Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 18:49
Kári Snorrason
Ægir Jarl tilkynntur hjá Fram (Staðfest)
Mynd: Fram
Ægir Jarl Jónasson er genginn í raðir Fram frá danska liðinu AB. Samningur hans við félagið átti að renna út í lok júní en Framarar náðu samkomulagi við AB um að fá hann fyrr til liðsins.

Ægir er fæddur 1998, hann er fjölhæfur miðjumaður sem uppalinn er í Fjölni en gekk í raðir KR árið 2019 og spilaði þar undir stjórn Rúnars Kristinssonar, núverandi þjálfara Fram, áður en hann hélt til AB árið 2024.

Hjá AB spilaði hann fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson sem hætti hjá danska félaginu í lok síðasta árs og tók við FH.

Ægir er að glíma við minni háttar meiðsli og sagði Rúnar Kristinsson það ólíklegt að hann myndi spila fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni sem er gegn ÍA þann 12. apríl, í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.

„Við erum gífurlega ánægð að hafa landað leikmanni á borð við Ægi, hann er bæði feykilega öflugur leikmaður og karakter. Hann hefur unnið alla stóra titla á Íslandi og það er til mikils vænst af honum. Við hlökkum til að sjá hann láta til sín taka“ er haft eftir Sigurði Hrannari Björnssyni, formanni meistaraflokksráðs ráðs karla hjá Fram í tilkynningu félagsins.

Slapp
banner
banner