Leik lokið!
93. mín
Ekkert kemur úr horninu og Ásmundur flautar svo leikinn af!
93. mín
Isabelle Gilmore reynir skotið en það á viðkomu í varnarmann áður en það fer rétt framhjá fjærhorninu, Horn!
90. mín
A.m.k. 3 mínútum bætt við
90. mín
Gult spjald
Taylor Marie Hamlett
85. mín
InnKatrín Erla Clausen
ÚtUna Rós Unnarsdóttir
85. mín
InnHalla Helgadóttir
ÚtAlda Ólafsdóttir
85. mín
InnKarítas María Arnardóttir
ÚtEmma Kate Young
84. mín
InnHugrún Helgadóttir
ÚtElísa Birta Káradóttir
83. mín
ÚFFF
Ása með hörkuskot og boltinn skellur ofan á þverslánni
81. mín
Gult spjald
Júlía Rán Bjarnadóttir
þetta er líklega fljótasta spjald sögunnar bara, ekki búin að vera mínútu inn á. Sé samt bara ekki fyrir hvað hann var að spjalda hana...80. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtSanta Sanija Vuskane
80. mín
InnSigríður Emma F. Jónsdóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
76. mín

MAAAARK!
Natasha Moraa Anasi (stoðsending: Hildur Katrín Snorradóttir)
Natasha að gulltryggja Grindavík/Njarðvík inn í úrslitin! Hildur Katrín með vel útfærða hornspyrnu á fjær, þar stekkur Natasha kvenna hæst og stangar boltann inn
76. mín
InnHlín Heiðarsdóttir
ÚtSara Svanhildur Jóhannsdóttir
76. mín
Hildur Katrín með enn eitt hlaupið upp völlinn, hefur verið með stöðugar áætlunarferðir upp vinstri kantinn!
74. mín
Ása Björg með góða fyrirgjöf beint á kollinn á Sante sem reynir skallann en framhjá
73. mín
Sara tekur hornspyrnuna en hún fer útfyrir
72. mín
Isabelle Gilmore með fínustu tilraun utan af velli en Crenshaw ver þetta yfir markið
68. mín
Fram konur næla í aukaspyrnu á hættulegum stað rétt við teiginn en Una Rós spyrnir þessu hátt yfir!
67. mín
Brotið á Söru Svanhildi inn í teig, Ásmundur lætur hagnaðinn ráða en hún missir svo boltann
64. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtEllie Coffield
64. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
62. mín
InnFreyja Dís Hreinsdóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
61. mín
Ekki galin tilraun
Ellie Coffield tekur spyrnuna neglir honur bara hreinlega á fjærstöngina en hárfínt framhjá
61. mín
Hildur María brýtur á Hildi Katrínu á hættulegum stað, við vítateigshornið!
57. mín
Taylor Marie á skot á markið, fer í Natöshu og áhorfendur kalla hér hendi víti! Fer klárlega í hendina á henni en hún er ekki í óeðlilegri stöðu heldur hangir niður með síðu m.v. útsendinguna að minnsta kosti
56. mín
Ashley!
Hildur Katrín í frábærri stöðu leggur boltann í nær hornið en Ashley nær að skjóta tánni fyrir á síðustu stundu ég sá þennan á leiðinni inn bara!
55. mín
Sara Svanhildur tekur horn fyrir Fram konur, fínn bolti í pakkann og Taylor Marie nær góðum skalla á markið, munaði ekki miklu að þessi færi inn
51. mín

MAAAARK!
Ellie Coffield (stoðsending: Katrín S. Vilhjálmsdóttir)
Ellie Coffield að tvöfalda forystuna fyrir Grindavík/Njarðvík, Hildur Katrín stöðvar eiginlega boltann bara fyrir hana og Ellie þrumar svo boltanum yfir Ashley í hægra hornið
47. mín
Sara Svanhildur tekur hornið en það er ekki nægilega gott, þær ná þó að pressa á þetta og fá annað horn, það endar þó ekki betur en svo að Gri/Nja þeysast í skyndisókn
46. mín
Framkonur hefja þetta af krafti, næla í horn
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Santa sparkar þessu aftur af stað fyrir gestina
45. mín
Hálfleikur
0-1 í hálfleik!
Það hefur verið lítið um fína drætti en það hefur þó ekki skort baráttuna í báðum liðum.
Grindavík/Njarðvík leiðir sanngjarnt 0-1 hafa átt hættulegri færi en eins marks forysta er ekki neitt og Fram hafa alveg verið að ógna með fínni pressu.
Grindavík/Njarðvík leiðir sanngjarnt 0-1 hafa átt hættulegri færi en eins marks forysta er ekki neitt og Fram hafa alveg verið að ógna með fínni pressu.
45. mín
Elísa Birta með fínustu fyrirgjöf sem Santa reynir að koma á markið en framhjá
45. mín
Þetta hefur verið mikill baráttuleikur og liðin skiptast á að brjóta
44. mín
Ellie Coffield brýtur á Söru inn í miðjuboganum, Una Rós tekur þetta en lítið kemur úr þessu
42. mín
Santa nælir í aukaspyrnu við miðjulínuna, þær taka þetta stutt og hratt
42. mín
Ásmundur dómari leiksins vísar Natöshu útaf þrátt fyrir að hann hafi ekki stöðvað leikinn né fékk hún aðhlynningu, stuðningsmenn Gri/Nja eru ekki sáttir
40. mín
Nú eru það Framkonur sem pressa hátt og aftastalína Gri/Nja hefur verið í vandræðum, þetta endar ekki betur en svo núna að Sara fær fínast skotfæri en Crenshaw ver þetta
38. mín
Gult spjald
Ellie Coffield
Grípur í fæturnar á Söru sem er við það að sleppa í gegn38. mín
Gult spjald
Una Rós Unnarsdóttir
Er alltof sein í manninn36. mín
Una Rós tekur aukaspyrnu við miðjulínuna en ekkert kemur úr þessu nema skyndisókn hjá Gri/Nja
35. mín
Fææææriiii
Natasha svo nálægt því að tvöfalda forystuna en skalli hennar rétt framhjá markinu
33. mín
Una og Brookelynn taka greinilega þaulæft horn af æfingasvæðinu þar sem þær spila sig í gegn og Una hársbreidd frá því að ná að setja boltann á markið en setur hann í varnamann og út fyrir endalínu, annað horn sem ekkert kemur þó úr
32. mín
Taylor Marie!
Svoooo nálægt því að ná að pota boltanum af Crenshaw og í markið, pressaði þarna vel!
30. mín
ÚFFF
Alda finnur Katrínu í hlaupið, hún nær svo laglegri fyrirgjöf sem Taylor Marie rétt missir af, vantaði þarna herslu muninn að hún næði að pota honum inn
29. mín
Ása!
Ása Björg með frábæra tilraun sem Ashley þarf að hafa sig alla við að verja
26. mín
Brookelynn rennir sér fyrir fyrirgjöf frá Ásu, Horn sem endar með skoti frá Ásu yfir markið
25. mín
Júlía Ruth brýtur á Söru Svanhildi, Una Rós tekur spyrnuna, reynir að finna Öldu en hún er vel dekkuð af Emmu Nicole
23. mín
Hildur María finnur Taylor við vítarteiginn, sú mundar skotfótinn en skotið ekki nógu fast né nákvæmt og Crenshaw á ekki í neinum vandræðum með þetta
20. mín
Fram!
Framkonur ógna um leið og Taylor Marie nálægt því að jafna en boltinn rennur löturhægt samhliða marklínunni og Alda ekki alveg nógu fljót að átta sig og kasta sér á boltann
19. mín
MAAAARK!
Hannah McLaughlin
Ísinn brotinn! Virkilega snoturt mark hjá Hönnuh setur hann niðri í fjærhornið alveg út við stöng, óverjandi fyrir Ashely í markinu
18. mín
Harpa verst vel og setur boltann í Júlíu og út fyrir endalínu og nælir þannig í markspyrnu fyrir sínar konur
14. mín
Grindavík/Njarðvík pressa hátt þessa stundina og gefa Fram konum lítinn tíma í öftustu línu
11. mín
Natasha reynir að setja boltann fyrir en Asley Brown grípur þetta í teignum
8. mín
Katrín reynir fyrirgjöf utan af hægri kanti en Crenshaw grípur þetta örugglega
6. mín
Hildur Katrín tekur horn fyrir Gri/Nja setur hættulegan bolta innarlega á fjærstöngina, Emma Nicole hársbreidd frá því að koma boltanum í netið, meiri vandræðagangur í teignum sem senda svo á að boltinn fer út fyrir endalínu
4. mín
Sophia Faith reynir að setja boltann á markið úr fínni stöðu en setur þetta beint í Hörpu, þetta hefði alveg getað orðið frábært færi
2. mín
Una Rós með miklilvægar tæklingar hér í tvígang, kemur í veg fyrir að Gri/Nja komist neitt
1. mín
Taylor Marie kemst í frábæra stöðu inn í teignum en nær ekki að koma boltanum almennilega fyrir sig
1. mín
Leikur hafinn
Alda Ólafs hefur leikinn fyrir heimakonur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin ganga hér inn á völlinn, þetta er allt samkvæmt áætlun!
Framkonur eru í sínum hefðbundnu búningum bláar-hvítar-bláar og Grindavík/Njarðvík eru hvítar-svartar-hvítar
Framkonur eru í sínum hefðbundnu búningum bláar-hvítar-bláar og Grindavík/Njarðvík eru hvítar-svartar-hvítar
Fyrir leik
Stuðningsliðið af suðurnesjunum mætt

Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Fram
Anton Ingi heldur sama byrjunarliði og sigraði Víking R. 1-2 í síðasta leik þeirra í Bestu deildinni.
Grindavík/Njarðvík
Gylfi þjálfari gerir 2x breytingar á sínu liði frá 4-2 sigri gegn Þrótti. Markaskorarinn Santa Sanija og Emma Nicole koma inn en Sigríður Emma og Júlía Rán taka sér sæti á bekknum.

Anton Ingi heldur sama byrjunarliði og sigraði Víking R. 1-2 í síðasta leik þeirra í Bestu deildinni.
Grindavík/Njarðvík
Gylfi þjálfari gerir 2x breytingar á sínu liði frá 4-2 sigri gegn Þrótti. Markaskorarinn Santa Sanija og Emma Nicole koma inn en Sigríður Emma og Júlía Rán taka sér sæti á bekknum.

Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn - Fram
Fram hefur verið öllu rólegra á markaðnum og hafa einungis sótt Hlín Heiðarsdóttur frá Segeltorp í Svíþjóð
Hlín spilaði með Aftureldingu áður en hún fór til Svíþjóðar.

Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn - Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík er búið að vera mjög virkt á markaðnum það sem af er í glugganum. Þær hafa bæði misst leikmenn í skóla til Bandaríkjanna og sótt bæði íslenska og erlenda leikmenn
Rakel og Rut eru báðar farnar út og þá var Maci Nicole Teater seld til Bandaríkjanna
Í staðinn hafa Grindavík/Njarðvík fengið Elísu Birtu og Birtu Birgisdóttur frá Víking og Hrafnhildi Sölku frá Val á láni auk þess sem heimakonan Júlía Ruth Thasaphong er komin aftur heim. Þá hafa Hugrún Helgadóttir og Stígheiður einnig gert félagsskipti í liðið. Þá hafa þær einnig sótt eins og áður sagði lettnesku landsliðskonuna Santa Sanija Vuskane og hina bandarísku Hayden Colson.
Rakel og Rut eru báðar farnar út og þá var Maci Nicole Teater seld til Bandaríkjanna
Í staðinn hafa Grindavík/Njarðvík fengið Elísu Birtu og Birtu Birgisdóttur frá Víking og Hrafnhildi Sölku frá Val á láni auk þess sem heimakonan Júlía Ruth Thasaphong er komin aftur heim. Þá hafa Hugrún Helgadóttir og Stígheiður einnig gert félagsskipti í liðið. Þá hafa þær einnig sótt eins og áður sagði lettnesku landsliðskonuna Santa Sanija Vuskane og hina bandarísku Hayden Colson.
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Gri/Nja hafa farið heldur erfiðari leið inn í undanúrslitin en þær unnu Valsara í 16-liða úrslitunum 2-3 á Hlíðarenda og sigruðu svo lið Stjörnunnar 2-1 eftir framlengdan leik á Stakkarvíkurvellinum í 8-liða úrslitunum.
Grindavík/Njarðvík eru nýliðar í Bestu deildinni í sumar og sigla um miðja deild í 5. sætinu. Frammistöður liðsins hafa verið upp og ofan en þær koma inn í þennan leik með 4-2 sigur á Þrótti á bakinu þar sem splunkunýr leikmaður þeirra Santa Sanija Vuskane kom inn á 65. mínútu og setti þrennu í sínum fyrsta leik fyrir félagið! Ekki slæmt að eiga hauk í horni þar!
Ætli við sjáum sömu takta í dag?

Grindavík/Njarðvík eru nýliðar í Bestu deildinni í sumar og sigla um miðja deild í 5. sætinu. Frammistöður liðsins hafa verið upp og ofan en þær koma inn í þennan leik með 4-2 sigur á Þrótti á bakinu þar sem splunkunýr leikmaður þeirra Santa Sanija Vuskane kom inn á 65. mínútu og setti þrennu í sínum fyrsta leik fyrir félagið! Ekki slæmt að eiga hauk í horni þar!
Ætli við sjáum sömu takta í dag?

Fyrir leik
Fram
Framkonur hafa komist nokkuð þæginlega í undanúrslitin en þær mættu tveimur Lengjudeildarliðum. Fyrst ÍA í 16-liða úrslitum sem Fram vann örugglega 3-0 og svo fóru þær austur í 8-liða úrslitunum þar sem þær unnu 7-1 stórsigur á liði FHL.
Framliðið hefur verið á mikilli siglingu undanfarin misseri og hafa unnið 3 leiki í röð, gegn Breiðablik, Þrótti og Víking R. í Bestu deildinni eftir mjög brösuga byrjun.
Þær koma því sjóðandi heitar inn í þennan leik!

Framliðið hefur verið á mikilli siglingu undanfarin misseri og hafa unnið 3 leiki í röð, gegn Breiðablik, Þrótti og Víking R. í Bestu deildinni eftir mjög brösuga byrjun.
Þær koma því sjóðandi heitar inn í þennan leik!

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Óliver Thanh Tung Vú og Tryggvi Elías Hermannsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari í dag er Jovan Subic og eftirlitsmaður er Sigurður Hannesson.

Fjórði dómari í dag er Jovan Subic og eftirlitsmaður er Sigurður Hannesson.

Fyrir leik
Velkomin í seinna bikarpartýið!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Lambhagavellinum þar sem Fram tekur á móti Grindavík/Njarðvík í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Leikurinn hefst á slaginu 17:00!

Leikurinn hefst á slaginu 17:00!










Sanngjarn sigur í dag og stuðningsmenn þeirra fagna ákaft!
Takk fyrir samfylgdina!
Skýrsla og viðtöl koma inn síðar í kvöld