Leik lokið!
90. mín
Einungis tvær mínútur í uppbótartíma.
86. mín
Enn eitt dauðafærið
Vel spilað hjá Víkingum sem komast í enn eitt dauðafærið. Daníel renndi boltanum á Ármann sem var einn gegn Viktori með boltann á hægri fæti og lét verja frá sér.
85. mín
Gult spjald
Þorri Stefán Þorbjörnsson
Straujar Jóhannes Bjarnason niður.84. mín
InnArnar Daníel Aðalsteinsson
ÚtSigurjón Rúnarsson
84. mín
Víkingar hóta því sjötta
Frábær senging inn á teiginn sem Helgi misreiknar eitthvað þar sem hann var með opið mark á fjærstönginni en hitti ekki boltann.
79. mín
0-5 NIÐURLÆGING
Helgi Guðjónsson
Helgi sendir Viktor í rangt horn og skorar af miklu öryggi.78. mín
Viktor liggur aðeins eftir og Helgi virðist ætla að fara á punktinn.
77. mín
Víkingar fá víti!
Gylfi á undan Viktori í boltann eftir aukaspyrnu Daníels og Viktor tekur Gylfa niður.
76. mín
InnMár Ægisson
ÚtHaraldur Einar Ásgrímsson
76. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtFrederico Bello Saraiva
75. mín
InnÁrmann Ingi Finnbogason
ÚtÓskar Borgþórsson
75. mín
InnJóhannes Kristinn Bjarnason
ÚtElías Már Ómarsson
69. mín
Góð hornspyrna frá Gylfa sem Niko skallar fast á markið en Viktor ver vel.
65. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
65. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtAron Elís Þrándarson
65. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
65. mín
Þrenna hjá Elíasi og tólfta mark hans í Bestu deildinni í ár.
JA HÉRNA HÉR
Elías Már Ómarsson (stoðsending: Daníel Hafsteinsson)
Enn einu sinni stórkostlegt spil gestanna sem eru að tæta Fram liðið í sig. Þeir leika sér að spila sig inn á teig Víkings og Daníel Hafsteinsson labbar framhjá Þorra Stefáni og rennir boltanum fyrir markið á Elías sem kemur á nærstöngina og laumar boltanum framhjá Viktori.Þrenna hjá Elíasi og tólfta mark hans í Bestu deildinni í ár.
62. mín
InnJakob Byström
ÚtÆgir Jarl Jónasson
61. mín
Í kjölfar hornspyrnunnar nær Oliver skalla sem fer yfir markið.
61. mín
Enn og aftur stórkostlegt spil Víkinga sem tæta í sig pressu Framara. Endar með bolta frá Óskari í gegn á Valda sem reynir að gefa fyrir en sækir hornspyrnu.
60. mín
Þetta lítur afskaplega þægilega út fyrir Víkinga sem eru að ná að róa leikinn vel niður.
57. mín
Gylfi með sjaldséð mistök og tapar boltanum sem leiðir til skotfæris hjá Frey en hann skýtur langt framhjá.
56. mín
Fred tekur spyrnuna inn á teiginn sem Róbert skallar yfir markið.
56. mín
Framarar fá hornspyrnu
52. mín
Freyr með skot framhjá marki Víkinga úr ágætis stöðu.
51. mín
Ekkert virðist geta stöðvað þetta Víkingslið.
VÍKINGAR VÍKINGAR VÍKINGAR
Elías Már Ómarsson (stoðsending: Aron Elís Þrándarson)
Frábær sókn núna upp hægri vænginn sem endar með því að Aron Elís fær nægan tíma inni á teig Framara og lyftir honum á Elías sem var ALEINN á fjærsvæðinu og klárar í fyrsta yfir hausinn á Viktori.Ekkert virðist geta stöðvað þetta Víkingslið.
48. mín
DAUÐAFÆRI
Elías Már sleppur inn fyrir og er einn gegn Viktori en lætur hann verja frá sér. Hefði getað gert út um vonir Framara hér í upphafi seinni hálfleiks.
46. mín
Við fáum skot frá Fred strax í upphafi en það er víðsfjarri markinu.
46. mín





Myndir úr fyrri hálfleik






46. mín
Gestirnir hefja síðari hálfleikinn
46. mín
InnSimon Tibbling
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
Simon Tibbling er að koma til baka eftir meiðsli. Sterkt fyrir Framara að fá hann í 45 mínútur hér í dag.
46. mín
Hálfleikur
Sannfærandi frammistaða Íslandsmeistaranna í þessum fyrri hálfleik.
Tökum okkur 15 mínútna hlé og komum ferskir í seinni hálfleikinn.
Tökum okkur 15 mínútna hlé og komum ferskir í seinni hálfleikinn.
45. mín
Tvær mínútur í uppbót.
43. mín
Gult spjald
Karl Friðleifur Gunnarsson
Brýtur á Fred.42. mín
Virkilega flott spil hjá Víkingum sem leiða 0-2 mjög verðskuldað.
ÞETTA ER LANGBESTA LIÐ DEILDARINNAR
Elías Már Ómarsson (stoðsending: Óskar Borgþórsson)
Fáranlega vel spilað hjá Víkingsliðinu. Spila sig í gegnum pressu Framara aftast á vellinum og Daníel kemur síðan með langan bolta á Kalla sem var í frábæru hlapi. kalli leggur hann á Óskar sem kemur með fullkomna fyrirgjöf á Elías sem potar boltanum inn.Virkilega flott spil hjá Víkingum sem leiða 0-2 mjög verðskuldað.
41. mín
Góð fyrirgjöf frá Valdimari sem Aron Elís skallar yfir markið úr fínni stöðu.
38. mín
Dauðafæri Víkinga
Spila mjög vel upp vinstri kantinn og boltinn endar hjá Aroni sem kemur boltanum á Helga sem er inni í markteignum en skallar boltann yfir. Þurfti að teygja sig í hann.
Víkingar hafa tekið öll völd eftir markið.
Víkingar hafa tekið öll völd eftir markið.
36. mín
Gult spjald
Haraldur Einar Ásgrímsson
Brýtur á Óskari sem liggur aðeins eftir.35. mín
Frábær útfærsla Víkinga!
Stutt horn frá Víkingum sem spila virkilega vel og Daníel Hafsteinsson fær frítt skot á D-boganum en skýtur fram hjá markinu.
Þetta var teiknað upp á æfingasvæðinu.
Þetta var teiknað upp á æfingasvæðinu.
32. mín
Fyrsta alvöru færi leiksins endar með marki.
Fyrsta markið!
Aron Elís Þrándarson (stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson)
Góð sókn Víkinga endar með marki frá Aroni. Helgi Guðjóns kemur með góðan bolta á fjærsvæðið þar sem Kalli vinnur skallaeinvígi við Halla og kemur boltanum á Aron Elís sem klárar í þaknetið af stuttu færi.Fyrsta alvöru færi leiksins endar með marki.
30. mín
Hálftími liðinn og enn bíðum við eftir fyrsta alvöru marktækifærinu.
27. mín
Framarar halda áfram með sama leikplan úr öllum markspyrnum. Þeir taka stutt til vinstri og Þorri Stefán lúðrar boltanum í hlaupalínuna fyrir Róbert sem eltir með Oliver í bakinu. Hingað til hefur þetta ekki verið að takast.
24. mín
Israel í brasi!
Langt spark frá Aroni í marki Víkings sem Israel hittir hrikalega með vinstri fætinum og boltinn nærri því inn í markið af 40 metrum. Víkingar fá horn.
24. mín
Starfsmenn Fram með allt á hreinu og þetta er komið aftur af stað.
22. mín
Vesen á netinu í marki Víkings og vallarstarfsmenn reyna að laga þetta. Smá hlé sem hefur verið gert og bæði lið taka stuttan liðsfund.
21. mín
Vesen á teig Víkings. Framarar sækja upp vinstri kantinn og boltinn kemur inn á markteiginn og Sveinn Gísli fær hann í legginn og aftur fyrir endamörk. Nálægt því að gera sjálfsmark.
20. mín
Helgi tekur hornspyrnuna en hún fer yfir markið og aftur fyrir.
19. mín
Fyrsta skot Víkings á Daníel sem er fyrir utan teig en það fer í Kennie og fyrsta hornspyrna leiksins er gestanna.
17. mín
Víkingar hafa haldið vel í boltann síðustu mínútur en við bíðum enn eftir marktilraun frá þeim.
12. mín
Elías sækir aukaspyrnu utan að kanti sem Gylfi undirbýr sig að setja inn á teiginn. Stúkan virkilega ósátt við þennan dóm.
10. mín
Góður bolti inn á teiginn frá Vuk Oskari inn í hættusvæðið en Oliver nær að hreinsa honum burt.
6. mín
Framarar sækja hratt og Róbert kemur boltanum á teiginn sem Aron grípur en missir aðeins frá sér en handsamar hann þó aftur.
4. mín
Róbert á fyrsta skot leiksins sem kom í kjölfar aukaspyrnunnar en framhjá fór boltinn.
3. mín
Gylfi brýtur á Fred og Framarar fá aukaspyrnu sem þeir ætla að setja inn á teiginn.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn hefja leik.
Fyrir leik
Kristófer Konráðsson að eignast barn
Kristófer var að eignast barn og er því ekki í hóp hjá Fram í kvöld. Við óskum honum innilega til hamingju með það!
Fyrir leik
Aðstæður fínar
Stefnir allt í frábært kvöld af fótbolta hér í Úlfarsárdalnum. Það er skýjað og aldrei að vita hvort við fáum smá úða er líður á kvöldið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Lið kvöldsins dottin í hús og bæði lið neyðast til þess að gera breytingar en Atli Þór má ekki spila í kvöld þar sem hann er á láni frá Víkingum.
Smávægileg meiðsli eru að hrjá Gunnar Vatnhamar og hann því ekki í hóp hjá Víkingum.
Smávægileg meiðsli eru að hrjá Gunnar Vatnhamar og hann því ekki í hóp hjá Víkingum.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Víkingurinn Tómas Guðmundsson spáir leikjum 11. umferðarinnar en hann spáir að sjálfsögðu sigri gestanna í kvöld.


Fyrir leik
,,Allir fjölmiðlar landsins vanmátu Rúnar"
Valtýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður og Framari var í samtali við Fótbolta.net í aðdraganda stórleik kvöldsins. Valtýr fór yfir víðan völlinn og ræddi meðal annars árangur Rúnars með Fram liðið.

Hægt er að lesa fréttina hér en Valtýr ræddi andann í Fram stuðningsmönnum ásamt því að fara yfir leik kvöldsins meðal annars.

Hægt er að lesa fréttina hér en Valtýr ræddi andann í Fram stuðningsmönnum ásamt því að fara yfir leik kvöldsins meðal annars.
Fyrir leik
Daði Berg fer yfir stöðuna
Daði Berg Jónsson, leikmaður Víkings, var í samtali við Fótbolta.net og ræddi ýmsa hluti þar. Hann hefur verið frá í eitt ár vegna erfiðra meiðsla en fyrri parts síðasta tímabils sló hann í gegn hjá Vestra, þar sem hann var á láni frá Víkingum.

Daði segir Víkingsliðið vera reynslunni ríkari í ár og að liðið sé á frábærum stað.

Daði segir Víkingsliðið vera reynslunni ríkari í ár og að liðið sé á frábærum stað.
Fyrir leik
Heimamenn sjóðandi heitir
Framarar koma einnig á fljúgandi siglingu inn í leik kvöldsins en liðið hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum og gert eitt jafntefli sem kom gegn þá taplausum KR-ingum. Með sigri fara Framarar upp fyrir KR í annað sæti deildarinnar og saxa á forskot Víkinga.


Fyrir leik
Gestirnir á þvílíkri siglingu
Víkingar hafa unnið alla leiki nema einn á þessu tímabili og ekkert virðist geta stöðvað þá um þessar mundir. Þeir eru með sex stiga forskot á toppi deildarinnar og komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Víkirnarnir verða einnig í forkeppni Meistaradeildarinnar sem hefst í júlí en ljóst er að liðið sé á ansi góðum stað.


Fyrir leik
Dómarateymið
Sigurður Hjörtur Þrastarson fær það hlutverk að dæma stórleikinn en honum til aðstoðar verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Kristján Már Ólafs. Guðmundur Páll Friðbertsson er fjórði dómari og Þórður Georg Lárusson er dómaraeftirlitsmaður.


Fyrir leik
Salatið heilsar!
Sæl öll og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu fyrir stórleik Fram og Víkings sem fer fram á Lambhagavelli í 11. umferð Bestu deildar karla.









Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Ég þakka fyrir mig.