25.03.26
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 8. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig
Um liðið: Fram tók jákvæð skref fram á við á síðustu leiktíð með því að komast í efri helming deildarinnar og enda í fimmta sæti. Það hefur verið stöðug jákvæð þróun frá því Rúnar Kristinsson mætti á svæðið og nú er spurning hvort liðið geti haldið áfram á sömu braut í sumar. Undir hans stjórn hefur Fram orðið skipulagðara lið sem veit nákvæmlega hvað það vill gera inn á vellinum og árangurinn hefur fylgt í kjölfarið. Fram er eitt af sögufrægustu félögum landsins en hefur undanfarin ár verið að byggja sig upp aftur eftir langan og erfiðan tíma í næst efstu deild. Nú virðist félagið loksins búið að finna ákveðinn stöðugleika en spurningin fyrir komandi tímabil er hvort Fram geti tekið næsta skref og blandað sér af alvöru í toppbaráttuna eða hvort liðið þurfi aðeins meiri tíma til að brúa bilið upp að sterkustu liðum deildarinnar.
Þjálfarinn: Rúnar Kristinsson er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Fram. Rúnar er goðsögn hjá KR, bæði sem leikmaður og þjálfari. Sem þjálfari gerði hann KR-inga þrisvar að Íslandsmeisturum og þrisvar að bikarmeisturum. Rúnar er langsigursælasti þjálfarinn í Bestu deildinni í dag og á mikla virðingu skilið. Fótboltaáhugamenn þurftu svo sannarlega að venjast því að sjá Rúnar í Fram-úlpu en það er klárlega farið að venjast. Rúnar hefur haft góð áhrif inn í Fram sem félag og bætt mikið hjá félaginu. Það fer af honum gott orðspor innan Fram-heimilsins og ef einhver að fara að ná því mesta út úr þessu liði, þá er það hann.
Styrkleikar: Fram er með sigursælasta þjálfara deildarinnar á hliðarlínunni og það gefur þeim ótrúlega mikið. Rúnar hefur afrekað ótrúlega hluti í íslenskum fótbolta og veit hvað þarf til að ná árangri. Eftir að hann tók við, þá varð Fram mun sterkara varnarlið og það hefur sést vel síðustu tvö tímabil hvað þeir hafa bætt sig mikið á þeim enda vallarins. Skipulagið er gott og menn vita nákvæmlega hver hlutverk þeirra eru. Það er góð blanda í liðinu af reynslumiklum og reynsluminni leikmönnum og gott jafnvægi í hópnum. Aðstaðan er svo sannarlega frábær hjá félaginu og í Úlfarsárdalnum eru tækifæri fyrir Fram til að koma sér aftur á toppinn í íslenskum fótbolta á næstu árum.

Fyrir leik á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lykilmenn: Kennie Chopart og Simon Tibbling
Kennie fylgdi Rúnari til Fram eftir að hafa spilað undir hans stjórn í mörg ár hjá KR. Kennie hefur lengi spilað á Íslandi og það vita allir sem fylgjast með fótboltanum hér á landi hversu góður hann er. Kennie getur nánast spilað hverja einustu stöðu á vellinum og er ótrúlega sterkur karakter. Það væru flest lið í deildinni til í að hafa hann í sínu liði. Tibbling var einn af burðarásum Fram á síðasta tímabili en hann var eini leikmaður félagsins sem rataði í úrvalslið hjá Fótbolta.net. Tibbling er með glæsta ferilskrá en hann er uppalinn hjá Djurgården og var seldur þaðan til Groningen í Hollandi þar sem hann vann hollenska bikarinn. Einnig lék hann með Bröndby, þar sem hann varð danskur bikarmeistari. Hann hefur smellpassað inn í umhverfið hjá Fram og er í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins.
Gaman að fylgjast með: Freyr Sigurðsson
Freyr er afar skemmtilegur miðjumaður sem var nýverið kallaður inn í U21 landsliðið. Hornfirðingurinn átti gott tímabil með Fram í fyrra, skoraði eitt mark í 20 leikjum í Bestu deildinni. Freyr er svo sannarlega leikmaður sem fótboltaunnendur ættu að leggja á minnið en hans helsti styrkleiki er sá að hann er alltaf að, hann er alltaf hlaupandi og leggur gífurlega mikið á sig fyrir liðið. Í Úlfarsárdalnum hefur hann verið kallaður hinn hornfirski Messi.
Spurningarnar: Getur Rúnar tekið liðið enn hærra? Vantar meiri markaskorara? Verður Tibbling einn besti leikmaður deildarinnar?

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, hér til vinstri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Komnir:
Atli Þór Jónasson frá Víkingi á láni
Sigurjón Daði Harðarson frá Fjölni
Bjarni Páll Linnet Runólfsson frá Aftureldingu
Óliver Elís Hlynsson frá ÍR (var á láni)
Sigfús Árni Guðmundsson frá Þrótti (var á láni)
Egill Otti Vilhjálmsson frá Fjölni (var á láni)
Þengill Orrason frá Fjölni (var á láni)
Farnir:
Tryggvi Snær Geirsson í Þrótt R
Alex Freyr Elísson í Njarðvík og svo NSÍ Runavík
Bjarki Arnaldarson frá Fram (var á láni)
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni hjá Breiðabliki)


Kennie Chopart er mjög svo mikilvægur fyrir Framara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. Sigurjón Daði Harðarson
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
4. Þengill Orrason
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson
10. Fred Saraiva
11. Magnús Þórðarson
12. Simon Tibbling
15. Jakob Byström
17. Israel Garcia
18. Sigfús Árni Guðmundsson
19. Kennie Chopart
20. Egill Otti Vilhjálmsson
21. Óliver Elís Hlynsson
23. Már Ægisson
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
30. Kristófer Konráðsson
32. Hlynur Örn Andrason
33. Kajus Pauzuolis
38. Guðmundur Ágúst Héðinsson
Atli Þór Jónasson
Bjarni Páll Linnet Runólfsson
Fyrstu fimm leikir Fram:
12. apríl, Fram - ÍA (Lambhagavöllurinn)
17. apríl, Fram - Keflavík (Lambhagavöllurinn)
23. apríl, Þór - Fram (Þórsvöllur)
27. apríl, Fram - ÍBV (Lambhagavöllurinn)
3. maí, FH - Fram (Kaplakrikavöllur)
Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.

Simon Tibbling hefur burði til að vera einn besti leikmaður deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn hornfirski Messi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Freyr var mjög góður í markinu hjá Fram á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vuk var mjög sterkur framan af á síðasta tímabili en meiðsli settu strik í reikninginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Þór kom á láni frá Víkingum.
Mynd: Fram

Ægir Jarl, hér til vinstri, mun líklega ganga í raðir Fram á næstunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr Úlfarsárdal.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jakob Byström er spennandi sóknarmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Kyle McLagan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gera Framarar í sumar?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

