Leik lokið!
94. mín
Fylkir er að reyna en ekkert gengur upp.
92. mín
Aron Snær er niðri í teignum og þarfnast aðhlynningar.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
88. mín
Arnar Númi kemur með fyrirgjöf en hún er skölluð burt af Gunnari Bergmann.
86. mín
Gult spjald
Hlynur Sævar Jónsson
86. mín
Aron Snær reynir háa sendingu inn í teiginn en boltinn fer í markspyrnu.
84. mín
Óðinn og Bjarki Steinsen eru að ræða saman, Óðinn bendir á stigatöfluna á meðan þeir ræða.
83. mín
InnAri Hrafn Haraldsson
ÚtBart Kooistra
83. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtJón Vignir Pétursson
83. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtKári Sigfússon
82. mín
Afturelding er komið á cruise control og ætla að sigla þessu heim.
81. mín
Aron Elí með fyrirgjöf inn í teig sem er skölluð burt.
80. mín
Bjarki Steinsen kemur með fasta sendingu fram fyrir markið beint á Gumma sem potar boltanum framhjá markinu.
Arnar Daði stóð eins og stytta.
Arnar Daði stóð eins og stytta.
76. mín
Wöhler er strax tekinn niður og þarfnast aðhlynningu en hann heldur áfram.
75. mín
Heimir með með fjórfjalda skiptingu, aðilinn með töfluna ruglaðist óvart og setti 14 út af sem ruglaði okkur smá.
74. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtDagur Traustason
74. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
74. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
74. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtOrri Sveinn Segatta
72. mín
Kári með flotta takta við endalínuna, kemst framhjá Aron en fyrirgjöfin er skölluð burt.
72. mín
Óðinn Bjarkason fyrir aftan miðjulínuna lætur bara vaða, skotið fór langt framhjá.
71. mín
Georg á hægri kantinum kemur með fyrirgjöf sem Ólafur grípur.
71. mín
Fylkir er að reyna en þeir ná ekki að skapa sér stöður.
Á meðan vill Afturelding meira.
Á meðan vill Afturelding meira.
69. mín
Tumi Fannar bókstaflega fangar boltann en fær ekki dæmt hendi á sig.
68. mín
Gult spjald
Birkir Már Sævarsson
65. mín
Hornið fór ekki neitt.
64. mín
Fylkir fær annað horn, þeir skoruðu úr síðasta.
63. mín
Jón Vignir með horn, boltinn fer beint á Kooistra sem skalalr beint á markið en Ólafur grípur boltann.
61. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtJoacim Emil Godhei Holtan
60. mín
InnGeorg Bjarnason
ÚtEnes Þór Enesson Cogic
57. mín
Afsakið biðina þurfti að tjekka hvort að þetta hafi verið Guðmundur sem skoraði.
MAAAARK!
Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Kári Sigfússon)
Kári með horn, boltinn fer beint á Guðmund sem skallar, Jón Vignir skallar af línunni en dómarinn segir að boltinn sé inni.Afsakið biðina þurfti að tjekka hvort að þetta hafi verið Guðmundur sem skoraði.
56. mín
Tumi Fannar með skot fyrir utan teig en Arnar Daði ver þægilega og heldur boltanum.
55. mín
Andi Hoti er lánsmaður frá Val, í þessum töluðum orðum er Valur að tapa 4-0 og Andi með tvö mörk í dag.
53. mín
Afturelding tekur stutt horn sem gengur ekki vel, en boltinn endar aftur á Jón Vigni sem kemur með svaka fyrirgjöf inn á teiginn.
Andi Hoti er alveg einn og skallar boltanum yfir markmannin.
MAAAARK!
Andi Hoti (stoðsending: Jón Vignir Pétursson)
Miðvörður á miðvörð.Afturelding tekur stutt horn sem gengur ekki vel, en boltinn endar aftur á Jón Vigni sem kemur með svaka fyrirgjöf inn á teiginn.
Andi Hoti er alveg einn og skallar boltanum yfir markmannin.
51. mín
Aron Elí er að dansa inn í teignum en endar svo að missa boltann.
Afturelding vill fleiri mörk og ætlar að slátra Fylki.
Afturelding vill fleiri mörk og ætlar að slátra Fylki.
48. mín
Hvað er í gangi!
Máni Austmann kemst í gegn eftir eina háa sendingu, Máni og Arnar Daði renna í grasinu í áttina að boltanum, fara klárlega harkalega í hvorn annan.
Boltinn dettur svo á Gumma Tyrfings sem er með galopið markið og hann lætur vaða en boltinn nær ekki svo langt og dettur inn í teignum og Aron Elí kemur honum út.
Boltinn dettur svo á Gumma Tyrfings sem er með galopið markið og hann lætur vaða en boltinn nær ekki svo langt og dettur inn í teignum og Aron Elí kemur honum út.
47. mín
Arnór Breki með hornið, mikið klafs inn í teignum en boltinn endar í fanginu hjá Arnari Daða.
46. mín
Fylkismenn byrja betur, Bjarki Steinsen kemur með fyrirgjöf sem er skölluð burt.
46. mín



46. mín
Seinni hálfleikur
Engar breytingar, en sjáum til hvað Heimir gerir þessar 45 mínútur.
45. mín
Hálfleikur
Hvað gerir Heimir?
Sjáum til eftir korter.
Sjáum til eftir korter.
45. mín
+1 min í uppbótartíma.
43. mín
Fylkismenn eru að reyna að koma sér í stöður en eru alltaf að missa boltann klaufalega.
42. mín
Mosfellingar eru ekki hættir og þeir vilja fimmta markið, Fylkismenn vilja bara að Pétur flauti hálfleik.
38. mín
Hlynur Sævar er bara ,,ball watching" og boltinn dettur beint á Kooistra sem kemur so boltanum framhjá Ólafi í marki Fylkis.
MAAAARK!
Bart Kooistra (stoðsending: Jón Vignir Pétursson)
Jón Vignir er staðsettur við miðjulínuna, kemur bara með háan í gegnum vörn Fylkis.Hlynur Sævar er bara ,,ball watching" og boltinn dettur beint á Kooistra sem kemur so boltanum framhjá Ólafi í marki Fylkis.
38. mín
Bjarki Steinsen kemur með fyrirgjöf inn í teig, en sendingin fer ekki á neinn.
37. mín
Afturelding í skyndisókn. Holtan kemur með sendingu fram fyrir markið þar sem Óðinn er staðsettur en hann nær ekki að pota í boltann.
35. mín
Afturelding er búið að taka yfir leikinn, Fylkismenn eru að gera frekar lítið.
No Elmar Kári, No Problem.
No Elmar Kári, No Problem.
31. mín
Boltinn dettur svo á Holtan sem þarf þá að skalla í galopið markið.
Hvað er að gerast
Joacim Emil Godhei Holtan
Afturelding fær horn, góður skalli sem er varinn af Ólafi.Boltinn dettur svo á Holtan sem þarf þá að skalla í galopið markið.
29. mín
Holtan þarf bara að renna boltanum á Óðinn sem þarf þá að skjóta á galopið markið.
MAAAARK!
Óðinn Bjarkason (stoðsending: Joacim Emil Godhei Holtan)
Bjartur Bjarmi situr Holtan í gegn einn á móti markmanni, varnarmenn Fylkis eru langt frá honum.Holtan þarf bara að renna boltanum á Óðinn sem þarf þá að skjóta á galopið markið.
29. mín
!!!
Nú jæja, það er krakki í stúkunni með 2002 Ronaldo Nazario klippingu, virðing á það!
27. mín
Tvö dauðafæri
Óðinn og Holtan eru að spila saman í teignum, Holtan tekur svo skotið sem er beint á Ólaf.
Aron Elí kemur svo með háa fyrirgjöf beint á Holtan sem nær góðum skalla en rétt framhjá.
Aron Elí kemur svo með háa fyrirgjöf beint á Holtan sem nær góðum skalla en rétt framhjá.
26. mín
Arnór Breki kemur með háa fyrirgjöf sem Afturelding nær að skalla burt, boltinn dettur svo á Tuma sem sendir á Bjarka Steinsen sem lætur vaða en skotið er blokkað.
22. mín
Jón kemur með boltann inn í teiginn, beint á Aron Elí sem skallar boltann niður. Andi fær svo boltann sem hann þrumar svo inn.
MAAAARK!
Andi Hoti (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)
Jón Vignir með aukaspyrnu ekki langt frá teignum.Jón kemur með boltann inn í teiginn, beint á Aron Elí sem skallar boltann niður. Andi fær svo boltann sem hann þrumar svo inn.
21. mín
Gult spjald
Guðmundur Tyrfingsson
Enes er að fara í skyndisókn og Gummi hendir í eina góða bakhrindingu.19. mín
Hlynur nær skallanum og Bart fer með hendina út og beint í andlit Hlyns.
Gult spjald
Bart Kooistra
Boltinn er í loftinu, Bart og Hlynur hoppa báðir í boltann.Hlynur nær skallanum og Bart fer með hendina út og beint í andlit Hlyns.
18. mín
Enes var að koma sér í skyndisókn en Arnór Breki fer í seina tæklingu og tekur hann niður.
14. mín
Gummi með flotta takta við teiginn, snýr sér við tvisvar og kemur svo með fyrirgjöf en það var enginn til þess að skalal boltanum inn.
10. mín
Fylkir byrja leikinn miklu betur og hafa fengið ágæt færi, vörn Aftureldingar hefur verið í smá veseni.
8. mín
Gummi Tyrfings lætur vaða langt frá, boltinn fór rétt framhjá markinu.
6. mín
Kári kemur með fyrirgjöf af hægri kantinum en Arnar Daði grípur boltann.
3. mín
Gummi er á vinstri kantinum og kemur með fyrirgjöf sem fer beint á Aron Elí sem sparkar boltanum í Andi Hoti, boltinn hrekkur af Andi og í fangið hjá Arnari Daða en þetta var hættulegt og glórulaust.
2. mín
Kári Sigfús keyrir upp hægri kantinn, cuttar inn og lætur vaða en skotið langt framhjá.
1. mín
Fylkismenn eru í hvítum og svörtum búningum, en númerin eru líka hvít sem gerir það erfitt að sjá númerin, pirrandi.
1. mín
Pétur dómari byrjaði að tala við varamannabekk Aftureldingar áður en hann flautaði startið, veit nú ekki af hverju.
1. mín
Leikur hafinn
Mosfellingar byrja.
Fyrir leik
Maggi að taka team talkið og peppa liðið við varamannabekkinn.
Fyrir leik
Það er verið að heiðra Hilmar Gunnarsson, næsta bæjarstjóra Mosfellsbæ fyrir leik.
Fyrir leik
15 min í leik
Maggi var vongóður að Elmar Kári myndi spila í dag en Elmar er ekki á skýrslu, Axel Óskar er á bekknum í dag, annan leikinn í röð.
Heimir situr Birki og Eyþór Wöhler á bekkinn.
Heimir situr Birki og Eyþór Wöhler á bekkinn.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Adam Pálsson leikmaður Vals er spámaður umferðarinnar. Samkvæmt honum verður leikurinn veisla.
Afturelding 4-4 Fylkir
,,Þetta verður geðveikur leikur 4-4 og Birkir Már með öll 4 en tjokkoarnir Eyþór og Kári setja sitthvor 2 fyrir Fylki."
Afturelding 4-4 Fylkir
,,Þetta verður geðveikur leikur 4-4 og Birkir Már með öll 4 en tjokkoarnir Eyþór og Kári setja sitthvor 2 fyrir Fylki."
Fyrir leik
Dómaratríóið
Pétur Guðmundsson er með flautuna í kvöld, Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú verða með flöggin.


Fyrir leik
Lærisveinar Heimis á toppnum
Í síðustu umferð unnu Fylkir á móti Leikni 3-0 á Tekk vellinum. Gummi Tyrfings með tvö mörk og Guðfinnur Leó með eitt.
Gummi Tyrfings meiddist í byrjun móts, en er núna búin að skora þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum.

Heimir ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn gegn Leikni og þá var spurt um leikinn í dag.
"Næst er það erfiður leikur á móti Aftureldingu í Mosfellsbæ og þeir hafa verið að spila vel upp á síðkastið þannig að við fögnum aðeins í kvöld og byrjum að undirbúa okkur á morgun."
Gummi Tyrfings meiddist í byrjun móts, en er núna búin að skora þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum.

Heimir ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn gegn Leikni og þá var spurt um leikinn í dag.
"Næst er það erfiður leikur á móti Aftureldingu í Mosfellsbæ og þeir hafa verið að spila vel upp á síðkastið þannig að við fögnum aðeins í kvöld og byrjum að undirbúa okkur á morgun."
Fyrir leik
Maggi vill sjá stemmingu á leiknum
Í síðustu umferð fór Afturelding til Grindavíkur og unnu 1-3 úti sigur. Holtan, Aron Elí og Óðinn Bjarka með mörkin þrjú fyrir Aftureldingu. Eftir leik ræddi þjálfari liðsins Magnús Már Einarsson við Fotbolta.net um leikinn gegn Fylki.
„Ég geri ákall til allra Mosfellinga að fjölmenna, ég vill fá sömu stemningu og hefur verið í bestu leikjunum undanfarin ár, það hjálpar þeim gríðarlega í baráttunni. Ég hvet alla til að taka frá sunnudagskvöldið og mæta og styðja strákana."

Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar er búin að spila vel á tímabilinu. Elmar er með 4 mörk og 2 stoðsendingar, tvö af mörkum Elmars komu beint úr aukaspyrnu.

Elmar spilaði ekki gegn Grindavík þrátt fyrir að hann átti að byrja.
„Hann fann eitthvað smá til og við ákváðum að taka enga sénsa hérna á grasinu en ég er vongóður um að hann verði klár í næsta leik."
„Ég geri ákall til allra Mosfellinga að fjölmenna, ég vill fá sömu stemningu og hefur verið í bestu leikjunum undanfarin ár, það hjálpar þeim gríðarlega í baráttunni. Ég hvet alla til að taka frá sunnudagskvöldið og mæta og styðja strákana."

Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar er búin að spila vel á tímabilinu. Elmar er með 4 mörk og 2 stoðsendingar, tvö af mörkum Elmars komu beint úr aukaspyrnu.

Elmar spilaði ekki gegn Grindavík þrátt fyrir að hann átti að byrja.
„Hann fann eitthvað smá til og við ákváðum að taka enga sénsa hérna á grasinu en ég er vongóður um að hann verði klár í næsta leik."
Fyrir leik
Stórleikur umferðarinnar!
Það er komið að sjöundu umferð Lengjudeildarinnar.
Afturelding sem situr í öðru sæti tekur á móti Fylki sem er í fyrsta sætinu, leikurinn verður spilaður á heimavelli Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Umferðin
sunnudagurinn 31. maí
14:00 ÍR - Vestri
14:00 Völsungur - Ægir
14:00 Njarðvík - Grótta
17:00 Leiknir R. - HK
19:15 Afturelding - Fylkir
mánudagurinn 1. júní
19:15 Þróttur R. - Grindavík
Afturelding sem situr í öðru sæti tekur á móti Fylki sem er í fyrsta sætinu, leikurinn verður spilaður á heimavelli Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Umferðin
sunnudagurinn 31. maí
14:00 ÍR - Vestri
14:00 Völsungur - Ægir
14:00 Njarðvík - Grótta
17:00 Leiknir R. - HK
19:15 Afturelding - Fylkir
mánudagurinn 1. júní
19:15 Þróttur R. - Grindavík







Takk fyrir mig, skýrsla og viðtöl á leiðinni.