Fotbolti.net
19.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lettnesk landsliðskona í Grindavík/Njarðvík (Staðfest)

Lettnesk landsliðskona í Grindavík/Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Hertz
Santa Sanija Vuskane er búin að gera tveggja og hálfs árs samning við Grindavík/Njarðvík sem hefur verið að gera flotta hluti sem nýliði í Bestu deild kvenna í sumar.
Santa er 21 árs gömul lettnesk landsliðskona með 19 leiki að baki fyrir þjóð sína þrátt fyrir ungan aldur. Hún var markadrottning lettnesku úrvalsdeildarinnar árið 2024 en hefur átt erfitt uppdráttar eftir félagaskipti til GKS Katowice í Póllandi í fyrra.

Hún er þegar mætt til landsins og hefur komið vel inn í hópinn bæði innan sem utan vallar, segir í tilkynningu frá Grindavík/Njarðvík.

„Santa er skemmtilegur leikmaður, svolítið óhefðbundinn sóknarmaður sem við hlökkum til að vinna með. Hún hefur marga góða eiginleika í fari sóknarmanns og við bindum miklar vonir við að hún muni hrella varnir andstæðinganna," segir Gylfi Tryggvason þjálfari G/N um félagagskiptin.

Santa er mjög ánægð eftir fyrstu dagana á Íslandi og segist vera mjög spennt fyrir leikstíl liðsins sem hún telur henta sér fullkomlega.

G/N er í neðri hluta Bestu deildarinnar með 12 stig eftir 11 umferðir, en liðið hefur verið óheppið að næla sér ekki í fleiri stig miðað við frammistöðu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.