Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
banner
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
föstudagur 20. mars
Championship
Preston NE - Stoke City - 20:00
Úrvalsdeildin
Bournemouth - Man Utd - 20:00
1. deild
Lens - Angers - 19:45
Bundesligan
RB Leipzig - Hoffenheim - 19:30
Frauen
Essen W - Bayern W - 17:30
Vináttuleikur
Argentina U-17 1 - 1 Japan U-17
Serie A
Cagliari - Napoli - 17:30
Genoa - Udinese - 19:45
Toppserien - Women
Bodo-Glimt W - Honefoss W - 17:00
Molde W - SK Brann W - 17:00
La Liga
Villarreal - Real Sociedad - 20:00
fös 20.mar 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 11. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að ÍBV muni enda í 11. og næst neðsta sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. ÍBV hélt sér uppi í fyrra en fellur í ár ef spáin rætist.

ÍBV kom mikið á óvart á síðasta tímabili.
ÍBV kom mikið á óvart á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aleksandar Linta er nýr þjálfari Eyjamanna.
Aleksandar Linta er nýr þjálfari Eyjamanna.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr var stórkostlegur á síðasta tímabili.
Alex Freyr var stórkostlegur á síðasta tímabili.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Marcel Zapytowski var einn besti markvörður Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð.
Marcel Zapytowski var einn besti markvörður Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liam Daði er kominn heim.
Liam Daði er kominn heim.
Mynd/ÍBV
Róbert Elís kom á láni frá KR, efnilegur leikmaður.
Róbert Elís kom á láni frá KR, efnilegur leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Omar Sowe er að snúa til baka úr erfiðum meiðslum.
Omar Sowe er að snúa til baka úr erfiðum meiðslum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Heiðarsson fór út í atvinnumennsku.
Oliver Heiðarsson fór út í atvinnumennsku.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Milan Jezdimirovic er leikmaður sem nýr þjálfari ÍBV þekkir vel.
Milan Jezdimirovic er leikmaður sem nýr þjálfari ÍBV þekkir vel.
Mynd/ÍBV
Frá Hásteinsvelli.
Frá Hásteinsvelli.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Arnar er leiðtogi í vörninni.
Sigurður Arnar er leiðtogi í vörninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Björn átti flott tímabil í fyrra.
Bjarki Björn átti flott tímabil í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir ÍBV í sumar?
Hvað gerir ÍBV í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig

Um liðið: ÍBV var líklega það lið sem kom mest á óvart síðasta sumar. Það voru bókstaflega allir með Eyjamenn í neðsta sæti í spám fyrir tímabilið og öll von virtist úti áður en tímabilið hófst. En þegar inn í tímabilið var komið sýndi ÍBV að það var miklu meira í þeirra lið spunnið en fólk áttaði sig á. ÍBV var að lokum hársbreidd frá því að komast í efri hluta deildarinnar sem var stórkostlegt afrek, ekki bara út frá spám fyrir tímabilið heldur líka út frá áföllum sem liðið gekk í gegnum á meðan tímabilinu stóð. Omar Sowe, sem átti að vera þeirra helsti markaskorari, meiddist illa í upphafi móts og Oliver Heiðarsson var líka nokkuð frá. Árangurinn var frábær en núna er komið að því að fylgja honum eftir og það verður erfitt. Mikið hefur gengið á hjá ÍBV frá því síðasta tímabili lauk og fróðlegt verður að sjá hvernig liðið mætir til leiks í sumar.

Þjálfarinn: Aleksandar Linta skrifaði undir þriggja ára samning um að taka við þjálfun ÍBV um miðjan janúar. Þorlákur Árnason náði frábærum árangri með Eyjamenn á síðasta tímabili en hann hætti óvænt eftir að tímabilinu lauk. Ástæðan fyrir uppsögninni var sú að fyrirliði liðsins, Alex Freyr Hilmarsson, var ráðinn framkvæmdastjóri fótboltadeildar félagsins og Láki sá að það myndi ekki ganga upp. Nokkrir þjálfarar voru orðaðir við starfið en svo var Linta ráðinn sem er býsna athyglisvert. Linta bjó í fimmtán ár á Íslandi og kom fyrst hingað árið 1997 til að spila með liði ÍA. Hann spilaði síðar með Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem þjálfaraferill hans hófst 2012. Hann hefur undanfarin ár þjálfað í Serbíu, meðal annars sem þjálfari undir 19 ára landsliðs Serba og var síðast hjá unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar.

Fótbolti.net tók viðtal við Linta fyrir nokkrum árum sem má lesa með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

Styrkleikar: Það er alltaf talað um "Eyjageðveikina" og það er alls ekki ólíklegt að Linta sé karakter sem getur náð henni upp hjá liðinu. Liðið er ekkert brjálæðislega mikið breytt frá síðasta tímabili og það er kjarni til staðar sem gerði frábærlega á síðustu leiktíð þrátt fyrir spár um annað fyrir mót. Það eru leiðtogar í liðinu sem þekkja það vel að spila fyrir ÍBV og vita um hvað það snýst. Varnarleikurinn var að miklu leyti frábær á síðustu leiktíð og aginn var svo sannarlega til staðar. Hásteinsvöllur er vopn sem ÍBV hefur en lið þurfa að fara í löng ferðalög til að komast þangað og það er eitthvað sem Eyjamenn eiga að geta nýtt sér. Árangurinn á heimavelli var góður í fyrra en sex af átta sigurleikjum ÍBV komu þar áður en deildin skiptist í fyrra.

Veikleikar: Linta er þjálfari með flotta ferilskrá en það er líklega erfitt að ganga í gegnum þjálfarabreytingar eftir þetta flotta tímabil í fyrra. Láki kom inn með ákveðna hugmyndafræði sem virkaði býsna vel fyrir leikmannahópinn og skipulagið var frábært. Eftir að hafa náð þessum flotta árangri verða breytingar og það er óljóst á þessum tímapunkti hvernig það mun ganga upp. Það er svona ákveðin óvissa. ÍBV missti Oliver Heiðarsson sem var lykilpóstur í sóknarleiknum en hann var líka leikmaður sem dreif liðið áfram með krafti og elju. Aðrir þurfa að stíga upp í hans stað. Sóknarleikurinn gekk brösulega í fyrra og í Vestmannaeyjum þarf að finna lausnir til að hann gangi betur í sumar.

Lykilmenn: Alex Freyr Hilmarsson og Marcel Zapytowski
Alex Freyr steig upp og var besti leikmaður ÍBV á síðasta tímabili. Hornfirðingurinn lék virkilega vel og fór fyrir liðinu sem fyrirliði. Hann komst á bekkinn í liði ársins og var heilt yfir bara frábær. Alex hefur leikið með ÍBV frá 2022 og hann þarf að eiga annað svona tímabil eins og hann átti í fyrra til að ÍBV geti gert góða hluti. Markvörðurinn Marcel Zapytowski komst líka á bekkinn í liði ársins þar sem hann átti frábært tímabil. Það voru mikil gleðitíðindi fyrir Eyjamenn að Zapytowski framlengdi samninginn sinn eftir sumarið þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum í Bestu deildinni, þar á meðal frá Íslandsmeisturum Víkinga.

Gaman að fylgjast með: Liam Daði Jeffs
Sóknarmaðurinn efnilegi er kominn heim ef svo má segja. Liam Daði er fæddur árið 2006 og er fæddur í Vestmannaeyjum. Faðir hans er Ian Jeffs sem lék með ÍBV á sínum tíma. Móðir hans er Sigríður Ása Friðriksdóttir sem lék sömuleiðis með ÍBV á sínum tíma. Hann skoraði tíu mörk í 24 Lengjudeildarleikjum með Þrótti á síðasta tímabili en núna er hann í fyrsta sinn að fara að spila í Bestu deildinni og gaman að sjá hvernig hann tekst á við þetta skref.

Spurningarnar: Hvernig kemur Linta inn í þetta? Hvernig gengur að fylla skarð Olivers? Verður annað tímabilið erfiðara?

Völlurinn: Hásteinsvöllur er líklega fallegasta vallarstæði landsins. Það gerist á hverju ári að fjallað er um hann í erlendum fjölmiðlum þar sem fegurðin umlykur hann. Eyjamenn lögðu gervigras á hann í fyrra en spiluðu fyrstu leiki síðasta tímabils á Þórsvelli sem var mjög athyglisvert. Heimavöllurinn reyndist Eyjamönnum mjög vel á síðustu leiktíð.

Komnir:
Milan Jezdimirovic frá Serbíu
Liam Daði Jeffs frá Þrótti R
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá Fylki
Eiður Atli Rúnarsson frá HK
Róbert Elís Hlynsson frá KR á láni
Sesar Örn Harðarson frá Selfossi
Ari Petersen frá KÍ Klaksvík (lán)
Viggó Valgeirsson frá Njarðvík (var á láni)

Farnir:
Oliver Heiðarsson til Króatíu
Sverrir Páll Hjaltested í FH
Hjörvar Daði Arnarsson í Grindavík
Þorlákur Breki Þ. Baxter í Keflavík (var á láni frá Stjörnunni)
Birgir Ómar Hlynsson í Þór (var á láni)
Jörgen Pettersen til Bandaríkjanna
Eiður Jack Erlingsson í Þrótt V.
Nökkvi Már Nökkvason í Gróttu
Indriði Áki Þorláksson
Víðir Þorvarðarson



Leikmannalisti:
1. Marcel Zapytowski (m)
31. Ari Petersen (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Eiður Atli Rúnarsson
5. Matthias Edeland
6. Milan Tomic
8. Bjarki Björn Gunnarsson
9. Viggó Valgeirsson
14. Arnar Breki Gunnarsson
17. Sesar Örn Harðarson
20. Milan Jezdemirovic
22. Sigurður Valur Sigursveinsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
24. Hermann Þór Ragnarsson
25. Alex Freyr Hilmarsson
26. Felix Örn Friðriksson
28. Heiðmar Þór Magnússon
30. Vicente Valor
45. Róbert Elís Hlynsson
67. Omar Sowe
80. Liam Daði Jeffs
- Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Fyrstu fimm leikir ÍBV:
12. apríl, ÍBV - FH (Hásteinsvöllur)
17. apríl, Valur - ÍBV (N1 Völlurinn Hlíðarenda)
22. apríl, ÍBV - KR (Hásteinsvöllur)
27. apríl, Fram - ÍBV (Lambhagavöllurinn)
3. maí, ÍBV - Breiðablik (Hásteinsvöllur)

Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir
banner