| fös 03.apr 2026 18:00 Mynd: Hörður Ágústsson |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 1. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Víkingur Reykjavík muni enda í 1. sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Víkingur mun verja Íslandsmeistaratitil sinn ef spáin rætist.
Helgi Guðjónsson breyttist í besta vinstra bakvörð deildarinnar í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. Víkingur R., 144 stig
2. Breiðablik, 130 stig
3. Stjarnan, 120 stig
4. ÍA, 102 stig
5. KR, 90 stig
6. Valur, 88 stig
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig
Um liðið: Víkingar koma inn í þetta tímabil sem ógnvænlegt afl. Þeir eru með það sterkan leikmannahóp að þeir gætu líklega stillt fram þremur sterkum liðum. Víkingar gengu í gegnum stórar breytingar fyrir síðasta tímabil þar sem Arnar Gunnlaugsson lét af störfum til að taka við landsliðinu og Sölvi Geir Ottesen, sem hafði verið aðstoðarmaður hans, tók við af honum. Þegar leið á tímabilið þá sýndu Víkingar hversu góðir þeir geta verið, þeir fundu liðið sitt og voru nánast óstöðvandi. Þeir enduðu á því að vinna deildina sannfærandi og endurheimtu Íslandsmeistaratitilinn úr greipum Breiðabliks. Síðustu ár hefur það verið raunin að liðum tekst ekki að vinna verja titilinn þar sem þau fara langt í Evrópu; það hefur gerst núna þrjú ár í röð að lið frá Íslandi fara í riðla- eða deildarkeppni Sambandsdeildarinnar og það álag hefur haft áhrif á deildina. Víkingar eru þó núna með þannig leikmannahóp að það verða mikil vonbrigði ef þeim tekst ekki að vinna deildina. Í þessari spá enduðu þeir með fullt hús stiga, sem sagt allir sem spáðu telja að Víkingur muni verja titilinn sinn.
Þjálfarinn: Það var rökrétt skref að Sölvi Geir Ottesen myndi taka við Víkingum af Arnari Gunnlaugssyni þegar að því kæmi. Sölvi gerði virkilega vel í Bestu deildinni á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari og stýrði Víkingum til sigurs í deildinni með sannfærandi hætti. Þetta var ekki alltaf auðvelt, það voru ýmsir lærdómar á leiðinni en lokamarkmiðið hafðist. Sölvi, sem er fyrrum landsliðs- og atvinnumaður, hafði verið aðstoðarþjálfari Víkinga áður en hann tók við sem aðalþjálfari. Hann hafði einnig séð um varnarleik og föst leikatriði fyrir A-landsliðið og U21 landsliðið með góðum árangri. Sölvi er metnaðarfullur þjálfari sem er í miklum metum í Víkinni.
Styrkleikar: Hvar á maður að byrja? Víkingar eru með ótrúlega sterkan og breiðan leikmannahóp. Það segir sitt að þeir spiluðu tvo leiki sama daginn fyrir um viku síðan og þeim tókst að vinna báða leikina. Þeir eru nánast hóp til að stilla upp í þrjú sterk byrjunarlið. Í svo gott sem öllum stöðum eru Víkingar með leikmenn sem önnur lið í deildinni væru til í að hafa í sínu liði. Það hefur verið mikill stöðugleiki hjá Víkingi síðustu árin og hlutirnir eru mjög vel gerðir í Fossvoginum. Lið Víkinga er fullt af sigurvegurum sem eru væntanlega gríðarlega hungraðir að vinna allt sem er í boði ásamt því að skrifa nýjan kafla í Evrópusögu íslenskra félagsliða með því að komast annað hvort í riðlakeppni Meistaradeildarinnar eða Evrópudeildarinnar.
Veikleikar: Það er erfitt að segja. Víkingar misstu mikla reynslu í vetur þegar Matthías Vilhjálmsson lagði skóna á hilluna og Pablo Punyed fór í Hauka. Báðir voru þeir mikilvægir fyrir leikmannahópinn en aðrir leikmenn ættu að geta tekið við keflinu af þeim. Ingvar Jónsson átti ekki sitt besta tímabil í markinu í fyrra, allavega ekki samkvæmt tölfræðinni, og hann þarf að stíga meira upp í sumar. Aron Snær Friðriksson er mættur til að veita honum samkeppni. Elías Már Ómarsson kom frá Kína í vetur og hann á leiða sóknarlínuna en heyrst hefur að hann sé ekki í besta forminu. Nikolaj Hansen er líka til staðar en hann er orðinn 33 ára. Kannski verður níustaðan því smá vandamál ef Elías finnur ekki fjölina. Það er þó eins og áður segir erfitt að finna einhverja veikleika fyrir þetta lið.
Lykilmenn: Gylfi Þór Sigurðsson og Valdimar Þór Ingimundarson
Gylfi gekk auðvitað í raðir Víkinga í fyrra og hann var lengi í gang. Það var frægt þegar stuðningsmenn Vals mættu með borða á Hlíðarenda þar sem stóð að ekkert skilagjald væri fyrir Gylfa. Hann steig hins vegar upp þegar Víkingar komust á skrið og var stór partur af því að Víkingur varð Íslandsmeistari. Gylfi ætlar sér að vera með landsliðinu á Evrópumótinu á næsta ár og má gera ráð fyrir honum í fantaformi. Valdimar var þá besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra en hann er gjörsamlega stórkostlegur leikmaður. Það var eitthvað talað um það í fyrra að hann væri óánægður með hlutverk sitt í liðinu en hann og félagið blésu á þær raddir. Það er mikilvægt fyrir Víkinga að Gylfi og Valdimar tengi vel saman.
Gaman að fylgjast með: Elías Már Ómarsson
Það verður ótrúlega að spennandi að fylgjast með því hvernig Elías Már kemur aftur inn í íslenska boltann eftir að hafa verið í atvinnumennsku síðan 2014. Elías hefur átt mjög farsælan feril erlendis þar sem hann spilaði lengst af í Hollandi en líka í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi og Kína. Það hafa vaknað upp einhverjar áhyggjur út af frammistöðu hans á undirbúningstímabilinu en hann þarf bara að þagga niður í þeim þegar fótboltasumarið fer af stað.
Spurningarnar: Tekst liði loksins að verja Íslandsmeistaratitilinn? Vinna þeir báða stóru titlana? Skrifa þeir nýjan kafla í Evrópusögunni?
Völlurinn: Víkingsvöllur, eða heimavöllur hamingjunnar eins og hann er kallaður, er erfiðasti völlurinn að heimsækja í þessari deild. Þannig hefur það verið síðustu ár. Á Víkingsvellinum eru jafnframt líklega bestu hamborgarar deildarinnar. Það er eiginlega bara hægt að bóka það.
Komnir:
Elías Már Ómarsson frá Kína
Jóhannes Kristinn Bjarnason frá Danmörku
Aron Snær Friðriksson frá Njarðvík
Ármann Ingi Finnbogason frá ÍA (var á láni hjá Grindavík)
Björgvin Brimi Andrésson frá Gróttu (lánaður til baka)
Farnir:
Matthías Vilhjálmsson hættur
Pablo Punyed í Hauka
Pálmi Rafn Arinbjörnsson hættur
Atli Þór Jónasson í Fram (lán)
Sveinn Margeir Hauksson í KA (lán)
Haraldur Ágúst Brynjarsson til Njarðvíkur (lán)
Almo til Danmerkur (var á láni hjá Njarðvík)
Leikmannalisti:
1. Ingvar Jónsson (m)
16. Jochum Magnússon (m)
29. Aron Snær Friðriksson
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
15. Róbert Orri Þorkelsson
18. Daði Berg Jónsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
31. Þorri Ingólfsson
69. Ármann Ingi Finnbogason
77. Stígur Diljan Þórðarson
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Fyrstu fimm leikir Víkinga:
10. apríl, Víkingur R. - Breiðablik (Víkingsvöllur)
17. apríl, KA - Víkingur R. (Greifavöllurinn)
23. apríl, Víkingur R. - Stjarnan (Víkingsvöllur)
27. apríl, Víkingur R. - ÍA (Víkingsvöllur)
3. maí, Keflavík - Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.

