Nýliðarnir fá leikmann frá Víkingi (Staðfest) - Má spila í kvöld

Mynd: Gri/Nja

Mynd: Gri/Nja

Nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík hafa fengið til sín liðsstyrk strax á fyrsta degi félagaskiptagluggans því Elísa Birta Káradóttir er komin á láni frá Víkingi út tímabilið.
Kantmaðurinn, sem fædd er árið 2009, er komin með leikheimild og má spila gegn FH í kvöld.
Grindavík/Njarðvík tekur á móti FH í lokaleik 11. umferðar Bestu deildarinnar klukkan 19:15 í kvöld. Leikurinn fer fram á JBÓ vellinum í Njarðvík. Með sigri eða jafntefli fer Grindavík/NJarðvík upp í 5. sætið en með stigi eða stigum kemst FH aftur á toppinn.

TENGT EFNI
Nýliðarnir í Bestu selja leikmann til Bandaríkjanna
Elísa er uppalin hjá HK en hefur síðustu tvö ár verið í Víkingi. Í sumar hefur hún komið við sögu í sex leikjum í Bestu deildinni. Hún er unglingalandsliðskona sem á alls 22 leiki að baki fyrir yngri landsliðin.
Elísa er ekki eini leikmaðurinn sem er komin með leikheimild hjá nýliðunum því Stígheiður Sól Einarsdóttir hefur fengið félagaskipti frá Haukum. Hún er fædd árið 1999 og lék síðast með Gróttu í 2. deild árið 2017.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 11 | +16 | 24 |
| 2 | FH | 10 | +16 | 23 |
| 3 | Stjarnan | 11 | +9 | 21 |
| 4 | ÍBV | 11 | 0 | 20 |
| 5 | Þróttur R. | 11 | -3 | 13 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 10 | -4 | 12 |
| 7 | Valur | 11 | -4 | 10 |
| 8 | Víkingur R. | 11 | -11 | 10 |
| 9 | Fram | 11 | -13 | 10 |
| 10 | Þór/KA | 11 | -6 | 9 |