Leik lokið!
Strákunum halda engin bönd!
6-1 sigur í þessum seinni vináttuleik á Spáni. Samtals því 9-1 sigur í leikjunum tveimur. Ekki hægt að biðja um það mikið betra.

91. mín
Við höfum siglt inn í uppbótartíma leiksins.
84. mín
InnHlynur Freyr Karlsson
ÚtJóhannes Kristinn Bjarnason
83. mín
MARKAREGN!
Jóhannes Kristinn Bjarnason (stoðsending: Helgi Fróði Ingason)
Jói Bjarna setur boltann milli fóta Jeremiah Mullen frá D-boganum og hann endar í netinu!82. mín

78. mín
Hann skoraði gegn Ungverjum og skorar aftur í dag!
Hilmir Rafn Mikaelsson (stoðsending: Dagur Örn Fjeldsted)
Dagur með hárnákvæma fyrirgjöf frá hægri, Hilmir er við fjærstöngina, leggur boltann fyrir sig og stýrir honum í netið! Fimmta mark Íslands takk fyrir!74. mín
LEIKARASKAPUR! Seinna gula fyrir leikaraskap!
Finlay Pollock
Pollock kastar sér niður í teignum í baráttu við Baldvin og fær gult fyrir leikaraskap. Hans annað gula spjald og þar með sendur í sturtu!73. mín
Hilmir Rafn Mikaelsson er mættur inn.

71. mín
InnHilmir Rafn Mikaelsson
ÚtBenoný Breki Andrésson
71. mín
InnÁgúst Orri Þorsteinsson
ÚtHinrik Harðarson
71. mín
InnHelgi Fróði Ingason
ÚtHaukur Andri Haraldsson
69. mín
Guðmundur Baldvin var meðal leikmanna sem komu inná í fjórföldu skiptingunni á 60. mínútu.

68. mín
Skotar í hættulegri sókn en Logi Hrafn gerir virkilega vel í vörninni og kemur boltanum í horn.
66. mín
Hinrik Harðarson með skalla á markið eftir horn en boltinn beint í fangið á McFarlane.
65. mín
Gult spjald
Colby Donovan
60. mín
InnBaldur Kári Helgason
ÚtDaníel Freyr Kristjánsson
60. mín
InnBaldvin Þór Berndsen
ÚtÁsgeir Helgi Orrason
60. mín
InnBobby Wales
ÚtRyan One
60. mín
Inn Arnar Daði Jóhannesson
ÚtHalldór Snær Georgsson
60. mín
InnGuðmundur Baldvin Nökkvason
ÚtEggert Aron Guðmundsson
60. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtAdolf Daði Birgisson
58. mín
Tvær stoðsendingar og nú mark
Haukur Andri Haraldsson (stoðsending: Benoný Breki Andrésson)
Adolf Daði á Benoný sem kom boltanum á Hauk Andra sem kláraði alveg út við stöng! Haukur Andri með tvær stoðsendingar og mark. - Benoný með tvö mörk og eina stoðsendingu.57. mín
Í leit að þrennunni
Benoný með marktilraun en framhjá.
55. mín
Gult spjald
Jeremiah Mullen
50. mín
MAAAARK!
Ryan One
Skotar minnka muninn, Oné skallar boltann í markið eftir fyrirgjöf frá hægri.46. mín
InnMatthew Anderson
ÚtJude Bonnar
46. mín
InnDylan Smith
ÚtCharlie McArthur
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Skotarnir sækja í átt að félagsheimilinu í seinni hálfleik, fyrir þau ykkar sem eruð kunnug staðháttum á Pinatar!
45. mín
Vonandi verður sama stuð á okkar strákum í seinni hálfleiknum




45. mín
Hálfleikstölfræði (Sofascore):
Með boltann: 43% - 57%
Marktilraunir: 8-2
Skot á markið: 4-1
Hornspyrnur: 3-4
Gul Spjöld: 0-1
45. mín
Íslensku strákarnir eru í banastuði á Pinatar!
45. mín
BENONÝ SKORAR EFTIR HORNSPYRNUNA!
Benoný Breki Andrésson (stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason)
Flott spyrna frá Jóa Bjarna og Benoný er ákveðnastur í teignum og stýrir boltanum inn.44. mín
FRÁBÆRLEGA VARIÐ!
Róbert Frosti rekur boltann upp völlinn og rennir honum á Benoný sem er í dauðafæri en markvörður Skota nær að verja frábærlega frá honum. Ísland fær hornspyrnu!
40. mín
Frábær sókn hjá Íslandi!
Eggert Aron Guðmundsson (stoðsending: Haukur Andri Haraldsson)
Adolf Daði með öfluga sendingu á Hauk Andra sem átti sendingu fyrir þar sem Eggert tók boltann upp, skaut í loftinu og kláraði virkilega vel. Fallegt mark!38. mín
Úrslitaþjónusta frá U19 leiknum
Það verður ekki hefðbundin textalýsing frá U19 leiknum en við ætlum að vera með úrslitaþjónustu: 14:00 Ísland - Ungverjaland
36. mín
Hinrik Harðarson vann hornspyrnu fyrir Ísland. Adolf Daði í þröngu færi við fjærstöngina eftir hornið en skotið beint á McFarlane í marki Skotlands.
33. mín
Gult spjald
Finlay Pollock
33. mín
Smá darraðadans í teignum eftir hornspyrnu Skotlands en íslenska liðið kemur hættunni frá.
29. mín
U19 leikurinn því miður ekki í lýsingu
Ætlunin var að vera með U19 landsliðið líka í beinni textalýsingu en U19 mætir Ungverjalandi núna klukkan 14. Því miður höfum við ekki náð að finna útsendingu frá leiknum og því verður ekkert af þeirri lýsingu.
28. mín
Benoný strax farinn að hóta öðru marki. Skot framhjá.
25. mín
ÍSLAND TEKUR FORYSTUNA
Benoný Breki Andrésson (stoðsending: Haukur Andri Haraldsson)
Haukur Andri með frábærlega tímasetta sendingu á Benoný sem klárar í fyrsta með innanfótar spyrnu í hornið. Afskaplega faglega gert! Verðskuldað miðað við þróun leiksins.
24. mín
BENONÝ BREKI MEÐ HÖRKUSKOT!
Flott skot hjá Benoný! Liam McFarlane varði boltann upp í þverslána og hann datt svo niður á línuna. Ísland hefur tekið völdin í þessum leik eftir að Skotland byrjaði aðeins betur.
19. mín
Aftur fékk Adolf færi
Benoný með sendingu á Adolf sem tekur skotið en boltinn fer framhjá fjærstönginni.
16. mín
Haukur Andri byrjaði líka gegn Ungverjum

15. mín
Leikurinn stopp í smá tíma
Charlie McArthur í skoska liðinu að fá aðhlynningu.
11. mín
Adolf Daði í hörkufæri!
Ísland vinnur boltann með pressu og Róbert Frosti Þorkelsson rennir knettinum á Adolf Daða sem er í hörkufæri í teignum en nær ekki að stilla miðið nægilega vel og skýtur vel yfir.
Fyrsta marktilraun Íslands.
10. mín
Skotarnir talsvert meira með boltann í upphafi leiks, bæði lið fengið horn á upphafskaflanum en hvorugt liðið átt skot á rammann enn sem komið er.
1. mín
Leikurinn er farinn af stað

Fyrir leik
Allt morandi í umboðsmönnum
Þjóðsöngvarnir að baki, Logi Hrafn Róbertsson er fyrirliði íslenska liðsins. Í stúkunni er allt morandi í umboðsmönnum svo þetta er góður auglýsingagluggi fyrir íslensku leikmennina!
Fyrir leik
Ungverjar fengu að kenna á því
Eins og áður segir þá vann U21 landsliðið öflugan 3-0 sigur gegn Ungverjum á Pinatar svæðinu á föstudaginn. Liðið hefur æft og spilað við toppaðstæður á Spáni að undanförnu.
21.03.2025 15:08
U21: Öruggur sigur gegn Ungverjum - Hinrik opnaði markareikninginn
23.03.2025 06:30
Myndaveisla: U21 vann Ungverjaland
Fyrir leik
Klukkan 13:00 mætir íslenska U21 landsliðið því skoska í æfingaleik á Pinatar Arena. Þetta er seinni æfingaleikurinn í þessum glugga en íslenska liðið vann 3-0 sigur á Ungverjum í fyrri leiknum á föstudag.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, gerir fjórar breytingar frá fyrri leiknum. Ásgeir Helgi, Róbert Frosti, Hinrik Harðarson og Adolf Daði koma inn í liðið fyrir þá Hlyn Frey Karlsson, Hilmi Rafn Mikaelsson, Helga Fróða Ingason og Ágúst Orra Þorsteinsson sem taka sér sæti á bekknum.
Leikurinn er í beinni útsendingu á KSÍ síðu Sjónvarps Símans.
Byrjunarliðið:
Halldór Snær Georgsson (KR)
Jóhannes Kristinn Bjarnason (KR)
Logi Hrafn Róbertsson (Istra)
Ásgeir Helgi Orrason (Breiðablik)
Daníel Freyr Kristjánsson (Fredericia)
Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Eggert Aron Guðmundsson (Brann)
Róbert Frosti Þorkelsson (GAIS)
Hinrik Harðarson (Odd)
Benoný Breki Andrésson (Stockport)
Adolf Daði Birgisson (Stjarnan)
Vináttulandsleikur hjá U21









