Leik lokið!
91. mín
Rut reynir stungu upp í horn en þar er enginn og Framkonur pikka þetta upp
90. mín
a.m.k. 2 mínútur í uppbótartíma
86. mín
ÚFFF
Líklega besta færið hjá Fram í dag, Taylor ætlar að lauma boltanum framhjá Crenshaw en sú síðarnefnda ótrúlega fljót að hugsa og stekkur á boltann,
83. mín
InnSigríður Emma F. Jónsdóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
80. mín
Ellie kemur sér flotta stöðu, á ágætis skot en Orkus grípur þennan
78. mín
Hildur Katrín reynir að finna Rakel en boltinn rennur í gegnum hana
76. mín
Gult spjald
Ellie Coffield
76. mín
Ekki slæm tilraun, fer rétt yfir vegginn en þó framhjá markinu
75. mín
Brotið á Rut rétt fyrir utan teiginn, Maci gerir sig klára að taka spyrnuna
69. mín
InnRut Sigurðardóttir
ÚtLily Anna Farkas
68. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtBrookelynn Paige Entz
68. mín
Tæknilegir örðuleikar
það er verið að uppfæra síðuna hjá okkur, datt þetta aðeins út en við erum mætt aftur
Biðst velvirðingar á þessu!
Biðst velvirðingar á þessu!
64. mín
MAAAARK!
Tinna Hrönn Einarsdóttir (stoðsending: Maci Nicole Teater)
Maci gerir vel, pikkar boltanum í gegn á Tinnu sem er bara ein og óvölduð og setur hann auðvelt niðri í fjærhornið54. mín
Sara Svanhildur komin á ferðina, skilur Natöshu eftir, mér sýnist síðan brotið á henni fyrir framan teiginn en Ásmundur dæmir ekkert, veit ekki hvort hann var að reyna að beita hagnaði eða hvað?
53. mín
Hannah McLaughlin fær frábæra sendingu inn fyrir og skorar frábært mark en flaggið fer á loft!
47. mín
Una Rós brýtur á Emmu Phillips, þær spila stutt
46. mín
Taylor Hamlett sparkar seinni hálfleiknum aftur á stað fyrir heimakonur eftir að búið er að gera við annað markið
46. mín
InnUna Rós Unnarsdóttir
ÚtHalla Helgadóttir
skipting í hálfleik
45. mín
0-1 í hálfleik fyrir gestunum í Grindavík/Njarðvík,
Þær ættu að vera svona allavega 3 mörkum yfir miðað við færin sem þær hafa fengið en Ashley Brown Orkus er að eiga stórleik í marki Fram, hefur gripið vel inn í og varið eins og vel!
Spurning hvort þær nagi sig í handarbökin að vera bara einu marki yfir en þær hafa lent í því í 2 leikjum í röð að missa 1-0 forystu niður í 1-1 jafntefli!

Hildur Katrín Snorradóttir
45. mín
Orkus!!!
Mætt bara langt út úr teig til að stoppa skyndisókn sem Ása Björg var við að komast ein í gegn en hún hikar örlítið og Orkus dúndrar þessu útaf
45. mín
Lily Farkas er komin í geggjað færi, frá mínum bæjardyrum séð steig hún Höllu bara vel út en Ásmundur hefur séð eitthvað annað og flautar brot
44. mín
ÚFFFFFF
Tinna með frábæra stungusendingu í gegn á Hildi Katrínu sem er komin ein í gegn en Ashley Orkus gerir frábærlega í að koma út á móti henni, minnka markið og verja með líkamanum hreinlega
38. mín
shiiiiiii Ashley Orkus!!!
Frábær varsla hjá henni! Hildur Katrín í daaauuuuuðafæri 9/10 skipti hefði þetta verið mark!
35. mín
Heyrðuuuu
Ása Björg kemur á fljúgandi siglingu en boltinn rétt fram hjá, náði að lauma sér fram hjá Katrínu án þess að hún tæki eftir henni
33. mín
Natasha tæææææææp
Hún er á gulu! Hún þarf að passa sig
26. mín
Isabelle reynir stungu en Emma Phillips með allt á hreinu, les þetta og er á undan í boltann, kemur honum svo á Crenshaw í markinu
23. mín
Ás Björg reynir fyrirgjöf en Orkus er í þessu og grípur þetta
22. mín
Lily Farkas!
Kemst í svakalegt færi eftir frábært einstaklings framtak en Orkus nær að setja litla putta í þetta og yfir, horn svo sem ekkert kemur úr
17. mín
Ágætis tilraun hjá Öldu setur hann á fjær honrið en Crenshaw ver vel, líklega þeirra hættulegast færi
16. mín
Gult spjald
Natasha Moraa Anasi
12. mín
Gestirnir halda áfram að ógna, Ása Björg á sprettinum en Harpa kemur þessu útaf. Horn sem ekkert út úr
11. mín
Tinna Hrönn strax komin í takt við leikinn á hér í baráttu við Höllu en boltinn út fyrir endalínu
9. mín
InnTinna Hrönn Einarsdóttir
ÚtDanai Kaldaridou
Skipting á 9. mínútu!
Þetta lítur ekki vel út, hún nær þó að haltra sjálf útaf svo vonandi er þetta ekkert alvarlegt!
8. mín
Danai Kaldaridou liggur hér eftir og fær aðhlynningu
5. mín
Ekki lengi gert!
Ellie Coffield
Rakel með hornið, Hannah McLaughlin skallar boltann og Ellie Coffield skallar frákastið svo inn!4. mín
Lilly Farkas komin í góða stöðu missir boltan áfram í teiginn en það gerir ekki til því Ása Björg er mætt og tekur skotið en varið
3. mín
Skólaus!
Hildur Emma reynir fínustu sendingu á Rakel en hún er ekki í öðrum skónum! Heldur á honum og hleypur meðan boltinn rennur útaf
2. mín
Fínt samspil hjá Freyju og Söru Svanhildi, ná að koma boltanum upp á Öldu en Natasha er nautsterk og kemst í þetta
1. mín
Lily Anna Farkas hefur leik fyrir gestina
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Leikmenn eru komnir á völlinn í þessu blíðskaparveðri!
Sól í stúkunni, ég hvet alla til að drífa sig á völlinn
Sól í stúkunni, ég hvet alla til að drífa sig á völlinn
Fyrir leik
Fanndís spáir í 8. umferðina
Fanndísi Friðriksdóttur, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, spáir í leikina í 8. umferð.

Fram 0 - 2 Grindavík/Njarðvík
Tash kemur þeim í 1-0 snemma leiks og þær skora svo seinna markið alveg í restina.

Fram 0 - 2 Grindavík/Njarðvík
Tash kemur þeim í 1-0 snemma leiks og þær skora svo seinna markið alveg í restina.
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur sitja í 7. sæti deildarinnar með 8 stig, einu stigi á undan Val í 8. sætinu, einu stigi á eftir Víking í 6. sætinu og þremur stigum á eftir Stjörnunni í 5. sæti. Það er því stutt á milli í töflunni og hver sigur telur!
Grindavík/Njarðvík fékk stóran skell gegn Breiðablik í síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið þegar þær töpuðu 0-5 á heimavelli. leikirnir þar á undan misstu þær 1-0 sigur niður í 1-1 jafntefli á lokamínútum leiksins og þar með 4 töpuð stig.
Fyrir utan það hafa þær sem nýliðar verið að sýna að þær eiga fullt erindi í þessa deild en þeim var að flestum spáð beint niður fyrir sumarið.
Eins og með Fram er spurning hvernig þær koma til leiks eftir pásuna, hvort þær mæti tvíefldar til leiks, úthvíldar og búnar að fara vel yfir hvernig á ekki að tapa forystunni á síðustu mínútum leiksins eða hvort stórt tap hafi kveikt á einhverjum efa í pásunni?

Fram
Framkonur sitja í 9. sæti með 4 stig, tveimur stigum á undan Þór/KA í 10. sætinu og þremur stigum á eftir Val í 8. sætinu.
Fram konur sýndu ágætis frammistöðu í síðustu tveimur leikjum sínum fyrir landsleikjahléið, unnu Þór/KA 3-2 en töpuðu svo 6-2 gegn FH en sýndu þrátt fyrir það að þær eiga alveg sín móment. Þær voru 1-2 yfir í hálfleik áður en FH átti frábærar skiptingar og settu í 6 gír.
Það er því spurning hvernig hléið fór í Framkonur, munu þær sýna áframhaldandi bætingar og stíga enn betur upp eða mun hléið hafa þveröfug áhrif akkúrat þegar þær voru komnar á ágætis skrið?
Við sjáum það heldur betur í dag!

8. umferðin
Eftir tveggja vikna frí fer Besta deildin aftur af stað og er öll 8. umferðin er spiluð í dag, hefjast þeir allir klukkan 14:00 fyrir utan leik Vals og Þórs/KA sem hefst klukkan 16:15 á Hlíðarenda.
8. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
14:00 Breiðablik - Stjarnan
14:00 Fram - Grindavík/Njarðvík
14:00 Víkingur R. - FH
14:00 Þróttur R. - ÍBV
16:15 Valur - Þór/KA

8. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
14:00 Breiðablik - Stjarnan
14:00 Fram - Grindavík/Njarðvík
14:00 Víkingur R. - FH
14:00 Þróttur R. - ÍBV
16:15 Valur - Þór/KA

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Jovan Subic og Ásgeir Sigurðsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og eftirlitsmaður í dag er Snorri Páll Einarsson.

Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og eftirlitsmaður í dag er Snorri Páll Einarsson.

Fyrir leik
Besta deildin kallar á ný!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Lambhagavellinum þar sem Fram tekur á móti Grindavík/Njarðvík í 8. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 14:00!

Leikurinn hefst á slaginu 14:00!

Þær voru með miklu hættulegri færi og betur spilandi í dag.
Takk fyrir samfylgdina,
viðtöl og skýrsla koma inn síðar í dag