Leik lokið!
1-1 Stórmeistarajafntefli
95. mín
Síðasta tækifærið hjá KR en Viktoría grípur þessa aukaspyrnu örugglega og í því flautar dómarinn leikinn af!
95. mín
Dómarinn leyfir hér leiknum að líða og líða... aukaspyrna dæmd
Áhorfendur Hauka ekki sáttir
Áhorfendur Hauka ekki sáttir
94. mín
Ragnheiður Tinna brýtur á Rakel, hefði alveg getað fengið gult þarna, alltof sein...
92. mín
SHIIIIIIIIII
HAUKAR BJARGA Á LÍNU!
Þetta var færið til að klára þetta fyrir KR!
Þetta var færið til að klára þetta fyrir KR!
90. mín
Uppbótartími er a.m.k. 3 mínútur
90. mín
InnÞórey Björk Eyþórsdóttir
ÚtÓlöf Freyja Þorvaldsdóttir
89. mín
ÚFFFF
Sigurbjörg nýkomin inn á, nær hér höööööörkuskalla, hennar fyrsta snerting en boltinn hárfínt framhjá fjærhorninu,
Kyla hefði ekki náð að verja þennan...
Kyla hefði ekki náð að verja þennan...
88. mín
InnSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
ÚtRakel Lilja Hjaltadóttir
87. mín
Kara með hörkuskot, fast niðri en Viktoría sér við henni að þessu sinni
86. mín
Rakel Lilja reynir að finna Ragnheiði Tinnu inn fyrir en Katrín Ásta sterk kemur í veg fyrir það
84. mín
Svo nálægt...
Fyrirgjöf af kantinum sem Katla nær að setja tánna í en nær hins vegar ekki að stýra boltanum á markið og framhjá!
83. mín
Haukunum dugar jafntefli til að halda toppsætinu en KR verður að vinna til að stela því,
Þetta verða hörku lokamínútur hér!
Þetta verða hörku lokamínútur hér!
80. mín
HAUKARNIR JAFNA!
Berglind Þrastardóttir
Þær eru búnar að vera hóta þessu síðustu mínúturnar og hér sækir Berglind jöfnunarmarkið fyrir Haukakonur, þvílíkt vel gert, setur boltann inn fyrir Kylu á nærstönginni78. mín
Góð innkoma hjá Emilíönu, á hér góða sendingu á Berglindi sem skýtur á markið en Kyla sem fyrr mjög örugg í markinu
76. mín
InnEmilíana Guðrún Antonsdóttir
ÚtHalla Þórdís Svansdóttir
76. mín
Mikil barátta þessar mínúturnar hjá Haukum, Valgerður reynir skot frá teigslínunni en yfir
72. mín
Halla með fínar hreyfingar kemur boltanum á Ásthildi sem reynir skotið en ekki nógu fast
70. mín
187 mættir á völlinn í kvöld
69. mín
KYLA BURNS!
Ragnheiður Tinna var sloppin ein í gegn eftir frábært hlaup og ætlaði að leggja hann í fjærhornið en Kyla eins og köttur í markinu og hoppar á þennan! Frábær varsla
68. mín
Valgerður er komin aftur inn á eftir að mínútan er liðin
66. mín
Valgerður liggur hér eftir samstuð við Ragnheiði, Haukakonur héldu sjálfar áfram án þess að setja boltann útaf, dómarinn stoppaði svo leikinn þegar hann fór út. Búið er að kalla inn á sjúkraþjálfara, mér sýndist þetta vera þungt höfuð högg... mögulega olnbogi
63. mín
Emma Björt setur háan bolta í teiginn, þar er Ragnheiður sem tekur hann með með hælnum aftur fyrir sig en boltinn rétt framhjá, hefði verið geggjað mark
62. mín
Haukar freistast í skyndisókn, Halla reynir að komast framhjá Katrínu Ástu en þar er allt lokað og læst!
57. mín
Kara með hornspyrnu fyrir KR, fer á Emmu sem setur hann aftur á Köru, boltinn fyrir þar sem Ragnheiður er mætt en nær ekki að stýra boltanum á markið
55. mín
Emma Björt með aukaspyrnu frá miðju, hörkubolti sem Viktoría í markinu þarf að hafa sig alla við að ná að verja, hún er síðan straujuð niður áður en boltinn fer í markið í 4. skiptið... En réttilega er aukaspyrna dæmd
51. mín
Fyrsti góði spilakaflinn hjá Haukum þar sem þær spila sig upp völlinn án þess að þruma boltanum fram og vona það besta, Ragnheiður fær hann síðan og kemur honum fyrir en hann hittir ekki á neina rauða treyju í þetta sinn,
Þetta er meira líkt Haukaliðinu sem maður hefur séð í sumar
Þetta er meira líkt Haukaliðinu sem maður hefur séð í sumar
50. mín
Rakel og Katla eru að vinna vel saman í dag og eru baneitrað dúó!
48. mín
Halla Þórdís kemur þá hinum megin, reynir að finna Ragnheiði en aðeins of fastur bolti og rennur út fyrir endalínu
47. mín
ÚFF
Aftur er Katla að setja boltann í markið en flaggið á loft!
47. mín
Kara finnur Rakel á kantinum, hún reynir fyrirgjöfina en fer aftur fyrir markið
46. mín
Við erum farin aftur af stað!
Kristín Fjóla sparkar þessu af stað fyrir gestina
45. mín
Hálfleikur
KR leiða 1-0
Hálfleikur hér á Meistaravöllum þar sem KR leiða sanngjarnt 1-0, miðað við færin sem þær hafa verið að skapa sér ættu þær að vera svona 3-0 yfir en þetta er það skemmtilega við fótboltann!
Haukakonur sakna greinilega varnar naglans, hennar Maggýjar sem er fjarri góðu gamni í kvöld.
1-0 forysta er þó svo lítið og ein góð og vel útfærð skyndisókn hjá Haukum og allt er orðið jafnt!
Haukakonur sakna greinilega varnar naglans, hennar Maggýjar sem er fjarri góðu gamni í kvöld.
1-0 forysta er þó svo lítið og ein góð og vel útfærð skyndisókn hjá Haukum og allt er orðið jafnt!
45. mín
Kyla!
Halla Þórdís sleppur ein í gegn reynir að vippa boltanum í fjærhornið en Kyla sér við henni, frábærlega varið hjá henni.
43. mín
Gult spjald
Kara Guðmundsdóttir
41. mín
Katla komin í dauðafæri en Viktoría ver þetta frábærlega
38. mín
Ragnheiður finnur Kötlu upp á topp en flaggið fer á loft réttilega
37. mín
KR konur ná að setja boltann í markið en flaggið er löngu komið á loft
36. mín
Obbobbobb
Viktoría tekur hratt útspark en er ekki heppnari en svo að hún dúndrar boltanum í hausinn á dómaranum.... Þetta hefur ekki verið gott
35. mín
Kara tekur horn fyrir KR. Rakel nær skallanum en Viktoría grípur þetta
34. mín
Ragnheiður með frábæra tæklingu út á hægri kantinum, nær að halda boltanum inn á og er með auða flugbraut til að hlaupa, setur hann svo á Ásthildi en sú nær ekki nógu góðri snertingu á boltann og sóknin rennur út í sandinn
30. mín
Ragnheiður Tinna komin í fínustu stöðu en skot hennar beint á Kylu í markinu
28. mín
JESÚS!
Katla aftur með BANGER er með 2 menn í sér en nær samt hörkuskoti en sem betur fer fyrir Haukakonur smellur það í slánni!
26. mín
Vá!
Þarna munaði minnstu að klafs, skot og hreinsun langt fyrir utan teig endaði í marki, en fastur boltinn fór rétt yfir markið
25. mín
ÚFFFF
Langur bolti úr vörn Hauka upp í vinstri kantinn þar sem Halla er ein á fljúgandi siglingu en Kyla Burns er komin langt út úr teignum til þess að stoppa hana, sem betur fer fyrir hana þá náði hún að leggjast og koma í veg fyrir hlaupið, þar sem hún gat klárlega ekki tekið hann með höndum
23. mín
Ragnheiður tekur hornspyrnuna, fínasti bolti á fjær en engin nógu grimm og boltinn í gegnum allan pakkann
22. mín
Rakel kemst upp að endalínu og sækir hornið fyrir KR
21. mín
Sandra Dís tekur spyrnuna en KR konur fyrstar á boltann og koma þessu frá
20. mín
Emma Björt brýtur á Rakel Lilju inn í miðjuboganum, aukaspyrna sem Haukakonur fá,
Sýnist hún nota tímann til að reima skóna í leiðinni
Sýnist hún nota tímann til að reima skóna í leiðinni
17. mín
Einn leikur til viðbótar áður en Sara Björk verður gjaldgeng
Haukar eiga einungis einn leik, við Gróttu áður en félagskiptaglugginn opnar og LEGENDIÐ hún Sara Björk Gunnarsdóttir verður gjaldgeng með félaginu! Það verður rosalegt að fá hana með alla sína reynslu inn í þessa deild!


13. mín
Úffff
Þarna munaði minnstu að Katla næði að setja'ann með flottri hælspyrnu!
12. mín
Rakel hleypur upp allan kantinn nær svo að gefa hann fyrir en Katla rétt missir af boltanum, Þetta hefði verið kjörið tækifæri til að tvöfalda forystuna!
10. mín
Anna Björk reynir skotið en Viktoría er vel vakandi og handsamar þennan
10. mín
Hauka konur komast í skyndisókn en Kayla Burns er mætt bara út á miðjan völlinn til að hreinsa
6. mín
BAAAAAANGER!
Katla Guðmundsdóttir
Þetta var ekki lengi gert! Katla fær boltann við vítateiginn og á svo þrumuskot upp í samskeytin algjörlega óverjandi fyrir Viktoríu í marki Hauka5. mín
Halla kemst alein upp vinstri kanntinn nær boltanum fyrir og út í teiginn en þar er engin Haukakona mætt
2. mín
Halla finnur Ásthildi en hún kiksar boltann og nær ekki skotinu
1. mín
Hættulegt
Ólöf Freyja kemur sér í góða stöðu setur boltann fyrir en Ragnheiður rétt missir af boltanum
1. mín
Leikur hafinn
KR konur hefja leika í kvöld
Fyrir leik
Slagur kvöldsins
Um er að ræða svokallaðan toppslag hér í kvöld!
Haukakonur sitja á toppnum með 16 stig eða einu stigi meira en KR í 2. sæti og Gróttu í 3. sætinu sem hefur þó spilað leik til góða.
Haukakonur eru ósigraðar eins og staðan er núna en gerðu 1-1 jafntefli við Völsung í síðustu umferð.
KR konur hafa hins vegar einungis tapað einum leik en það var í nágrannaslagnum við Gróttu þar sem þær lutu í lægra haldi 2-0
Nú er hins vegar toppsætið undir og ég á ekki von á öðru en fjörugum og skemmtilegum leik!
Haukakonur sitja á toppnum með 16 stig eða einu stigi meira en KR í 2. sæti og Gróttu í 3. sætinu sem hefur þó spilað leik til góða.
Haukakonur eru ósigraðar eins og staðan er núna en gerðu 1-1 jafntefli við Völsung í síðustu umferð.
KR konur hafa hins vegar einungis tapað einum leik en það var í nágrannaslagnum við Gróttu þar sem þær lutu í lægra haldi 2-0
Nú er hins vegar toppsætið undir og ég á ekki von á öðru en fjörugum og skemmtilegum leik!
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Elmar Svavarsson hefur flautuna í kvöld, honum til aðstoðar verða
Ellert Danelíusson og Ram Krishna Gurung.
Ellert Danelíusson og Ram Krishna Gurung.
Fyrir leik
Toppslagur í lengjunni!
Góða kvöldið! Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Meistaravöllum þar sem KR tekur á móti Haukum í sannkölluðum toppslag í Lengjudeildinni!
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!




Hörku fjörugur leikur og ég hvet áhorfendur að sofa ekki á lengjudeild Kvenna! Hér er sannarlega stuð
Takk annars fyrir samfylgdina,
Skýrsla kemur inn síðar í kvöld