Leik lokið!
Allt jafnt á Hásteinsvelli
Leikur tveggja hálfleik. Eyjamenn voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en FHingar voru töluvert sterkari í síðari hálfleik svo sanngjörn niðurstaða að mínu mati.
96. mín
FH fær aukaspyrnu. Síðasti séns að gera eitthvað.
93. mín
Hætta inn á teig FH. Filip kemur með lúmskan bolta inn á teiginn og en Eyjamenn fá dæmda á sig aukaspurnu að lokum.
91. mín
Horn frá Kjartani Kára og boltinn dettur ofan á slánna og aftur fyrir.
91. mín
+4 í uppbótartíma.
90. mín
Kjartan Kári kemst upp að endalínu og kemur með fyrirgjöf en Eyjamenn hreinsa. FH fá svo horn í kjölfarið.
89. mín
EYJAMENN vilja víti
Halldór Jón fellur niður við teiginn en frá mínu sjónarhorni virtist hann bara detta..
87. mín
Kári með skot úr þröngu færi en Marcel ver frá honum. Hefði betur gefið á fjær þar sem Kjartan Kári lúrði.
86. mín
Filip með ömurlega tilraun á miðlínunni, Jökull var langt úti úr markinu en Filip drífur ekki.
82. mín
Gult spjald
Tómas Orri Róbertsson
82. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtViggó Valgeirsson
82. mín
InnHeiðmar Þór Magnússon
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
80. mín
ALLT JAFNT
Kári Kristjánsson
Milan J. með ömurlega sendingu til baka á markmann og Kristján Flóki komst næstum inn í sendinguna. Boltinn endar fyrir utan teig og Kári setur boltann í autt markið.76. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtBirkir Valur Jónsson
76. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtAdolf Daði Birgisson
76. mín
InnKári Kristjánsson
ÚtGils Gíslason
75. mín
InnFilip Stuparevic
ÚtArnar Breki Gunnarsson
73. mín
Víti misnotað
Kjartan Kári Halldórsson
MARCEL VER FRÁ HONUM!!! Vel gert hjá MArcel sem fer í rétt horn.72. mín
FH FÁ VÍTI!!!!
Baldur Kári er að munda skotfótinn þegar Bjarki Björn brýtur á honum og FH fá víti.
71. mín
Kjartan Kári brýtur klaufalega af sér á vallarhelmingi ÍBV þegar þeir voru komnir í fína stöðu.
69. mín
Kjartan Kári keyrir að teig ÍBV og tekur skotið fyrir utan en skotið er hátt yfir.
68. mín
FÆRI HJÁ FH
Gils með góða fyrirgjöf inn á teig ÍBV beint á Kjartan Kári en hann gerir bara ekki nógu vel og setur boltann beint á Marcel.
65. mín
InnVitor Hugo Cruz Rocha
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
65. mín
InnArnór Ingi Kristinsson
ÚtFelix Örn Friðriksson
63. mín
Frábært upphlaup hjá Bjarka Birni sem nær að lauma boltanum á Viggó. Viggó skiptir boltanum yfir á Arnar Breka sem kemur með hörkuskot. Jökull nær ekki að halda boltanum en enginn Eyjamaður til að taka frákastið.
62. mín
InnViktor Nói Vidarsson
ÚtArnór Borg Guðjohnsen
62. mín
InnKristján Flóki Finnbogason
ÚtGrétar Snær Gunnarsson
61. mín
Gult spjald
Sigurður Arnar Magnússon
Fyrir brot.61. mín
Gult spjald
Kjartan Kári Halldórsson
Fyrir að tuða.60. mín
Annað horn hjá FH.
59. mín
FH fær horn
Gott spila hjá FHingum, Kjartan Kári og Gils með einn tveir og Kjartan tekur skotið en það er í varnarmann og aftur fyrir.
56. mín
Gult spjald
Viggó Valgeirsson
Tekur Kjartan Kára niður.56. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu ofarlega á vellinum hægra megin. Vel gert hjá Milan J. þarna að vinna aukaspyrnu.
55. mín
Grétar með skot langt fyrir utan teig en Marcel á ekki í neinum vandræðum með það.
54. mín
Fínasta spil hjá FHingum sem endar á Gils fær boltann úti hægra megin. Hann kemur með fyrirgjöf en algjörlega bitlaust og boltinn fer í innkast.
52. mín
Alex reyndi að finna Róbert en Grétar Snær nær að koma boltanum í burtu.
51. mín
Gult spjald
Grétar Snær Gunnarsson
Fyrir brotið á Bjarka.51. mín
ÍBV fær aukaspyrnu nálægt vítateignum.
50. mín
Róbert Elís með spyrnuna en hún er beint í veginn. Eyjamenn fá svo innkast hátt á vellinun.
49. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig.
48. mín
FÆRI!!!
Kjartan Kári með skotið á teignum en boltinn fer í Ísak Óla sem er svo dæmur rangstæður.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað aftur. Vonandi fáum við skemmtilegri seinni hálfleik og fleiri mörk!
45. mín
xG í hálfleik
1,27 hjá ÍBV en 0,04 hjá FH. ÍBV hefur verið 60% með boltann. Ekki annað hægt að segja en að forystan sé verðskulduð hjá Eyjamönnum!
45. mín
Eyjamenn leiða sanngjarnt í hálfleik. Frekar leiðinlegur leikur en ÍBV hafa verið sterkari aðilinn og hafa skapað sér hættulegri færi.
45. mín
+1 í uppbótartíma.
45. mín
Gult spjald
Felix Örn Friðriksson
45. mín
FH fær aukaspyrnu út við línu nálægt vítateignum.
42. mín
Milan, J kemur með fyrirgjöf frá vinstri en Jökull handsamar boltann.
41. mín
Gilm með fyrirgjöf en Marcel grípur boltann auðveldlega.
40. mín
Kjartan Kári með fína fyrirgjöf en Sigurður Arnar skallar boltann aftur fyrir.
35. mín
FH-ingar vilja rangstöðu en flaggið fór ekki á loft.
Viggó kemur Eyjamönnum í 1-0
Viggó Valgeirsson (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)
Boltinn berst á Bjarka eftir horn fyrir utan teig og hann tekur skotið. Jökull ver frá honum en Alex tekur frákastið og kemur boltanum fyrir markið. Viggó þarf svo ekki að gera annað en koma boltanum yfir línuna. Eyjamenn leiða!!FH-ingar vilja rangstöðu en flaggið fór ekki á loft.
33. mín
DAUÐAFÆRI hjá ÍBV
Milan Jezdemiovic kominn í færi hægra megin á teignum en Jökull ver frá honum í horn. Þetta var ekki gott skot frá Milan.
32. mín
ÍBV VILL VÍTI
Bjarki Björn tekinn niður inn í teig af Tómasi Orra og Eyjamenn vilja víti!!! Héðan séð virtist þetta bara víti.
30. mín
Gult spjald
Milan Tomic
30. mín
Alex kemur boltanum á Viggó inn á teignum. Viggó tekur skotið en það er í varnarmenn og í burtu.
28. mín
ÍBV fékk aukaspyrnu nálælgt miðlínunni. Felix tók spyrnuna en hún er bara beint aftur fyrir.
27. mín
ÍBV er að halda boltanum ágætlega en ná ekki að koma sér á síðasta þriðjung og gera eitthvað úr því.
23. mín
Lítið að frétta eins og er. Hvorugt liðið að skapa mikið.
22. mín
Gult spjald
Alex Freyr Hilmarsson
21. mín
ÍBV fær aukaspyrnu, brotið á Alex Frey.
19. mín
Viggó fær boltann í holunni og tekur góðan snúning. Tekur skotið en það er í varnarmann og FHingar fá boltann.
18. mín
Kjartan Kári fær boltann og keyrir að teignum og tekur skotið. Skotið er hins vegar slakt og langt yfir.
16. mín
HÆTTA inn á teig FH
Boltinn barst inn á Viggó inn á teig FH sem nær skotinu en það er í varnarmann. Boltinn berst þá til Róbert Elís en FHingar ná að koma sér fyrir skotið.
15. mín
Kjartan Kári með fyrirgjöf en hún fer beint aftur fyrir.
11. mín
Gils með góðan sprett upp völlinn og kemur með skotið fyrir utan teig en það fer í varnarmann og í innkast.
9. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað, brotið á Arnari Brkea.
6. mín
Arnór Borg með skot fyrir utan teig en Marcel gerir vel og ver frá honum.
5. mín
Kjartan Kári með fyrirgjöf frá vinstri en hún er of löng og fer aftur fyrir.
5. mín
FH fær aukaspyrnu á miðjum vellinum.
2. mín
ÍBV strax í færi
Arnar Breki í færi vinstri megin á teignum en skot hans er fram hjá markinu.
1. mín
Róbert Elís nánast sloppinn einn í gegn en FH nær að bjarga í innkast.
1. mín
Þetta er farið af stað. FHingar starta þessu og leika í átt að Týssvelli.
Fyrir leik
ÍBV-FH : FH-ingar voru mjög sprækir fram á við gegn Þór í bikarnum og Eyjamenn láku mörkum gegn Þrótti. Yfir 3 mörk á Epic er á stuðlinum 1,84 sem er mjög vel boðið. FH eru einnig með Epic Early Win á 1.8.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) April 12, 2026
Fyrir leik
Rúmar 20 mínútur í leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin: Valor ekki í hóp - Óbreytt hjá FH
Gengi liðanna í bikarnum um páskahelgina var ólíkt. ÍBV tapaði fyrir Þrótti í Eyjum en FH fór norður á Akureyri og vann Þór í Boganum.
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV gerir fjórar breytingar. Marcel Zapytowski kemur í markið og þá koma Viggó Valgeirsson, Róbert Elís Hlynsson og Milan Jezdemirovic inn í byrjunarliðið. Vicente Valor er ekki í leikmannahópnum.
Adolf Daði Birgisson, sem kom frá Stjörnunni í vetur, skoraði tvö mörk fyrir FH gegn Þór og er í byrjunarliðinu í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH er með óbreytt byrjunarlið.
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV gerir fjórar breytingar. Marcel Zapytowski kemur í markið og þá koma Viggó Valgeirsson, Róbert Elís Hlynsson og Milan Jezdemirovic inn í byrjunarliðið. Vicente Valor er ekki í leikmannahópnum.
Adolf Daði Birgisson, sem kom frá Stjörnunni í vetur, skoraði tvö mörk fyrir FH gegn Þór og er í byrjunarliðinu í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH er með óbreytt byrjunarlið.
Fyrir leik
Aleksandar Linta er nýr þjálfari ÍBV en Þorlákur Árnason sagði óvænt upp störfum fyrir áramót. Linta er fimmtugur Serbi sem lék hér á landi. Hann bjó í fimmtán ár á Íslandi og kom fyrst hingað árið 1997 til að spila með liði ÍA. Hann spilaði síðar með Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem þjálfaraferill hans hófst 2012.
Hann hefur undanfarin ár þjálfað í Serbíu, meðal annars sem þjálfari undir 19 ára landsliðs Serba og var síðast hjá unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar.

Jóhannes Karl Guðjónsson tók við FH og gerði fjögurra ára samning. Jói Kalli lét af störfum hjá AB í Danmörku. Hann tók við af Heimi Guðjónssyni sem yfirgaf FH þegar samningur hans rann út eftir síðustu leiktíð.
Bæði lið með nýja skipstjóra

Aleksandar Linta er nýr þjálfari ÍBV en Þorlákur Árnason sagði óvænt upp störfum fyrir áramót. Linta er fimmtugur Serbi sem lék hér á landi. Hann bjó í fimmtán ár á Íslandi og kom fyrst hingað árið 1997 til að spila með liði ÍA. Hann spilaði síðar með Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem þjálfaraferill hans hófst 2012.
Hann hefur undanfarin ár þjálfað í Serbíu, meðal annars sem þjálfari undir 19 ára landsliðs Serba og var síðast hjá unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar.

Jóhannes Karl Guðjónsson tók við FH og gerði fjögurra ára samning. Jói Kalli lét af störfum hjá AB í Danmörku. Hann tók við af Heimi Guðjónssyni sem yfirgaf FH þegar samningur hans rann út eftir síðustu leiktíð.
Fyrir leik
Hitað upp í útvarpsþættinum
Fjallað er um stórmeistarajafntefli Víkings og Breiðabliks, hitað upp fyrir leiki sunnudagsins og farið yfir helstu fréttir og tíðindi. #fotboltinet https://t.co/mfDY4BPDYi
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) April 11, 2026
Fyrir leik
Jóhann Ingi Jónsson dæmir í Vestmannaeyjum í dag. Ragnar Bender og Antoníus Halldórsson eru aðstoðardómarar. Gunnar Freyr Róbertsson er skiltadómari.
Þriðja liðið

Jóhann Ingi Jónsson dæmir í Vestmannaeyjum í dag. Ragnar Bender og Antoníus Halldórsson eru aðstoðardómarar. Gunnar Freyr Róbertsson er skiltadómari.
Fyrir leik
Siggi Hall spáir 0-2:
Sigurður Bjartur Hallsson, fyrrum leikmaður FH, spáir í umferðina:
FHingar munu stíga varlega til jarðar í Heimaey eftir mikinn öldugang. Bæði lið munu vera varkár í fyrsta leik. Ísak Óli skorar með skalla eftir hornspyrnu frá Kjartani Kára og Kjartan mun svo þræða Arnór Borg þar sem hann mun vippa yfir Zapytowski snyrtilega.
FHingar munu stíga varlega til jarðar í Heimaey eftir mikinn öldugang. Bæði lið munu vera varkár í fyrsta leik. Ísak Óli skorar með skalla eftir hornspyrnu frá Kjartani Kára og Kjartan mun svo þræða Arnór Borg þar sem hann mun vippa yfir Zapytowski snyrtilega.
09.04.2026 12:00
Siggi Hall spáir í 1. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
Jói Kalli þjálfari FH ræddi við Fótbolta.net í vikunni
Fyrir leik
Besta deildin
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Sunnudagsleikirnir - 1. umferðin klárast í kvöld

Besta deildin
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)











