Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
Sólin skín og mikill vindur
Njarðvík
Njarðvík
1 - 2
Grótta
Grótta
0 - 149' Grímur Ingi Jakobsson Hrafn Guðmundsson 83'1 - 11 - 290' Axel Sigurðarson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
Frábær seinni hálfleikur að baki
Ótrúlegur 1-2 sigur Gróttu á Njarðvík.

Eftir rólegan fyrri hálfleik varð sá seinni mun betri og Gróttumenn munu fara sáttir heim og þá sérstaklega Axel Sigurðarsson eftir þetta ótrúlega mark.

Takk fyrir mig, skýrsla væntanleg.
95. mín
Njarðvík fá horn á 95 mínútu
Guy mættur inn á teiginn.

Grótta hreinsa.
Grótta
91. mín
InnPatrik Orri Pétursson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Grótta
90. mín
ÓTRÚLEGT MARK!!!!!!

Axel Sigurðarson (stoðsending: Dagur Bjarkason)

Grótta taka innkastið á Axel sem tekur illa á móti boltanum og ákveður bara að skjóta og sá hitti hann á ótrúlegan hátt sláinn, stönginn inn.
Guy Smit átti ekki séns í þetta.

Þetta verður 100% eitt af mörkum tímabilsins!
89. mín
Grótta fá horn
Taka það stutt og enda á því að fá innkast
87. mín
Oumar Diouk gerir vel að snúa af sér varnamann Gróttu og á ferðina en tekur skotið of snemma og það fer beint á Guðmund í markinu.
85. mín
Stönginn!!!
Alexander Helgi kemst inn á teig Gróttu og tekur fast skot í stöngina.

Njarðvík að ógna sigurmarkinu mikið þessa stundina.
Njarðvík
83. mín
Þeir jafna!!

Hrafn Guðmundsson (stoðsending: Arnleifur Hjörleifsson)

Leandro Fernandes kemur með frábæran bolta út á vinstri kantinn á Arnleif sem sendir boltann fyrir beint á kollinn á Hrafni sem skallar boltann í fjærhornið.

Njarðvík
79. mín
InnOumar Diouck
ÚtAron Einarsson
Fyrsti leikurinn hjá Oumar í sumar.
73. mín
Góð varsla!
Nökkvi Már með fast skot fyrir utan teig sem Guy gerir vel að verja í horn.
72. mín
Færi!!
Skyndisókn hjá Gróttu, Kristófer keyrir upp kantinn og átti sendingu inn á teig sem var ekkert sérstök en Njarðvík klaufalegir og missa leikmann Gróttu framfyrir sig sem nær skoti á markið en Guy snöggur út og ver vel.
Njarðvík
69. mín
InnHaraldur Smári Ingason
ÚtValdimar Jóhannsson
Njarðvík
69. mín
InnLeandro Fernandes
ÚtSímon Logi Thasaphong
Grótta
66. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtTristan Freyr Ingólfsson
Grótta
66. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtMattías Kjeld
64. mín
Valdimar með skot yfir rétt fyrir utan teig.
60. mín
Njarðvík að ógna!
Njarðvík gal opna vörn Gróttu og Arnleifur er komin í kjörstöðu til að leggja upp auðvelt mark en sendingin beint á Gróttumann og þeir hreinsa.
56. mín
Rólegt yfir þessu eftir markið, Njarðvík hafa aðeins verið að ógna en ekkert hættulegt.
Grótta
49. mín
Vááááááá!!!!

Grímur Ingi Jakobsson (stoðsending: Andri Freyr Jónasson)

Grótta vinna boltann í uppspili Njarðvíkur, Andri fær boltann og rennir honum á Grím sem klínir boltanum í skeytinn. Frábært skot.

Sigurjón Már var virkilega klaufalegur í aðdraganda marksins, hann heldur bolta inn á sem var á leiðinni út fyrir í markspyrnu, hleypur síðan upp völlinn og gefur boltann frá sér beint á Gróttumann.
Njarðvík
46. mín
InnSigurjón Már Markússon
ÚtFelix Lima Santos
Njarðvík gerðu skiptingu í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Grótta byrja þetta og sækja með vindinn.
45. mín
Hálfleikur
Tíðindalítill fyrri hálfleikur að baki
Bæði til hafa verið í mismundandi erfiðleikum, Njarðvík hafa átt í erfitt með sendingar á köflum og Grótta átt erfitt með vindinn.

Tökum okkur 15 mínútna pásu.
45. mín
Hálfleikur
+2 í uppbót
41. mín
Grótta fá horn eftir gott spil.
Njarðvík hreinsa.
36. mín
Björgvin Brimi liggur eftir tæklingu frá Felix Santos.
Hann stendur upp og það virðist vera í lagi með hann.
32. mín
Vel spilað hjá Gróttu.
Mattías og Tristan spila vel á vinstri kantinum, Tristan sendir boltann fyrir á kollinn á Grím sem skallar yfir.
Njarðvík
32. mín
InnHrafn Guðmundsson
ÚtFreysteinn Ingi Guðnason
Freysteinn af velli, möguleg meiðsli á hrjá hann.
30. mín
Tristan með skot fyrir utan teig sem fer hátt yfir markið.
27. mín
Njarðvík í færi.
Freysteinn fær boltann rétt fyrir utan teig Gróttu, hann sendir hann út á Arnleif Hjörleifsson sem á skot beint á Guðmund í markinu.
23. mín
Skot frá miðju!
Guðmundur stendur framarlega á sínum helming og Njarðvík reyna skot frá miðju sem Guðmundur slær í horn.

Guðmundur virðist hafað lent á stönginni og fær aðhlynningu
17. mín
Grótta með tvær fyrirgjafir í sömu sókn, í þeirri fyrra hreinsaði Eiður Aron og seinni greip Guy Smit boltann.
15. mín
Grótta aðeins að vakna!
Gróttumenn vinna sig vel upp hægri kantinn og koma með sendingu fyrir sem Njarðvíkurmenn voru ekki í vandræðum með.
11. mín
Fyrsta færið!
Grótta hreinsa hornspyrnuna en boltinn berst aftur til Njarðvíkinga sem senda boltann fyrir þar sem leikmaður Njarðvíkur kemmst í skotfæri en skýtur yfir.
10. mín
Njarðvík fá horn.
8. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu.
Grótta hreinsa eftir smá klafs í teignum.
5. mín
Njarðvík halda boltanum að mestu leiti hér í byrjun en ógna lítið.
2. mín
Öflugur leikmaður snýr til baka hjá Njarðvík
Það eru góðar fréttir fyrir Njarðvíkinga að Oumar Diouck er mættur aftur í leikmannahópinn eftir meiðsli. Hann endaði sem jafnmarkahæsti leikmaður deildarinnar í fyrra, en meiddist á hné í vetur og hefur því verið fjarri góðu gamni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Leikur hafinn
Njarðvík sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja
Liðið ganga hér inn á völlinn og gera sig klár.
Fyrir leik
Grótta
Lið Gróttu hefur verið í miklum uppgang í síðustu leikjum og þeir hafa unnið þrjá leiki af síðustu fjórum í Lengjudeildinni. Grótta sitja í 5. sæti deildarinnar eftir sex leiki.
Grótta unnu Þrótt 2-3 í Laugardalnum á síðustu helgi í mjög svo skemmtilegum leik.
Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvík koma inn í þennan leik í 6. sæti. Eftir að hafa hikstast aðeins í byrjun er liðið komið á flottan stað í deildinni og getað með sigri í dag farið yfir mótherja sína í Gróttu og kannski lengra ef úrslit umferðarinnar fara þeim í hag.
Njarðvík gerðu góða ferð vestur á Ísafjörð í síðustu umferð þar sem þeir lögðu Vestra 3-0.
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins í dag er hann Þórður Þorsteinsson Þórðarsson (ÞÞÞ) og honum til halds og traust eru Guðni Freyr Ingvarsson og Þráinn Jón Elmarsson. Eftirlitsmaður er Gunnar Helgasson.

Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson

Fyrir leik
Velkomin til Njarðvíkur
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir til Njarðvíkur þar sem leikur Njarðvíkur og Gróttu fer fram í Lengjudeildinni. Leikurinn er liður í 7. umferð deildarinnar og flautar Þórður Þorsteinsson Þórðarson til leiks klukkan 14:00 á JBÓ vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.