Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Sól og blíða.
ÍBV
ÍBV
2 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 11' Benedikt V. WarénSesar Örn Harðarson 28'1 - 1Bjarki Björn Gunnarsson 32'2 - 1
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Leik lokið!
Baráttusigur Eyjamanna
ÍBV vinnur 2-1 í baráttuleik og þar með sinn þriðja sigur í röð í deildinni.

Viðtöl og skýrsla koma síðar. Takk fyrir!
95. mín
Birnir Snær með skot hátt yfir markið úr ágætis færi inn á teignum.
95. mín
Omar við það að sleppa í gegn en Arnar Breki verst vel á móti honum og fær svo aukaspyrnu í kjölfarið.
93. mín
Stjarnan leitar að jöfnunarmarki en þetta er hálf bitlaust hjá þeim.
90. mín
+5 í uppbótartíma.
89. mín
Omar nálægt því að sleppa einn í gegn en vel gert hjá Árna Snæ sem er kominn langt út úr markinu til að hreinsa í burtu.
86. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Stjörnunnar. Pisco kom með fyrirgjöf úr henni en flaggið fór á endanum á loft.
Stjarnan
84. mín
Gult spjald

Alex Þór Hauksson

84. mín
ÍBV vilja vilja!!!
Omar kemst einn í gegn og virðist vera dreginn niður í þann mund sem hann nær skotinu, sem fór í stöngina.

Eyjamenn brjálaðir að fá ekki víti. Þetta er klárt víti að mínu mati.
83. mín
Arnar Breki fékk sendingu frá Halldóri Jóni og keyrir að teignum. Hann lætur bara vaða en skotið hans er framhjá markinu.
82. mín
Daníel Finns með fyrirgjöf frá hægri sem Ari grípur auðveldlega.
81. mín
Darraðadans á teig Eyjamanna eftir hornspyrnu sem endar í annarri hornspyrnu.
81. mín
Daníel Finns tók spyrnuna fyrir Stjörnuna fór í vegginn og yfir markið.
ÍBV
80. mín
InnVitor Hugo Cruz Rocha
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
ÍBV
80. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
79. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig ÍBV.
77. mín
Flott upphlaup hjá ÍBV. Viggó kemur með boltann inn fyrir á Omar en Guðmundur gerir vel á móti honum og kemur boltanum í innkast.
76. mín
Daníel Finns með misheppnaða fyrirgjöf frá vinstri, beint aftur fyrir.
ÍBV
74. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtRóbert Elís Hlynsson
ÍBV
74. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtSesar Örn Harðarson
73. mín
Daníel Finns með skot fyrir utan teig en það er nánast beint á Ara og engin hætta.
Stjarnan
72. mín
Gult spjald

Daníel Finns Matthíasson

70. mín
Fjórföld skipting hjá gestunum!
Stjarnan
70. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtÖrvar Eggertsson
Stjarnan
70. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtBenedikt V. Warén
Stjarnan
70. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtSindri Þór Ingimarsson
Stjarnan
70. mín
InnBjarki Hauksson
ÚtDamil Serena Dankerlui
69. mín
Omar fær boltann vinstra megin og kemur sér inn á teiginn í skotfæri en það skotið er beint á Árna Snæ.
68. mín
VICENTE!
Vicente með gott skot úr spyrnunni sem Árni Snær þarf að hafa sig allan við að verjal Eyjamenn fá horn!
Stjarnan
66. mín
Gult spjald

Örvar Logi Örvarsson

Brýtur á Bjarka Birni rétt fyrir utan teiginn. Vel gert hjá Bjarka sem vann boltann af Örvar og kom sér fram fyrir hann og Örvar braut á honum.
65. mín
Liam var of lengi að koma sér útaf svo Omar þarf að bíða í eina mínútu eftir að koma inná!
ÍBV
65. mín
InnOmar Sowe
ÚtLiam Daði Jeffs
63. mín
Birnir Snær með lúmskt skot fyrir utan teig en Ari er ekki í vandræðum með það.
62. mín
SESAR!
Sesar með fast skot fyrir utan teig sem fór afar varnarmanni Sjörnunnar en Árni Snær varði vel.
61. mín
Hætta á teig ÍBV!!
Emil nálægt því að skora á fjærstöng eftir flottan undirbúning Damil. Skotið hans fór yfir markið.
59. mín
Damil með fyrirgjöf frá vinstri inn á teig ÍBV en þeir setja boltann í horn.
58. mín
Örvar Logi kom með góða sendingu frá vinstri á Waren á fjær en skallinn hans fer fram hjá markinu.
57. mín
Vicene með mjög góða sendingu inn á Bjarka sem er einn og óvaldaður inn á miðjum teignum. Hann ætlar að taka boltann á kassann en mótttakan svíkur hann og boltinn fer aftur fyrir.
56. mín
Liam Daði með fyrirgjöf frá hægri ætlaða Sesar en of löng sending og fer í innkast.
55. mín
Stjarnan með flott spil upp allan völlinn. Örvar Logi ætlar svo að reyna að lauma boltanum inn á Guðmund Baldvin en sendingin er aðeins of löng.
53. mín
Waren með skot fyrir utan teig en það er yfir markið.
52. mín
Birnir Snær með fyrirgjöf en hún er slök og fer beint aftur fyrir.
ÍBV
51. mín
Gult spjald

Aleksandar Linta

51. mín
Eyjamenn vilja víti!!! Sigurður Arnar nálægt því að ná til boltans eftir lúmska sendingu frá Arnóri Inga inn á teig Stjörnunnar.. Guðmundur keyrir hann niður.
49. mín
Seinni hálfleikur byrjar mjög rólega. Heldur áfram í baráttu og aukaspyrnustoppum.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Eyjamenn leiða í hálfleik
Mikil barátta í fyrri hálfleik. Mikið um brot og stopp. Frekar hægur leikur en fengum þrjú fín mörk!
45. mín
Hætta inn á teig ÍBV. Kom fyrirgjöf frá hægri beint á Emil en Sigurður Arnar nær að koma sér fyrir skotið hans.
45. mín
+3 í uppbótartíma.
43. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ÍBV. Klaufalegt brot hjá Alex og Örvar liggur eftir.
41. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað, rétt fyrir utan teiginn. Róbert Elís með spyrnuna en hún fer í veginn og ekkert varð úr þessu.
40. mín
Örvar tekur skotið fyrir utan teig sem fer af varnarmanni í hendurnar á Ara.
38. mín
Birnir Snær tekur skotið á vítateigshorninu en Arnór Ingi kemur sér fyrir skotið og Stjarnan fær innkast.
Stjarnan
35. mín
Gult spjald

Guðmundur Kristjánsson

Brýtur á Bjarka Birni.
ÍBV
32. mín
Bjarki kemur ÍBV yfir!!!

Bjarki Björn Gunnarsson

Stjarnan tók innkast sem misheppnaðist og ÍBV vann boltann úti vinstra megin. Kom fyrirgjöf inn á Bjarka Björn sem lék á Árna Snær í markinu og klárar í tómst markið.
31. mín
Vicente með lúmskt skot á vítateigslínunni sem fer varnarmanni í hliðarnetið og ÍBV fær horn.
30. mín
Benedikt Waren með skot fyrir utan teig sem fer af varnarmanni og Örvar er nálægt því að ná til boltans en Ari er fyrstur á boltann.
ÍBV
28. mín
Eyjamenn búnir að jafna!

Sesar Örn Harðarson (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)

Frábær sókn hjá ÍBV. Liam kassar boltann niður fyrir lappirnir á Alex Frey sem á flotta sendingu í gegn á Sesar sem klárar örugglega fram hjá Árna Snæ, stöngin inn.

1-1!!
26. mín
Mathias kemur með langan bolta inn á teig Stjörnunnar sem Sigurður Arnar Flikkar áfram en Liam nær ekki til boltans.
24. mín
Vel spilað hjá Eyjamönnum sem endar á því að Vicente fær boltann vinstra megin og ætlar að koma með fyrirgjöf en hún er alltof laus og Sjtörnumenn vinna boltann.
21. mín
Daníel með fyrirgjöf frá hægri en hún er alltof löng og fer aftur fyrir markið.
20. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu og Emil liggur eftir á vellinum.
17. mín
Arnór Ingi geysist upp hægri kantinn og reynir að koma boltanum fyrir markið en Sindri Þór gerir vel á móti honum og kemur boltanum í burtu.
Stjarnan
12. mín
Gult spjald

Örvar Eggertsson

12. mín
Damil setur boltann inn á teiginn frá hægri en Eyjamenn hreinsa og Stjarnan fær horn.
9. mín
Daníel Finns með hættulega fyrirgjöf inn á teig ÍBV en Emil nær ekki til boltans.
8. mín
Emil fær boltann hægra megin og kemur með boltann inn á teiginn og Örvar er hársbreidd frá því að ná til hans. Sigurður Arnar kemur boltanum í burtu.
7. mín
Lítið að frétta þessa stundina, mikið fram og til baka.
Stjarnan
1. mín
0-1!!

Benedikt V. Warén (stoðsending: Daníel Finns Matthíasson)

Waren kemur Stjörnunni yfir eftir tæpa eina mínútu. Kom fyrirgjöf frá hægri frá Daníel Finns og Waren setur boltann örugglega í netið eftir að Ari, markvörður ÍBV, sló boltann út í teiginn.

1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað.

Gestirnir eiga upphafsspyrnuna og leika í átt að Týsvelli.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það er ein breyting á liði ÍBV. Milan Tomic er ekki í hópnum og Liam Daði Jeffs kemur inn í byrjunarliðið í hans stað.

Guðmundur Kristjánsson og Damir Dankerlui koma inn í byrjunarlið Stjörnunnar fyrir Heiðar Ægisson og Jóhann Árna Gunnarsson sem tekur út leikbann.
Fyrir leik
Fyrsti útileikur Jóns Þórs
Liðin sitja í 7. og 10. sæti deildarinnar. Stjarnan er með ellefu stig eftir ellefu spilaði leiki en ÍBV er með átta stig eftir tíu leiki. ÍBV hefur unnið tvo mjög sannfærandi sigra í röð en Stjarnan fór í þjálfarabreytingu eftir slæmt gengi fyrir síðasta leik sem endaði svo með 4-4 jafntefli.

Jón Þór Hauksson stýrir í dag sínum fyrsta útileik sem þjálfari Stjörnunnar.
Fyrir leik
Tveir Stjörnumenn í banni
Jóhann Árni Gunnarsson fékk sitt fjórða gula spjald gegn Breiðabliki í síðustu umferð og verður því ekki með Stjörnunni vegna leikbanns.

Aðstoðarþjálfarinn Hrannar Bogi Jónsson fékk að líta rauða spjaldið gegn Blikum og tekur einnig út leikbann.
Fyrir leik
Velkomin á Hásteinsvöll
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Stjörnunnar í 11. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.