Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetHafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
3 - 1
KA
KA
Ágúst Orri Þorsteinsson 58'1 - 01 - 163' Birgir BaldvinssonÓli Valur Ómarsson 74'2 - 1Arnar Bjarki Gunnleifsson 85'3 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
Takk kærlega fyrir mig!! Frábær leikur að baki, viðtöl og skýrsla koma á eftir!
93. mín
Aron Bjarna aftur kominn í gegn. Sendir í þetta sinn á Viktor Karl sem nær skotinu framhjá Stubbi en þeir hreinsa svo
93. mín
580 manns hér á Kópavogsvelli í kvöld
92. mín
Varnarmaður KA hendir sér niður, en ÞÞÞ segir ekkert á þetta og Jónatan Guðni tekur sprettinn. Tekur síðan skot en það fer af varnarmanni í horn. Þeir ná hins vegar ekki að nýta sér þetta horn
91. mín
Dómarinn bætir þremur við
90. mín
Horn fyrir KA
Léleg spyrna og Blikar hreinsa
89. mín
Grímsi með skot sem skoppar eitthvað en Anton Ari gerir vel að verja þetta
Breiðablik
86. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtArnar Bjarki Gunnleifsson
Breiðablik
86. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
Breiðablik
85. mín
MAAAARK!

Arnar Bjarki Gunnleifsson (stoðsending: Aron Bjarnason )

Arnar klárar þetta fyrir Blika!! Fær boltann frá Aron og skorar sitt fyrsta meistaraflokksmark!!!
83. mín
KA
83. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
82. mín
Dauðafæri fyrir Birgi aftur!!! Hefði getað jafnað þetta fyrir KA en skýtur honum í hliðarnetið!
81. mín
Aron Bjarna aftur í dauðafæri, fær frábæran bolta en þar er varnarmaður KA mættur til að koma sér í veg fyrir þetta skot, og Blikar fá horn
Breiðablik
79. mín
DAUÐAFÆRI

Emil Pálsson

Aron reynir fyrirgjöfina á Arnar Bjarki sem hittir hann ekki almennilega, en hann er tæklaður í miðju skoti. Emil Páls alls ekki sáttur og vill fá vítaspyrnu dæmda og nælir sér í gult!
KA
77. mín
Gult spjald

Markús Máni Pétursson

Markús að næla sér í gult. ÞÞÞ vill meina að han nfer aðeins of harkalega í hliðina á Ágústi
Breiðablik
74. mín
GÆÐI

Óli Valur Ómarsson (stoðsending: Viktor Karl Einarsson)

VÁ! ÞVÍLÍK GÆÐI Í ÞESSU MARKI!! ÓLI FÆR BOLTANN FRÁ VIKTORI, NÆR AÐ LEIKA Á VARNARMANN, TEKUR SÍÐAN SKOTIÐ SEM STUBBUR REYNIR EKKI EINU SINNI AÐ SKUTLA SÉR Í!! 2-1!!
KA
71. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtOliver Heiðarsson
Tvöföld skipting hjá KA. Djuric loksins búinn að tikka smá inn.
KA
71. mín
InnJóan Símun Edmundsson
ÚtDanijel Dejan Djuric
Breiðablik
71. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtGabríel Snær Hallsson
68. mín
KA-menn búnir að kveikja´í sér eftir þetta mark. Búnir að vera pressa á Blikana svakalega
Breiðablik
64. mín
InnKristinn Jónsson
ÚtÍvar Örn Árnason
KA
63. mín
ÞEIR JAFNA

Birgir Baldvinsson (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)

SVAKALEG SENDING FRÁ DJURIC!! TRIVELA SENDING Á BIRGI SEM RÉTT NÆR AÐ POTA HONUM INN MEÐ TÆKLINGU
62. mín
Menn eru að renna soldið hérna. Greinilega vökvað vel og lengi
61. mín
Hallgrímur með aukaspyrnu fyrir KA, flottur bolti inn en leikmaður KA dæmdur rangstæður af Ronnarong
Breiðablik
58. mín
1-0 BLIKAR!!!!!!!!

Ágúst Orri Þorsteinsson

Ágúst Orri fær frábæran bolta! Spænir síðan upp völlinn og leikur á MArkús Mána í leiðinni. Skýtur hnettinum svo í gegnum klofið á Stubbnum!! 1-0!!
55. mín
Djuric brýtur á Ágúst og ÞÞÞ dæmir aukaspyrnu. Stuðningsmenn Blika alls ekki sáttir og vilja láta spjalda hann
53. mín
Horn fyrir Blika
Einhver darraðardans hérna en Djuric fær boltann í skyndisókn. Reynir langan bolta inn í teig á Hallgrím Mar sem tekur hann í fyrsta, en hann hreinlega þrusar honum í innkast!
48. mín
Frábært skot!
Aron Bjarna fær fínan bolta rétt fyrir utan D-bogann. Tekur skotið sem er fast en hann fer rétt framhjá
46. mín
Ívar Örn og Oliver lenda saman í tæklingu. Þetta hefur ekki verið þægilegt
46. mín
Heimamenn sparka seinni af stað.
Sýnist hvorug lið hafa gert breytingar.
45. mín
+3
Djuric með aukaspyrnu í lok fyrri hálfleiks sem þeir ná ekki að nýta vel
45. mín
+1
Horn fyrir KAþ Þeir ná ekki að nýta sér þetta og Blikar hreinsa
45. mín
+1
Dómarinn bætir tveimur mínútum við
Breiðablik
44. mín
Gult spjald

Ívar Örn Árnason

Ívar nælir sér í gult fyrir að rífa í Svein Margeir. ÞÞÞ virðist ekki ætla dæma á þetta og ætlar að láta leikinn halda áfram en dæmir svo aukaspyrnuna
43. mín
Nú eru KA-menn brjálaðir. Kári virðist snerta bara boltann þegar hann keyrir á leikmann Blikanna, en ÞÞÞ dæmir aukaspyrnu. Stuðningsmenn KA alls ekki sáttir með þetta
42. mín
Horn fyrir Blika
Viktor fær boltann frá Ívari á vinstri væng í aðdraganda hornsins, hann reynir að sneiða sér framhjá Kára en hann kemur með mjög snyrtilega tæklingu og boltinn fer út í horn. Blikar ná hinsvegar ekki að nýta sér það.
40. mín
Horn fyrir KA
Anton Ari kýlir frá, KA menn fá boltann til baka og reyna sendingu inn en boltinn alltof fastur og auðvelt fyrir Anton að grípa þennan bolta
40. mín
Djuric ætlaði að reyna sömu takta og Arnar Bjarki snemma í leiknum, en hann fær háan bolta og reynir hjólhestinn en hreinlega hittir hann ekki!
KA
38. mín
InnKári Gautason
ÚtSamuel Karl Kroon
Samuel hefur lokið leik og Kári Gautason kemur inná
37. mín
Samuel þarf að fara útaf en hann sest niður og tekur af sér legghlífarnar. Virðist bara vera alveg búinn
36. mín
Þarna munaði litlu!
Hans Viktor með slaka sendingu á Jeppe sem nær ekki að taka á móti honum. Arnar Bjarki er þar mættur og tekur skotið en hann fer hátt yfir
34. mín
Frábær sending frá Ívari Erni á Aron Bjarna sem er með geggjaða snertingu! Reynir að koma honum inn í teig en Stubbur grípur þetta auðveldlega
31. mín
Stubbur þarf aðhlynningu
Mikill darraðardans í teignum og það virðist einhver fari með fótinn í hausinn hans Steinþórs. Hann er samt ekki lengi að jafna sig á þessu og leikurinn heldur áfram!
29. mín
Arnar Bjarki fær boltann, nær aðeins að hlaupa með hann, setur hann síðan á Viktor Karl, reynir skotið utan af teig en hann fer framhjá
24. mín
Stubburinn með mistök! Nær ekki að kýla frá sér boltanum! Boltinn endar síðan á Gabríel Snæ sem skýtur í varnarmann og út!
23. mín
Horn fyrir Blika
Aron Bjarna með frábæra skiptingu yfir á hægri kant á Ágúst Orra, hann reynir síðan skotið en hann fer af varnarmanni og út í horn
KA
20. mín
Gult spjald

Sveinn Margeir Hauksson

Glæfraleg tækling hjá Sveini. Hrienlega klippir Ágúst Orra niður. Réttilega dæmt hjá ÞÞÞ
17. mín
Færi fyrir KA
Samuel Kroon nær stuttum bolta á Djuric, sem reynir sendingu. Sýnist það vera Oliver Heiðars sem fær boltann eftir sendinguna og en hann á mislukkað skot framhjá
16. mín
Lítið gerst eftir hornið. Blikar verið meira með boltann fyrsta korterið
10. mín
Horn fyrir Breiðablik
Mikið fát í teig KA. Arnar Bjarki reynir skalla en fljótlega fer boltinn út í annað horn
8. mín
Váááááa
Óli Valur fær boltann eftir fyrirgjöf, nær að slíta sér frá varnarmanni, og reynir síðan rándýrt trivela! Boltinn fer rétt framhjá! Þetta hefði verið af dýrari gerðinni
7. mín
KA með færi
Oliver Heiðars fær boltann á hættulegum stað! Nær að leika á einn, reynir skotið en það er laflaust og rúllar beint að Antoni Ara
6. mín
Liðin skiptast á færum! Ágúst Orri komst í gegn, reyndi fyrirgjöf en það mislukkaðist. Boltinn færist svo yfir á hinn vallarhelminginn en þar kemur fyrirgjöf í teig Blika sem þeir ná að hreinsa svo
3. mín
Dauuuuuðafæri!!!! Arnar Bjarki var með svakalega hjólhestaspyrnu!! Held að helmingur stúkunnar hafi haldið að boltinn fór inn!!
1. mín
KA sparkar þessu af stað!! Góða skemmtun!!
Fyrir leik
Hér er verið að heiðra Anton Ara, en hann hefur spilað 250 leiki fyrir Breiðablik! Merkur áfangi og innilegar hamingjuóskir!
Fyrir leik
Liðin mætt út á völl! Nú fer þessi veisla senn að hefjast!
Fyrir leik
Verð að gefa risa hrós á blikar.is! Þeir eru með frábæra umfjöllun fyrir þennan leik, allar innbyrðis viðureignir líka! Djöfull kann ég að meta það!
Fyrir leik
Ívar Örn byrjar
Ívar Örn mun byrja fyrsta leik sinn gegn sínum gömlu liðsfélögum í KA! Spurning hvort hann fái hlýjar móttökur eða hvort hann verður látinn finna fyrir því á vellinum!
Fyrir leik
Kristalkúlan fagra hefur tjáð sig!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin!
Byrjunarliðin eru kominn inn í hús! Kristófer Ingi og Davíð Ingvars eru ekki með í dag, og Djuric byrjar fyrir KA.
Fyrir leik
Umdeilt atvik
Í leik KA gegn Fram í seinustu umferð var dæmt löglegt mark af KA í stöðunni 1-1. Sæbjörn Steinke talaði við dómarastjóra KSí, Þórodd Hjaltalín, eftir leikinn. Elías Ingi, dómari leiksins mat það svo að leikmaður KA hafi brotið á markmanni Fram en svo var ekki. „Elías Ingi tekur ranga ákvörðun, metur þetta vitlaust. Það verður að segjast eins og er að það er enginn KA-maður sem brýtur á markmanninum. Þetta er röng ákvörðun. Hann er að flauta á atvik sem gerist áður en Birgir fær boltann, dæmir á að KA-maðurinn sem stendur fyrir framan markmanninn haldi í hann og hindri hann í að komast út í boltann. Ég var eftirliti á leiknum og eins og ég sagði við Elías þá get ég ekki séð að það sé neitt leikbrot og Elías er alveg sammála því þegar hann sér þetta aftur, lítur öðruvísi út en upplifun hans var. Það var ekkert leikbrot þarna," sagði Þóroddur.
Fyrir leik
Seinustu leikir
Blikar fóru í heimsókn í Garðabæ og gerðu 4-4 markasúpujafntefli! Blikarnir komust í 0-3 en Emil Atlason minnkaði muninn í 2-3 og þannig stóð í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik skoraði Kristófer Ingi fjórða mark Breiðabliks en Birnir Snær jafnaði metin á 80. mínútu og þannig fór leikur sá! KA fengu sjóðheita Framara í heimsókn í seinustu umferð. Í hálfleik var staðan 2-3 fyrir Fram en Sveinn Margeir náði að koma KA í 2-1 eftir 18 mínútur. Allt varð þó fyrir ekki og Fram sigraði leikinn 3-4 sem gerði það að þriðja tapleik KA í röð.
Fyrir leik
Spá leiksins
Tómas Guðmunds, fyrrum leikmaður Víkings ,var fenginn til að spá í spilin fyrir 11. umferðina og hafði þetta að segja um leikinn á Kópavogsvellinum. Breiðablik 2 - 2 KA (18:00 í dag) Þetta er alltaf X leikur. Djuric er búin að finna hnífasettið og er alltaf að fara setja allavega 2 mörk fyrir KA menn.
Fyrir leik
Staða liðanna
Breiðablik situr í 4. sæti deildarinnar eftir 10 leiki með 16 stig. Aðeins sex stig skilja Blika og KA, en KA situr í 9. sæti með aðeins 10 stig eftir 10 leiki. Blikar hafa sigrað fjóra leiki, gert fjögur jafntefli og tapað tveimur. KA hafa sigrað þrjá, gert eitt jafntefli og tapað sex.
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Þórður Þorsteinsson Þórðarson. Aðstoðardómararnir eru Ragnar Þór Bender og Ronnarong Wongmahadthai og fjórði dómari er Brynjar Þór Elvarsson. Eftirlitsmaður er Kristinn Jakobsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin í Kópavog!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik og KA munu mætast í 11. umferð Bestu Deildar karla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.