24.07.26 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Fá varnartengilið sem má spila í undanúrslitunum á morgun (Staðfest)

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Grindavík/Njarðvík hefur verið að gera frábæra hluti í sumar og var að fá nýjan leikmann til liðs við sig sem verður liðtækur fyrir undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins á morgun.
Hayden Colson er 21 árs gömul og spilar sem varnartengiliður að upplagi en getur leyst fleiri stöður á vellinum. Hún kemur úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún var fyrirliði Auburn háskólans og var valin í úrvalslið SEC deildarinnar.
„Ég er svo þakklát fyrir að skrifa undir minn fyrsta atvinnumannasamning. Að verða atvinnukona í fótbolta hefur verið draumur minn síðan ég var lítil og ég get ekki beðið eftir að leggja mitt af mörkum," sagði Hayden við undirskriftina.
Gylfi Tryggvason þjálfari er gríðarlega ánægður með að fá Hayden til liðsins enda fylgir henni frábært orðspor eftir háskólaboltann.
Grindavík/Njarðvík heimsækir Fram í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á morgun.