mikið um markverð atvik fyrir utan mörkin í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Fjögur stig skilja Keflavík nú frá toppsætinu þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið situr í þriðja sæti með 31 stig. Dalvík/Reynir fimm stigum frá öruggu sæti í því ellefta með 13 stig.
Vondur dagur
Það er eiginlega varla hægt að tala um að nokkur hafi átt vondan dag í leiknum í dag í Keflavík. Fínasti fótbolti á köflum frá báðum liðum og enginn sem var eitthvað áberandi slakur á vellinum hvað leikmenn varðar. Skrifum þetta á Ómar Jóhannsson sem fékk rautt spjald fyrir mótmæli mjög snemma leiks.
Dómarinn - 6
Þetta sleppur hjá Arnari frá mér séð en ekki mikið meira en það. Mér finnst hann gera mistök snemma leiks er Matheus og Mladen voru í baráttu um boltann og fara niður. Sá fyrrnefndi afstasti maður og virtist brjóta á framherjanum sem sló frá sér í fallinu. Þess utan voru leikrænir tilburðir gestaliðsins í fyrrihálfleik nokkuð þreyttir en fengu þó enga athygli frá tríóinu. Átti þó betri síðari hálfleik og reif sig upp.


