„Spár eru hluti af íþróttum," segir Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, um spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil. ÍBV er spáð 11. sæti deildarinnar og þar með falli.
„Ég virði ykkar spá en ég hef mikla trú á mínu liði. Það er undir okkur komið að sýna að við erum betri en þessi spá segir til um."
„Ég virði ykkar spá en ég hef mikla trú á mínu liði. Það er undir okkur komið að sýna að við erum betri en þessi spá segir til um."
Gott að vera kominn aftur
Linta skrifaði undir þriggja ára samning um að taka við þjálfun ÍBV um miðjan janúar. Þorlákur Árnason náði frábærum árangri með Eyjamenn á síðasta tímabili en hann hætti óvænt eftir að tímabilinu lauk.
Linta bjó í fimmtán ár á Íslandi og kom fyrst hingað árið 1997 til að spila með liði ÍA. Hann spilaði síðar með Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem þjálfaraferill hans hófst 2012. Hann hefur undanfarin ár þjálfað í Serbíu, meðal annars sem þjálfari undir 19 ára landsliðs Serba og var síðast hjá unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar.
„Það er gott að vera kominn aftur," segir Linta sem snýr aftur til Íslands eftir talsverða fjarveru. „Aðstaðan er betri hjá flestum liðum og mér finnst deildin vera sterkari, gæðin meiri en þegar ég var að spila."
„Ég hef aðeins fengið jákvæðar tilfinningar síðan ég kom frá fólkinu í félaginu til góðs hóps leikmanna sem vilja leggja hart að sér og bæta sig. Við erum smám saman að byggja upp þann leikstíl sem við viljum spila. Ég veit að þetta er ferli en það er mikilvægt fyrir mig að við lítum sífellt skipulagðari út og verðum öruggari í því sem við viljum gera, dag frá degi."
Ég lifi ekki í fortíðinni eða framtíðinni
Síðasta tímabil var frábært fyrir ÍBV þar sem liðið var hársbreidd frá því að komast í efri hlutann fyrir skiptingu þrátt fyrir að vera spáð neðsta sæti í öllum spám fyrir tímabilið.
Ertu hræddur við hið fræga 'second season syndrome' eða á góðri íslensku 'annað tímabils heilkenni'?
„Ég lifi ekki í fortíðinni né horfi of mikið til framtíðar, ég reyni að vera í núinu. Ég sé það ekki sem vandamál. Hvert tímabil hefur sína sögu og færir nýjar áskoranir. Það er mikilvægt fyrir mig sem þjálfara að halda leikmönnum einbeittum og aga og að við höldum okkar leikstíl," segir Linta.
„Markmið okkar er að vera samkeppnishæfir, að mæta öllum andstæðingum á sama hátt, spila vel og byggja á því til að ná góðum úrslitum. Að vaxa sem lið og fá sem mest út úr þessum leikmannahópi."
Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?
„Stuðningur stuðningsmanna skiptir okkur miklu máli. Það sem ég get lofað er að liðið mun leggja sig fram af fullum krafti í hverjum leik og vinna af heiðarleika og einlægni. Stuðningsmennirnir munu sjá það, við trúum því og viljum gera þá stolta," sagði þjálfari ÍBV að lokum.
Athugasemdir



