Fotbolti.net
Gylfi Már Þórðarson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Skýjað, 12°C og léttur andvari. Fyrirtaks aðstæður til knattspyrnu
Grótta
Grótta
2 - 5
Fylkir
Fylkir
Björgvin Brimi Andrésson 8'1 - 0Mattías Kjeld 23'2 - 02 - 149' Guðmundur Tyrfingsson2 - 257' Aron Snær Guðbjörnsson2 - 359' Máni Austmann Hilmarsson2 - 467' Kári Sigfússon2 - 583' Guðmundur Tyrfingsson
Dómari: Elías Ingi Árnason
Leik lokið!
Sigur Fylkis staðreynd
Viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld
90. mín
+3
Þetta er að fjara út hérna hjá okkur
Fylkir
84. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
Fylkir
83. mín
MAAAARK!

Guðmundur Tyrfingsson

Slök sending úr vörn Gróttu í þetta sinnið sem Dagur Traustason kemst inn í. Hann sendir boltann fyrir á Guðmund Tyrfingsson sem rennir boltanum í netið með snoturri hælspyrnu.

Nú er það bara spurning hversu stór sigurinn verður
Fylkir
80. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
Tvöföld breyting
Fylkir
80. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
Grótta
76. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtHalldór Hilmir Thorsteinson
Grótta
75. mín
InnAlexander Emil Stefánsson
ÚtAndri Freyr Jónasson
og Gróttumenn gera sömuleiðis breytingu
Fylkir
75. mín
InnDagur Traustason
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
Fylkismenn gera breytingu
73. mín
Ólafur ver enn!
Góð sókn Gróttu endar með skoti Björgvins Brima en Ólafur ver, sem fyrr, mjög vel í horn.
Fylkir
67. mín
Þeir eru að fara langt með þetta!

Kári Sigfússon

Fylkismenn keyra upp völlinn eftir álitlega sókn Gróttu. Boltinn berst upp hægri kantinn og kemur frábær fyrirgjöf frá hægri sem Kári Sigfússon skallar virklega vel í netið.
Grótta
65. mín
InnHrannar Ingi Magnússon
ÚtViktor Orri Guðmundsson
Tvöföld breyting hjá Gróttu
Grótta
65. mín
InnPatrik Orri Pétursson
ÚtKristján Tómas Björnsson
63. mín
Nú eru það Gróttumenn
Tvö skot á stuttum tíma frá Mattíasi Kjeld og Björgvin Brima sem Ólafur ver vel. Þeir eru að ná vopnum sínum aftur eftir afleita byrjun á seinni hálfleik.
Grótta
59. mín
Fyrsta gula

Kristján Tómas Björnsson

Fyrir groddaralega tæklingu úti á velli
Fylkir
59. mín
ÞEIR ERU BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSU VIÐ!

Máni Austmann Hilmarsson

Það tók ekki langan tíma, eftir tæpt korter í seinni hálfleik eru Fylkismenn komnir í forustu! Allt í einu var Máni kominn með boltann aleinn inni í teig og skorar næsta auðveldlega framhjá Guðmundi. Ótrúlegur viðsnúningur!
Fylkir
57. mín
Fylkismenn jafna!

Aron Snær Guðbjörnsson

Frábær hornspyrna inn á miðjan teiginn. Þar reis Aron Snær hæst allra og skallaði boltann í hornið vinstra megin. Frábær skalli og allt orðið jafnt!
52. mín
Meira af því sama
Seinni hálfleikur byrjar keimlíkt þeim fyrri. Fylkismenn með boltann og Grótta reynir að sækja hratt.
Grótta
50. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtGrímur Ingi Jakobsson
Skipting í hálfleik
Gróttumenn gerðu skiptingu í hálfleik.
Fylkir
49. mín
Feykilega öruggt

Guðmundur Tyrfingsson

Fastur bolti í þaknetið. Guðmundur átti ekki möguleika í þennan.
48. mín
Víti!
Fylkismenn fá víti! Klaufalegt brot inni í teig Gróttu. Hárrétt dæmt.
Fylkir
46. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtHlynur Sævar Jónsson
Fylkismenn gera breytingu í hálfleik
46. mín
Leikur hafinn
Fylkismenn sparka þessu aftur af stað
Þeir leika í átt að Bakkagarði, Gróttumenn sækja að sundlauginni.
45. mín
Hálfleikur
Staðan 2-0
Skemmtilegur leikur og ég sé ekki betur en að planið hjá Gróttu sé að ganga upp, allavega hingað til.

Við sjáumst eftir korter
45. mín
Tumi fannar vel á verði
+1
Andri Freyr sóknarmaður Gróttu var kominn í mjög góða stöðu, en Tumi lokaði á hann, ýtti honum út úr teignum og gerði eiginlega allt nema að breiða yfir hann sængina fyrir nóttina. Virkilega góður varnarleikur.
42. mín
Tristan... já og Ólafur!
Snögg sókn Gróttu. Björgvin Brimi fær boltann úti til vinstri og kemur með eitraða þversendingu beint á D-bogann þar sem Tristan kom askvaðandi og átti hörkuskot í fyrsta en það var glæsilega varið af Ólafi Kristófer í marki Fylkis
36. mín
Frábær sprettur Theodórs Inga
Tók tvo menn á og átti svo hörkuskot sem fór af varnarmanni og í horn. Hornspyrnuna skalla Gróttumenn frá
34. mín
Fylkismenn ógna
Enn er það Kári sem er upphafsmaður sókna hjá Fylki. Frábær fyrirgjöf, föst á nær sem Birkir Eyþórsson skallar rétt framhjá
30. mín
Rúnar Páll er ekki sáttur
Fylkismenn sækja, og koma sér í gott færi. Boltinn dettur fyrir framan markteiginn og nær Guðmundur Rafn hönd á boltann og skellur saman með sóknarmanni Fylkis. Elías Ingi lætur leikinn halda áfram og tekst varnarmönnum Gróttu að bægja hættunni frá með Guðmund liggjandi óvígan í teignum.
Þarna vildi Rúnar fá eitthvað meira en ekkert.
27. mín
Flottar mínútur hjá Gróttu
Nú var það Viktor Orri Guðmundsson sem skeiðaði með boltann um 60 metra alla leið að vítateig Fylkis, fann Andra Frey á sína hægri sem átti skot sem Ólafur varði í horn.

Úr horninu kom ekkert
24. mín
Sláin!
Á meðan ég skrifa um markið fellur boltinn ofan á slánna hjá Fylki eftir fyrirgjöf/skot. Þarna mátti litlu muna!
Grótta
23. mín
Gróttumenn tvöfalda!

Mattías Kjeld

Skelfileg sending til baka á Ólaf í markinu frá að mér sýndist Arnóri Breka. Matthías Kjeld kemst inn í sendinguna sendir boltann framhjá Ólafi og vinnur svo kapphlaupið við Arnór og treður boltanum yfir línuna!
19. mín
Betra frá Gróttu
Náðu að tengja nokkrar sendingar saman án þess þó að ógna marki Fylkis af nokkru viti.
17. mín
Lúmskt skot Kára
Kári Sigfússon fær boltann á vítateigshorninu hægra megin og á lúmska vippu sem fer rétt yfir markið.
16. mín
Enn eru það Fylkismenn sem eru mikið mun meira með boltann án þess þó að skapa sér færi. Gróttumenn halda áfram að freista þess að vinna boltann og sækja hratt.
12. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað
Viktor Orri brýtur á Kára Sigfússyni rétt fyrir utan vítateig. Hér er skotfæri.

Arnór Breki Ásþórsson tekur skotið. Það er fast meðfram jörðinni en Guðmundur Rafn á í engum vandræðum með það.
Grótta
8. mín
MAAAAAARRRKK

Björgvin Brimi Andrésson

Glæsileg skyndisókn Gróttu! Gróttumenn vinna boltann á miðjum vallarhelmingi sínum úti við hliðarlínu vinstra megin. Þá tekur Björgvin Brimi á rás upp völlinn, rekur boltann alla leið frá miðlínu og inn í vítateig Fylkismanna og leggur hann snyrtilega í hægra hornið. Það eru ekki margir í þessari deild sem eru betri en hann einn á móti markmanni, ég fullyrði það.
3. mín
Hætta við mark Gróttu
Theodór Ingi átti góða fyrirgjöf frá hægri á Mána Austmann sem átti skot að marki sem var varið á línu og hreinsað í horn. Upp úr horninu vörðu Gróttumenn aftur á línu en skallinn var laus. Fylkir halda pressunni hér í upphafi
1. mín
Leikur hafinn
Gróttumenn sparka þessu af stað
Fyrir leik
Tvær mínútur í leik
Liðin ganga hér inná völlinn undir ljúfum tónum Bubba Morthens. Áhorfendur streyma sömuleiðis inn á völlinn. Þetta er að bresta á!
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá Fylki
Heimir Guðjónsson þjálfari Gróttu gerir sömuleiðis breytingar frá síðasta leik. Birkir Eyþórsson, Bjarki Steinsen Arnarsson og Kári Sigfússon byrja allir. Dagur Traustason og Nikulás Val Gunnarsson tylla sér á bekkinn. Orri Sveinn Segatta hefur fengið fjögur gul spjöld í sumar og er því í banni í kvöld.
Fyrir leik
Tvær breytingar hjá Gróttu
Rúnar Páll gerir tvær breytingar á byrjunarliði Gróttu frá tapinu í síðasta leik. Þeir Axel Sigurðarson og Emil Skúli Einarsson taka sér sæti á bekkinn og í þeirra stað koma Viktor Orri Guðmundsson og Kristján Tómas Björnsson
Fyrir leik
Síðasta viðureign liðanna
Liðin mættust í Mjólkurbikarnum 13. júní síðastliðinn í frábærum leik.
Tristan Freyr Ingólfsson kom Gróttu yfir í fyrri hálfleik með glæsilegu marki en skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma varð Caden McLagan, varnarmaður Gróttu, fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og þurfti því að framlengja. Í framlengingunni kom Aron Snær Guðbjörnsson Fylki yfir en Caden McLagan kvittaði fyrir sjálfsmarkið og skoraði í rétt net til að jafna leikinn á ný. Á lokasprettinum voru Fylkismenn sterkari og skoruðu Orri Sveinn Segatta og Kári Sigfússon sitt hvort markið.
Leikar enduðu því 4-2 og Fylkismenn mæta Aftureldingu í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þetta árið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Flautuleikari dagsins
Elías Ingi Árnason er dómari í dag og honum til aðstoðar eru þeir Mikael Ívan Axelsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Andri Júlíusson spáir í spilin
Skagamaðurinn Andri Júlíusson spáir í 10. umferð Lengjudeildarinnar

Grótta 3 - 2 Fylkir (19:15 á sunnudag)
Virkilega hrifin af þessu Gróttuliði og þeir halda áfram að koma á óvart, Kjeld, Björgvin koma Gróttu í 2-0 en seiglan í Guðfinni og Slátraranum Hlyni Sævari jafna svo setur Tristan sigurmark í andlitið Fylkismönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Grótta
Gróttumenn eru í 8. sæti Lengjudeildarinnar fyrir leik með 12 stig. Eftir þrjá góða sigra í röð lutu þeir í lægra haldi gegn ÍR á Þarfaþingsvellinum í síðustu umferð. Einar Tómas Sveinbjarnarson skoraði mark Gróttu í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Fyrir leik
Fylkir
Fyrir leik sitja Fylkismenn í öðru sæti deildarinnar með 18 stig, einungis einu stigi á eftir toppliði Þróttar.

Í síðasta leik, á þjóðhátíðardaginn 17. júní, gerðu Fylkismenn sér góða ferð til Grindavikur þegar þeir sigruðu heimamenn 0-1 með marki Kára Sigfússonar og komu sér þar með aftur á sigurbraut eftir tvö töp í röð í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Verið velkomin á Vivaldivöllinn
Klukkan 19:15 tekur lið Gróttu á móti Fylki í 10. umferð Lengjudeildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.