Missa Rakel og Rut til Bandaríkjanna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík hefur tilkynnt að tveir leikmenn liðsins séu á leið til Bandaríkjanna í háskólanám og verða því ekki meira með í sumar.
Rakel Sigurðardóttir fer til Louisiana þar sem hún mun nema við Louisiana State University á meðan Rut Sigurðardóttir verður nemandi við Florida International University.
Rakel hefur komið við sögu í nánast öllum leikjum Grindavíkur/Njarðvíkur á frábæru tímabili þar sem nýliðarnir eru að spila flottan fótbolta í Bestu deildinni. Hún er fædd 2007 og er uppalin í Breiðablik. Hún er samningsbundin Víkingi R. og leikur fyrir Grindavík á lánssamningi.
Rut hefur verið með í 8 leikjum í deild og bikar það sem af er sumars. Hún er líka fædd 2007 en er uppalin hjá Haukum.
Þess má geta að Rakel er með þrjá leiki að baki fyrir U17 landsliðið á meðan Rut er með tvo leiki að baki fyrir U19 liðið.
Þetta er skellur fyrir Grindavík/Njarðvík sem þarf núna að fylla í skarðið fyrir þessa öflugu leikmenn.