Fotbolti.net
12.06.26 - 23:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Fanndís spáir í 8. umferð Bestu kvenna

Fanndís með dóttur sinni.

Fanndís með dóttur sinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Páll Garðarsson gerði sér lítið fyrir og var með fimm rétta þegar hann spáði í síðustu umferð Bestu deildar kvenna.

Það fer fram heil umferð í deildinni á morgun en hún er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé. Við fengum Fanndísi Friðriksdóttur, eina bestu fótboltakonu í sögu Íslands, til að spá í leikina.
Breiðablik 3 - 1 Stjarnan (14:00 á morgun)
Bryndís Arna setur 2 og Hrafnhildur Ása 1.

Fram 0 - 2 Grindavík/Njarðvík (14:00 á morgun)
Tash kemur þeim í 1-0 snemma leiks og þær skora svo seinna markið alveg í restina.

Víkingur R. 1 - 2 FH (14:00 á morgun)
Þetta verður hörkuleikur. Vikes kemst í 1-0 en FH gefst ekki upp og þær skora tvö í seinni hálfleik. Aldís lokar rammanum í seinni.

Þróttur R. 2 - 1 ÍBV (14:00 á morgun)
Þróttur rétt nær að vinna þétt lið ÍBV á lokamínútum leiksins.

Valur 1 - 1 Þór/KA (16:15 á morgun)
Eitthvað segir mér að Arna Sif skori mark með skalla í þessum leik.

Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Fáum við mörk frá Örnu Sif?

Fáum við mörk frá Örnu Sif?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Rúst í Laugardal, lið fá einkunnir og Sara komin heim

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.