Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 5
1
Fylkir
Besta karla
Valur
LL 1
5
Víkingur R.
Besta karla
ÍBV
LL 6
1
Keflavík
Besta karla
KR
LL 5
3
KA
Besta karla
Þór
LL 1
3
Stjarnan
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 4
1
HK
Afturelding
5
1
Fylkir
Andi Hoti '22 1-0
Óðinn Bjarkason '29 2-0
Joacim Holtan '31 3-0
Bart Kooistra '38 4-0
Andi Hoti '53 5-0
5-1 Hlynur Sævar Jónsson '57
31.05.2026  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 700+
Byrjunarlið:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson
5. Jón Vignir Pétursson ('83)
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Bart Kooistra ('83)
9. Joacim Holtan ('61)
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
27. Enes Þór Enesson Cogic ('60)
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
3. Axel Óskar Andrésson
19. Sævar Atli Hugason
23. Ari Hrafn Haraldsson ('83)
24. Trausti Þráinsson ('61)
25. Georg Bjarnason ('60)
79. Róbert Agnar Daðason ('83)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Garðar Guðnason (Sjúkraþj.)
Þórður Ingason (MÞ)
Gunnar Ingi Garðarsson (Styrktarþj.)
Enes Cogic (AÞ)
Baldvin Jón Hallgrímsson (Liðsstj.)
Þorgeir Leó Gunnarsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Bart Kooistra ('19)
Birkir Már Sævarsson ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Afturelding með sigur.

Takk fyrir mig, skýrsla og viðtöl á leiðinni.
94. mín
Fylkir er að reyna en ekkert gengur upp.
92. mín
Aron Snær er niðri í teignum og þarfnast aðhlynningar.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
88. mín
Arnar Númi kemur með fyrirgjöf en hún er skölluð burt af Gunnari Bergmann.
86. mín Gult spjald: Hlynur Sævar Jónsson (Fylkir)
86. mín
Aron Snær reynir háa sendingu inn í teiginn en boltinn fer í markspyrnu.
84. mín
Óðinn og Bjarki Steinsen eru að ræða saman, Óðinn bendir á stigatöfluna á meðan þeir ræða.
83. mín
Inn:Ari Hrafn Haraldsson (Afturelding) Út:Bart Kooistra (Afturelding)
83. mín
Inn:Róbert Agnar Daðason (Afturelding) Út:Jón Vignir Pétursson (Afturelding)
83. mín
Inn:Arnar Númi Gíslason (Fylkir) Út:Kári Sigfússon (Fylkir)
82. mín
Afturelding er komið á cruise control og ætla að sigla þessu heim.
81. mín
Aron Elí með fyrirgjöf inn í teig sem er skölluð burt.
80. mín
Bjarki Steinsen kemur með fasta sendingu fram fyrir markið beint á Gumma sem potar boltanum framhjá markinu.

Arnar Daði stóð eins og stytta.
76. mín
Wöhler er strax tekinn niður og þarfnast aðhlynningu en hann heldur áfram.
75. mín
Heimir með með fjórfjalda skiptingu, aðilinn með töfluna ruglaðist óvart og setti 14 út af sem ruglaði okkur smá.
74. mín
Inn:Aron Snær Guðbjörnsson (Fylkir) Út:Dagur Traustason (Fylkir)
74. mín
Inn:Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir) Út:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir)
74. mín
Inn:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
74. mín
Inn:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir) Út:Orri Sveinn Segatta (Fylkir)
72. mín
Kári með flotta takta við endalínuna, kemst framhjá Aron en fyrirgjöfin er skölluð burt.
72. mín
Óðinn Bjarkason fyrir aftan miðjulínuna lætur bara vaða, skotið fór langt framhjá.
71. mín
Georg á hægri kantinum kemur með fyrirgjöf sem Ólafur grípur.
71. mín
Fylkir er að reyna en þeir ná ekki að skapa sér stöður.

Á meðan vill Afturelding meira.
69. mín
Tumi Fannar bókstaflega fangar boltann en fær ekki dæmt hendi á sig.
68. mín Gult spjald: Birkir Már Sævarsson (Afturelding)
65. mín
Hornið fór ekki neitt.
64. mín
Fylkir fær annað horn, þeir skoruðu úr síðasta.
63. mín
Jón Vignir með horn, boltinn fer beint á Kooistra sem skalalr beint á markið en Ólafur grípur boltann.
61. mín
Inn:Trausti Þráinsson (Afturelding) Út:Joacim Holtan (Afturelding)
60. mín
Inn:Georg Bjarnason (Afturelding) Út:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding)
57. mín MARK!
Hlynur Sævar Jónsson (Fylkir)
Stoðsending: Hlynur Sævar Jónsson
Arnór með horn, boltinn fer beint á Hlyn sem skallar, Jón Vignir skallar af línunni en dómarinn segir að boltinn sé inni.

Afsakið biðina þurfti að tjekka hvort að þetta hafi verið Hlynur sem skoraði.
56. mín
Tumi Fannar með skot fyrir utan teig en Arnar Daði ver þægilega og heldur boltanum.
55. mín
Andi Hoti er lánsmaður frá Val, í þessum töluðum orðum er Valur að tapa 4-0 og Andi með tvö mörk í dag.
53. mín MARK!
Andi Hoti (Afturelding)
Stoðsending: Jón Vignir Pétursson
Miðvörður á miðvörð.

Afturelding tekur stutt horn sem gengur ekki vel, en boltinn endar aftur á Jón Vigni sem kemur með svaka fyrirgjöf inn á teiginn.

Andi Hoti er alveg einn og skallar boltanum yfir markmannin.
51. mín
Aron Elí er að dansa inn í teignum en endar svo að missa boltann.

Afturelding vill fleiri mörk og ætlar að slátra Fylki.
48. mín
Hvað er í gangi! Máni Austmann kemst í gegn eftir eina háa sendingu, Máni og Arnar Daði renna í grasinu í áttina að boltanum, fara klárlega harkalega í hvorn annan.

Boltinn dettur svo á Gumma Tyrfings sem er með galopið markið og hann lætur vaða en boltinn nær ekki svo langt og dettur inn í teignum og Aron Elí kemur honum út.
47. mín
Arnór Breki með hornið, mikið klafs inn í teignum en boltinn endar í fanginu hjá Arnari Daða.
46. mín
Fylkismenn byrja betur, Bjarki Steinsen kemur með fyrirgjöf sem er skölluð burt.
46. mín
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson



Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

46. mín
Seinni hálfleikur Engar breytingar, en sjáum til hvað Heimir gerir þessar 45 mínútur.
45. mín
Hálfleikur
Hvað gerir Heimir?

Sjáum til eftir korter.
45. mín
+1 min í uppbótartíma.
43. mín
Fylkismenn eru að reyna að koma sér í stöður en eru alltaf að missa boltann klaufalega.
42. mín
Mosfellingar eru ekki hættir og þeir vilja fimmta markið, Fylkismenn vilja bara að Pétur flauti hálfleik.
38. mín MARK!
Bart Kooistra (Afturelding)
Stoðsending: Jón Vignir Pétursson
Jón Vignir er staðsettur við miðjulínuna, kemur bara með háan í gegnum vörn Fylkis.

Hlynur Sævar er bara ,,ball watching" og boltinn dettur beint á Kooistra sem kemur so boltanum framhjá Ólafi í marki Fylkis.
38. mín
Bjarki Steinsen kemur með fyrirgjöf inn í teig, en sendingin fer ekki á neinn.
37. mín
Afturelding í skyndisókn. Holtan kemur með sendingu fram fyrir markið þar sem Óðinn er staðsettur en hann nær ekki að pota í boltann.
35. mín
Afturelding er búið að taka yfir leikinn, Fylkismenn eru að gera frekar lítið.

No Elmar Kári, No Problem.
31. mín MARK!
Joacim Holtan (Afturelding)
Hvað er að gerast Afturelding fær horn, góður skalli sem er varinn af Ólafi.

Boltinn dettur svo á Holtan sem þarf þá að skalla í galopið markið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
29. mín MARK!
Óðinn Bjarkason (Afturelding)
Stoðsending: Joacim Holtan
Bjartur Bjarmi situr Holtan í gegn einn á móti markmanni, varnarmenn Fylkis eru langt frá honum.

Holtan þarf bara að renna boltanum á Óðinn sem þarf þá að skjóta á galopið markið.
29. mín
!!! Nú jæja, það er krakki í stúkunni með 2002 Ronaldo Nazario klippingu, virðing á það!
27. mín
Tvö dauðafæri Óðinn og Holtan eru að spila saman í teignum, Holtan tekur svo skotið sem er beint á Ólaf.

Aron Elí kemur svo með háa fyrirgjöf beint á Holtan sem nær góðum skalla en rétt framhjá.
26. mín
Arnór Breki kemur með háa fyrirgjöf sem Afturelding nær að skalla burt, boltinn dettur svo á Tuma sem sendir á Bjarka Steinsen sem lætur vaða en skotið er blokkað.
22. mín MARK!
Andi Hoti (Afturelding)
Stoðsending: Aron Elí Sævarsson
Jón Vignir með aukaspyrnu ekki langt frá teignum.

Jón kemur með boltann inn í teiginn, beint á Aron Elí sem skallar boltann niður. Andi fær svo boltann sem hann þrumar svo inn.
21. mín Gult spjald: Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Enes er að fara í skyndisókn og Gummi hendir í eina góða bakhrindingu.
19. mín Gult spjald: Bart Kooistra (Afturelding)
Boltinn er í loftinu, Bart og Hlynur hoppa báðir í boltann.

Hlynur nær skallanum og Bart fer með hendina út og beint í andlit Hlyns.
18. mín
Enes var að koma sér í skyndisókn en Arnór Breki fer í seina tæklingu og tekur hann niður.
14. mín
Gummi með flotta takta við teiginn, snýr sér við tvisvar og kemur svo með fyrirgjöf en það var enginn til þess að skalal boltanum inn.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Fylkir byrja leikinn miklu betur og hafa fengið ágæt færi, vörn Aftureldingar hefur verið í smá veseni.
8. mín
Gummi Tyrfings lætur vaða langt frá, boltinn fór rétt framhjá markinu.
6. mín
Kári kemur með fyrirgjöf af hægri kantinum en Arnar Daði grípur boltann.
3. mín
Gummi er á vinstri kantinum og kemur með fyrirgjöf sem fer beint á Aron Elí sem sparkar boltanum í Andi Hoti, boltinn hrekkur af Andi og í fangið hjá Arnari Daða en þetta var hættulegt og glórulaust.
2. mín
Kári Sigfús keyrir upp hægri kantinn, cuttar inn og lætur vaða en skotið langt framhjá.
1. mín
Fylkismenn eru í hvítum og svörtum búningum, en númerin eru líka hvít sem gerir það erfitt að sjá númerin, pirrandi.
1. mín
Pétur dómari byrjaði að tala við varamannabekk Aftureldingar áður en hann flautaði startið, veit nú ekki af hverju.
1. mín
Leikur hafinn
Mosfellingar byrja.
Fyrir leik
Maggi að taka team talkið og peppa liðið við varamannabekkinn.
Fyrir leik
Það er verið að heiðra Hilmar Gunnarsson, næsta bæjarstjóra Mosfellsbæ fyrir leik.
Fyrir leik
15 min í leik Maggi var vongóður að Elmar Kári myndi spila í dag en Elmar er ekki á skýrslu, Axel Óskar er á bekknum í dag, annan leikinn í röð.

Heimir situr Birki og Eyþór Wöhler á bekkinn.
Fyrir leik
Spámaðurinn Adam Pálsson leikmaður Vals er spámaður umferðarinnar. Samkvæmt honum verður leikurinn veisla.

Afturelding 4-4 Fylkir

,,Þetta verður geðveikur leikur 4-4 og Birkir Már með öll 4 en tjokkoarnir Eyþór og Kári setja sitthvor 2 fyrir Fylki."

Fyrir leik
Dómaratríóið Pétur Guðmundsson er með flautuna í kvöld, Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú verða með flöggin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lærisveinar Heimis á toppnum Í síðustu umferð unnu Fylkir á móti Leikni 3-0 á Tekk vellinum. Gummi Tyrfings með tvö mörk og Guðfinnur Leó með eitt.

Gummi Tyrfings meiddist í byrjun móts, en er núna búin að skora þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn gegn Leikni og þá var spurt um leikinn í dag.

"Næst er það erfiður leikur á móti Aftureldingu í Mosfellsbæ og þeir hafa verið að spila vel upp á síðkastið þannig að við fögnum aðeins í kvöld og byrjum að undirbúa okkur á morgun."


Fyrir leik
Maggi vill sjá stemmingu á leiknum Í síðustu umferð fór Afturelding til Grindavíkur og unnu 1-3 úti sigur. Holtan, Aron Elí og Óðinn Bjarka með mörkin þrjú fyrir Aftureldingu. Eftir leik ræddi þjálfari liðsins Magnús Már Einarsson við Fotbolta.net um leikinn gegn Fylki.

„Ég geri ákall til allra Mosfellinga að fjölmenna, ég vill fá sömu stemningu og hefur verið í bestu leikjunum undanfarin ár, það hjálpar þeim gríðarlega í baráttunni. Ég hvet alla til að taka frá sunnudagskvöldið og mæta og styðja strákana."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar er búin að spila vel á tímabilinu. Elmar er með 4 mörk og 2 stoðsendingar, tvö af mörkum Elmars komu beint úr aukaspyrnu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar spilaði ekki gegn Grindavík þrátt fyrir að hann átti að byrja.

„Hann fann eitthvað smá til og við ákváðum að taka enga sénsa hérna á grasinu en ég er vongóður um að hann verði klár í næsta leik."


Fyrir leik
Stórleikur umferðarinnar! Það er komið að sjöundu umferð Lengjudeildarinnar.

Afturelding sem situr í öðru sæti tekur á móti Fylki sem er í fyrsta sætinu, leikurinn verður spilaður á heimavelli Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Umferðin

sunnudagurinn 31. maí
14:00 ÍR - Vestri
14:00 Völsungur - Ægir
14:00 Njarðvík - Grótta
17:00 Leiknir R. - HK
19:15 Afturelding - Fylkir

mánudagurinn 1. júní
19:15 Þróttur R. - Grindavík
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f) ('74)
6. Guðfinnur Þór Leósson
7. Máni Austmann Hilmarsson ('74)
8. Dagur Traustason ('74)
14. Tumi Fannar Gunnarsson ('74)
70. Guðmundur Tyrfingsson
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
92. Kári Sigfússon ('83)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
99. Aron Bent Hermannsson (m)
9. Eyþór Aron Wöhler ('74)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson ('74)
19. Arnar Númi Gíslason ('83)
20. Theodór Ingi Óskarsson ('74)
23. Aron Snær Guðbjörnsson ('74)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Daði Ólafsson (Leikgr.)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (MÞ)
Kristófer Sigurgeirsson (AÞ)
Ágúst Aron Gunnarsson (Liðsstj.)
Daníel Bjarki Stefánsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Guðmundur Tyrfingsson ('21)
Hlynur Sævar Jónsson ('86)

Rauð spjöld: