Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Lengjudeild karla
Afturelding
45' 4
0
Fylkir
Besta karla
Valur
LL 0
3
Víkingur R.
Besta karla
ÍBV
LL 6
1
Keflavík
Besta karla
Þór
LL 1
3
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 4
1
HK
Besta karla
KR
LL 5
3
KA
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
3
Ægir
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 1
2
Grótta
Lengjudeild karla
ÍR
LL 0
1
Vestri
Valur
0
3
Víkingur R.
0-1 Helgi Guðjónsson '5
0-2 Óskar Borgþórsson '34
0-3 Óskar Borgþórsson '36
31.05.2026  -  19:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson ('30)
4. Markus Lund Nakkim
6. Bjarni Mark Duffield
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson (f)
14. Albin Skoglund
17. Lúkas Logi Heimisson
21. Jakob Franz Pálsson
23. Adam Ægir Pálsson
24. Myles A Veldman
28. Samúel Kári Friðjónsson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
5. Kristófer Dagur Arnarsson
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle
16. Loki Kristjánsson
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson
27. Pétur Eiríksson
30. Gunnar Karl Heiðdal
33. Jón Pétur Wissler
66. Ólafur Flóki Stephensen ('30)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Örn Erlingsson (Liðsstj.)
Kirian Elvira Acosta (Styrktarþj.)
Aron Óskar Þorleifsson (Sjúkraþj.)
Vignir Snær Stefánsson (AÞ)
Emil Alexander Larsen (MÞ)
Halldór Eyþórsson (Liðsstj.)
Chris Brazell (AÞ)

Gul spjöld:
Hörður Ingi Gunnarsson ('3)
Bjarni Mark Duffield ('35)
Myles A Veldman ('41)

Rauð spjöld:
45. mín
Hálfleikur
+3 - Eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik Víkingar verið yfir í allri baráttu innan sem og utan vallar í fyrri hálfleiknum.

Verðskulduð 3-0 forysta sem þeir taka með sér inn í hálfleikinn.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka með seinni hálfleikinn að vörmu spori.
45. mín
+3 í uppbótartíma
45. mín
Gylfi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Ólafur Flóki skallar frá.
44. mín
Víkingar næla sér í hornspyrnu
44. mín
Leikurinn hefur verið ansi róleugr eftir þriðja markið.

Lítur allt út fyrir það að Víkingar fari með þriggja marka forskot inn í hálfleikinn.
41. mín Gult spjald: Myles A Veldman (Valur)
Eitthvað off the ball brot sem ég sá ekki alveg.
36. mín MARK!
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Ármann Ingi Finnbogason
Funheitur Óskar! Ármann með fullkomna fyrirgjöf á Óskar Borgþórs sem stangar boltann í netið framhjá Frederik Schram. Hann sparkar í boltann með hausnum, hans sjöunda mark í sumar.

Því miður en það er bara eitt lið á vellinum, 1 mínútua milli markanna rúmlega.
35. mín Gult spjald: Bjarni Mark Duffield (Valur)
Stoppar hraða skyndisókn og fær réttilega gult spjald frá Ívari.
34. mín MARK!
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Óskar með laglegt mark! Vinnur boltann örugglega á vellinum og keyrir að teignum áður en hann klárar frábærlega í netið. Frábær afgreiðsla og mark hjá Óskari.

Víkingar eru að ganga á lagið á meðan Valsmenn virka mjög andlausir og bitlausir.
32. mín
Víkingar fá hornspyrnu Valsmenn standa vaktina vel og bægja hættunni frá örugglega.
31. mín
Ólafur fer í hafsentinn með Markus og Jakob Franz í hægri bakvörðinn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Inn:Ólafur Flóki Stephensen (Valur) Út:Hörður Ingi Gunnarsson (Valur)
Hörður hefur lokið leik
29. mín
Nú Hörður - Yfirvinna á sjúkraþjálfarann! Leikurinn fer í gang og þá fer Hörður Ingi strax niður. Aron Óskar, sjúkraþjálfari Vals, stendur í ströngu að sinna leikmönnum Vals. Stendur hinum meginn á vellinum með Skoglund og kemur inn þar að sinna Herði.
27. mín
Skoglund meiddur Leikurinn stopp þar sem Albin Skoglund liggur meiddur niðri eftir árekstur frá liðsfélaga. Hins vegar dæmdi Ívar aukaspyrnu á Víkinga sem ég skil ekki.
24. mín
Helgi Guðjóns tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn hreinsa frá.
23. mín
Víkingar fá hornspyrnu
22. mín
Bjargað á línu! Gylfi tekur boltann inn á teiginn sem Daníel Hafsteins skallar á markið en Frederik nær að verja eða einhver varnarmaður bjargar á línu, sá það ekki fyrir þvögunni. En þeir fá aðra hornspyrnu sem þeir ná ekki að gera sér mat úr, sóknarpressar heldur samt áfram hjá gestunum.
22. mín
Víkingar að fá horn
20. mín
Stórsóknir beggja liða! Gylfi tekur skotið fyrir utan teig sem Frederik ver út í teiginn. Þar eru Helgi Guðjóns og Valdimar báðir mættir í frákastið í tvígang en ná ekki að gera sér mat úr þessu.

Valsmenn keyra síðan upp í sókn hinum meginn og Skoglund og Tryggvi eru komnir tveir á einn. Skoglund reynir að renna honum á Tryggva í stað þess að skjóta og Valsmenn tapa boltanum. Valsmenn í stúkunni allt annað en sáttir.
19. mín
18. mín
Góð tilraun Daníel Hafsteins reynir skot af löngu færi sem Schram ver út í innkast. Ekki slæm tilraun hjá Danna þarna.
16. mín
Tryggvi kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Víkingar hreinsa frá.
15. mín
Aftur fá Valsmenn horn
13. mín
Víkingar standa vaktina vel og hreinsa.
12. mín
Tryggvi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Karl Friðleifur skallar aftur fyrir í annað horn. Frábær bolti en enginn Valsari mættur á fjærsvæðið.
11. mín
Valsmenn að fá hornspyrnu!
7. mín
Víkingar halda áfram að sækja Helgi fær boltann inn á teignum og rennir honum á Elías Má sem hittir ekki boltann nægilega vel. Valsmenn sleppa með skrekkinn.
5. mín MARK!
Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Oliver Ekroth
Þetta var ótrúlega auðvelt! Oliver Ekroth með langan bolta upp völlinn aftur fyrir vörn Valsmanna og þar er Helgi mættur á svæðið og klárar örugglega framhjá Frederik í markinu.

Ekki góður varnarleikur hjá Valsmönnum þarna, sýndist það vera Jakob Franz sem er sekur þarna en á að vissu eftir að sjá þetta aftur.
5. mín
Sé þetta nokkurn veginn svona Valur (4-4-1-1)
Schram
Hörður - Jakob - Markus - Myles
Tryggvi - Samúel - Bjarni - Lúkas
Skoglund
Adam


Víkingur R. (4-4-2)
Aron
Karl - Gunnar - Oliver - Helgi
Ármann - Daníel - Gylfi - Óskar
Valdimar - Elías
3. mín Gult spjald: Hörður Ingi Gunnarsson (Valur)
Fer í ansi groddaralega tæklingu og fær verðsluldað spjald
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka okkur af stað!
Fyrir leik
Áfram Ingvar! Þá ganga liðin og dómarar leiksins til vallar, allir í treyjum merktum Ingvari Jónssyni sem er fallegt að sjá.

Það styttist óðum í að leikurinn hefjist.
Fyrir leik
Styttist í leik Liðin rölta til búningsklefa og gera sig klár í slaginn. Sprinklerarnir eru að vökva völlin, fólkið að týnast í stúkuna og almennt góð stemning hér á Hlíðarenda.

Vonandi fáum við hörkuleik í kvöld.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar, fékk það verðuga verkefni að spá fyrir leiki 9. umferðar Bestu deildarinnar.
Valur 0 - 1 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Eitthvað sem segir mér að Gylfi klíni honum í vinkilinn af 40 metrum og þeir taki þetta 0-1.
Fyrir leik
Þriðja liðið Dómari leiksins er Ívar Orri Kristjánsson, honum til halds og trausts verða þeir Birkir Sigurðarson og Þórður Arnar Árnason, fjórði dómari leiksins er hann Elías Ingi Árnason og eftirlitsmaður KSÍ er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingar á toppnum Byrjun Víkinga á mótinu hefur verið frábær en þeir tróna á toppi deildarinnar taplausir. Þeir hafa unnið alla sína leiki nema einn leik sem þeir gerðu jafntefli í á móti Breiðablik í opnunarleiknum.

Það er því augljóst að Víkingar eru líklegri í að vinna leikinn en Valur í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kaflaskipt hjá Valsmönnum Byrjun Valsmanna á mótinu hefur verið bæði upp og niður. Seinast fóru þeir í fýluferð í Vesturbæinn þar sem þeir töpuðu 3-1 fyrir KR. Þar á undan höfðu þeir unnið KA og Breiðablik. Valur er sem stendur í 5. sæti deildarinnar.

Það verður áhugavert að sjá hvernig Valsmenn mæta til leiks í þetta stóra próf sem bíður þeirra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sú lang Besta! Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og Víkings í Bestu deild karla á Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
69. Ármann Ingi Finnbogason
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson
24. Davíð Örn Atlason
35. Þorri Ingólfsson
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Sjúkraþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: