Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Aktobe Ortalyk Stadion
29 stiga hiti og glampandi sól!
Breiðablik
Breiðablik
1 - 3
Aktobe
Aktobe
0 - 112' Yekaterina BabshukKatelyn Duong 16'1 - 190' Alexandre SemenovAgla María Albertsdóttir (misnotað víti) 121'1 - 2122' Alina Litvinenko (víti)Katelyn Duong (misnotað víti) 123'1 - 3124' Yekaterina Babshuk (víti)Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (misnotað víti) 125'126' Morgan Rees (misnotað víti)Líf Joostdóttir van Bemmel (misnotað víti) 127'
Dómari: Paola Cebollada López (Spánn)
Leik lokið!
Vítaspyrnukeppnin fór alveg með Blika!
Aktobe fer með sigur af hólmi í þessum leik eftir að hafa unnið þessa vítaspyrnukeppni af miklu öryggi! Blikarnir settu ekki eina einustu spyrnu í netið úfffff!

Þær eiga næsta leik klukkan 07:00 á föstudagsmorgun í keppni um 3. sætið en sigur þar getur tryggt þeim sæti í Evrópubikarinn
Breiðablik
127. mín
Víti misnotað

Líf Joostdóttir van Bemmel

Þrumar boltanum yfir!
Aktobe
126. mín
Víti misnotað

Morgan Rees

Herdís ver og heldur Blikunum inni
Breiðablik
125. mín
Víti misnotað

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Þrumar boltanum yfir!
Aktobe
124. mín
Mark úr víti!

Yekaterina Babshuk

Settur skotið upp í hornið en Herdís er farin niður
Breiðablik
123. mín
Víti misnotað

Katelyn Duong

Léleg spyrna hjá Katelyn sem Tolibekova á ekki í neinum vandræðum með!
Aktobe
122. mín
Mark úr víti!

Alina Litvinenko

Setur Herdísi í vitlaust horn
Breiðablik
121. mín
Víti misnotað

Agla María Albertsdóttir

Ekki frábær spyrna og Tolibekova búin að lesa hana og ver!
120. mín
Vító!!
+2
Paola flautar þetta af! Við erum á leiðinni í vító!
120. mín
+1
Tveimur mínútum bætt við!
120. mín
Stefnir allt í Vító!
Við erum komin á lokamínútu venjulegs leiktíma framlengingarinnar
119. mín
ÚFFFF Hrafnhildur Ása
fær boltann við fjærstöngina en ekki heppilegur bolti og hún setur boltann hátt yfir markið! Þetta var dauðafærið sem Blikar hefðu þurft að setja inn!
116. mín
Ása með jahh skot eða fyrirgjöf en boltinn beint á Tolibekovu
115. mín
Brotið á Karítas við hliðarlínuna, Agla María tekur spyrnuna, setur hann á fínasta stað, Katelyn nær skallanum en yfir!
114. mín
Það eru engar vatnspásur í þessum leik eins og á HM og heimaliðið er í stöðugum krampa!
113. mín
Rees komin ein í gegn en flaggið góða fer réttileg á loft!
111. mín
Líf nær sendingu með jörðinni inn á teiginn en þar er enginn Bliki mættur og þær koma þessu frá
109. mín
Litvinenko liggur eftir og fær aðhlynningu, sjúkraþjálfarateymið hjá heimliðinu er búið að vera í yfirvinnu í dag! Skil hins vegar ekki sá sem é hélt að hefði fengið rautt er enn bara í fullu fjöri í aðhlynningunum ?!?!.... Skil ekkert
108. mín
Herdís Halla!
Alina Litvinenko með HÖRKU skalla en Herdís Halla grípur þetta örugglega!
108. mín
Stórhættuleg fyrirgjöf frá Kamimura en boltinn sem betur fer rennur í gegnum alla og út fyrir endalínu
106. mín
Við erum komin aftur aftur af stað!
105. mín
Hálfleikur
1-1 í hálfleik framlengingarinnar
Vítaspyrna tekin af Blikum á óskiljanlegan hátt!

En áfram gakk!
105. mín
Heppnar Blikar!
Rees nær skalla en í stöngina! Sem betur fer!
Það hefði verið grátlegt að fá mark í pönnuna á síðustu sek í fyrri hálfleik framlengingarinnar
105. mín
1 mín í uppbót!
102. mín
Agla María með fínan bolta á teiginn, Katelyn nær frákstinu en setur boltann yfir
102. mín
Agla María með hornspyrnu stutt en ekkert kemur úr þessu, nú verða þær að fara æfa hornin sín á æfingasvæðinu

Þær eru að fá alltof mörg horn í leik án þess að setjann!
98. mín
HA?!?!? Hvað er að gerast?!?!
Agla María er komin á punktinn og búin að stilla upp! Dómarinn tekur síðan boltann af punktinum og lætur heimakonurnar hafa boltann!

Þetta er EKKI í lagi!
Augljóslega var þetta hendi og dómarinn flautaði hendina strax en breytti eftir að hafa rætt við aðstoðardómarann

Þetta er nú meira bullið!
98. mín
Víti!
Fer í hendina á varnarmanni
97. mín
Karítas á ferðinni upp miðjuna, finnur Ásu en hún missir hann í snúningnum, þær eru að hóta!
95. mín
HRAFNHILDUR ÁSA!
Sleppur í gegn, með frábærar hreyfinga lyftir hins vegar boltanum yfir markið og svo reyndar fer flaggið á loft! En þetta var rosalegt færi
95. mín
Kamimura setur bolytann fyrir, Kubessova nær skallanum en framhjá
94. mín
Heimakonur komast í góða stöðu en þær næla sér í horn
94. mín
Hér eru allir mjög pirraðir á vellinum! Þetta verða ekki einu spjöldin hér í þessari framlengingu....
Breiðablik
93. mín
Gult spjald

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Aktobe
93. mín
Gult spjald

Ekaterina Morozova

92. mín
Markamaskínan Alina Litvinenko reynir skot af löngu færi en Herdís Halla grípur þetta
Aktobe
91. mín
InnAssem Karazhanova
ÚtDidem Dülber
91. mín
Við erum farin af stað!
Heimakonur sparka þessu af stað
90. mín
FRAMLENGING
Staðan jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma og við erum að fara í framlengingu

Ekki góðar fréttir fyrir þunnskipað lið Blika sem eiga bara 2 útileikmenn inni á bekknum, Dórótheu og Kristínu Völu
90. mín
JEEEEESÚS!
+6
Tvö dauðafæri í röð!

Ása með hörkuskot sem Tolibekova ver, boltinn á Öglu Maríu sem reynir einnig skotið og aftur varið!
90. mín
heimakonur fá hornspyrnu
+5
Gaistenova tekur þetta, setur hann utarlega í teiginn, eiginlega afspyrnu slök spyrna og Blikarnir ná að koma þessu frá
90. mín
+4
Agla María tekur hornið en sóknarbrot dæmt
Aktobe
90. mín
Rautt spjald

Alexandre Semenov

+4
Það fór rautt spjald á loft á bekkinn, Það er sjúkraþjálfarinn en ég er alls ekki með hann skráðan hér eeeeeen allavega rautt á bekkinn!
90. mín
sex í uppbót!
A.m.k 6 mínútum bætt við hér! Blikarnir þurfa að setja eitt ætli þær ekki í framlengingu
90. mín
Agla María lyfir boltanum inn á teiginn, Ása reynir við hann en rétt nær bara að setja tánna í þetta
89. mín
Blikarnir reyna
Þær reyna og reyna að koma boltanum fram en þessir háu boltar eru bara ekki nógu návæmir, þær þurfa að vanda sendingarnar
Breiðablik
86. mín
Gult spjald

Elísa Viðarsdóttir

Missir hausinn og hrindir einni útaf bara
85. mín
Brotið á Ásu við vítateigshornið en ekkert dæmt!
Breiðablik
84. mín
InnHildur Þóra Hákonardóttir
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
Aktobe
83. mín
Gult spjald

Alexandre Semenov

Einhver á bekknum sem fékk spjald hér!
81. mín
Karítas fer bara sjálf upp völlinn, reynir síðan skotið en í varnarmann og svo í fangið á Tolibekovu
76. mín
Agla María tekur spyrnuna en ekkert kemur úr henni
76. mín
Þórdís!!
Með hörkuskot rétt fyrir utan teiginn en Tolibekova ver þetta
75. mín
Úfffff!
Agla María með frábæran bolta á teiginn, Líf kemur þar askavaðandi en skallinn ekki nógu góður! Þetta var dauðafæri!
72. mín
Jæja!
Nú þurfum við að fara fá mörk í þetta! Blikar þurfa að setja í 6. gír og klára þetta
Aktobe
68. mín
InnAssel Kubessova
Út Karina Zhumabaikyzy
Aktobe
68. mín
Inn Ayaka Kamimura
ÚtAizhan Boronbekova
67. mín
Léleg hreinsun hjá Tolibekovu er komin langt út úr markinu, Agla María reynir skotið en það er framhjá
Breiðablik
66. mín
InnOlga Ingibjörg Einarsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
Edith lýkur hér leik! Vonandi að hún verði heil fyrir föstud.
65. mín
Liðin eru mikið að brjóta og heimakonurnar eru duglegar að henda sér niður og liggja
60. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað
Spyrnan kemur í snúning inn á teiginn en Herdís Halla er fyrst á þennan bolta
59. mín
Elísa brýtur á Litvinenko á hættulegum stað!
56. mín
Agla María tekur hornið stutt en það kemur ekkert úr þessu í bili
56. mín
Edith haltrar hér, líklega ökklinn að plaga hana
55. mín
Morozova fer á fleygi ferð í tæklingu í Edith sem liggur hér eftir, en hornið er allavega dæmt!
Breiðablik
52. mín
Gult spjald

Karitas Tómasdóttir

Alltof sein í tæklingu
51. mín
Karítas brýtur á Boronbekova, þær bomba þessum fram en Herdís Halla er fyrst á þennan bolta
49. mín
Aukaspyrna
Agla María tekur aukaspyrnuna út á vinstri kanti! setur boltann á teiginn en þær ná að koma þessu frá. Ása kemst í boltann aftur reynir fyrirgjöf en Tolibekova kýlir boltann frá
48. mín
Brotið á Ásu, aukaspyrna á fínasta stað
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Líf sparkaður þessu af stað fyrir okkur aftur
45. mín
1-1 hér í hálfleik!
Blikarnir hafa verið ívið sterkari hér í fyrri hálfleik eftir brösuglega byrjun.

Vantar herslumuninn að koma inn öðru marki! Efast ekki um að þær troði því inn í seinni hálfleik
45. mín
Zhumabaikyzy brýtur á Þórdísi við miðjubogann, þær taka þetta hratt, boltinn berst svo upp í horn ætlaður á Líf, en hún er straujuð niður við endalínuna. Ekki það besta svona rétt eftir aðhlynningu

Boltinn á milli þannig ekkert dæmt
45. mín
a.m.k. 4 mínútur í uppbótartíma
45. mín
Morozova og Líf í baráttunni, Morozova lendir síðan illa á Líf sem liggur eftir, vonandi er þetta ekkert alvarlegt! Bekkurinn hjá Blikum er afar fámennur í dag
42. mín
Ekaterina Morozova leggst aftur niður og virðist hafa fengið högg á magann
40. mín
Zhumabaikyzy tekur aukaspyrnu setur hann á fjær þar sem ekki eru margar heimakonur, Karítas er síðan bara sterk og skýlir boltanum útaf en Morozova liggur eftir
39. mín
Heimakonur eru ekkert að flækja málin í markspyrnum, þær bara dúndra boltanum fram í hvert einasta skiptið, þær nenna ekki neitt að spila út
34. mín
Brotið á Karítas við miðjulínuna, þær spila úr þessu
33. mín
Hættulegt
Kristín Dís með frábæra tæklingu! og kemur í veg fyrir skot! Rees nær síðan skalla á markið en það er framhjá
30. mín
Agla María með fínan bolta inn á teiginn þar er barátt en boltinn berst svo út til Elísu á miðjuna sem reynir að finna Öglu Maríu en of fastur
29. mín
Kristín Dís reynir að finna Edith upp í horn, fer í varnarmann og rennur út fyrir endalínu Blikar fá enn eitt hornið
24. mín
Katelyn fær mikið pláss á vinstri kantinu, finnur Ásu en flaggið fer á loft
23. mín
Blikarnir farnir að keyra á þetta!
byrjaðar að pressa hærra og koma sér í betri og betri stöðu
21. mín
Horn!
Agla María með spyrnuna en Tolibekova grípur þetta við fjærstöngina
21. mín
Ása kemur sér í góða stöðu en rennur við og tætir grasið með sér, fipast því en nælir í hornspyrnu
Breiðablik
16. mín
MAAAARK!

Katelyn Duong (stoðsending: Karitas Tómasdóttir)

JÁJÁJÁ! þÆR JAFNA ÞETTA STRAX! Agla María með frábæran bolta upp í vinstra hornið á Karítas, hún setur hann strax fyrir þar sem Katelyn kemur í hlaupinu með 2 varnarmenn í sér en þrumar honum inn í skrefinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aktobe
12. mín
MAAAARK!

Yekaterina Babshuk (stoðsending: Didem Dülber)

Þetta er bara copy-paste á færinu áðan, kemst ein í gegn á hægri kantinum, nema nú setur hún boltann í fjærhornið, stöngin inn framhjá Herdísi
9. mín
Hæææætttaaa
Yekaterina Babshuk er allt í einu komin ein í gegn! En hún fer hins vegar hörmulega með frábæra stöðu og setur boltann beint í fangið á Herdísi Höllu
8. mín
Hrafnhildur Ása gerir vel og kemur boltanum upp kantinn á Líf, þær hins vegar renna báðar og aukaspyrna dæmd á Líf
8. mín
Kristín Dís vinnur baráttuna við Rees,
5. mín
Agla María með fínustu fyrirgjöf, þar er Edith mætt í baráttuna við Tolibekova í markinu en sú síðarnefnda hefur betur
3. mín
Blika horn
Agla María og Katelyn taka hornið stutt, Agla reynir svo skot á fjærstöngina en Tolibekova grípur þetta
2. mín
Agla María reynir fyrirgjöf en þær eru fljótar að koma þessu frá, boltinn berst svo út horn!
2. mín
Heimakonur pressa hátt og gefa lítinn tíma, Rees pressar á Herdísi en hún er ísköld í markinu og leysir vel úr pressunni
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur hefja leikinn!
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin eru að gera sig klár og Evrópupartýið er rétt að byrja
Fyrir leik
Úrslit úr hinum undanúrslitarleiknum staðfest
Svissneska liðið Servette vann Dinamo-BSUPC 3-0 í fyrri undanúrslitaleiknum.

Það þýðir að þetta er orðið mjög einfalt: vinnur Breiðablik Aktobe í dag bíður Servette í úrslitaleiknum á föstudag.

Tapi Blikar mæta þær Dinamo-BSUPC í leiknum um þriðja sætið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Rétt tæpur klukkutími í leik og byrjunarliðin eru klár.

Helstu tíðindi eru þau að U19 landsliðsmarkmaðurinn Herdís Halla Guðbjartsdóttir kemur inn í markið og Edith Kristín Kristjánsdóttir kemur inn á kantinn.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, sem skoraði bæði mörkin gegn Þór/KA, er farin til Bandaríkjanna hvar hún stundar nám við Harvard og er því ekki með Blikum.

Fyrir leik
Skýrt markmið hjá Blikum
Breiðablik er í 2. sæti Bestu deildarinnar sem stendur og Aktober er í efsta sæti síns riðils í Kasakstan. Liðið hefur unnið alla 13 leiki sína og er með markatöluna 129-2.

Sigurvegarinn úr leik Breiðabliks og Aktobe mætir svo sigurvegaranum úr leik Dinamo-BSUPC frá Belarús og Servette frá Sviss í úrslitaleik um sæti í 3. umferðinni.


„Leikurinn leggst mjög vel í okkur. Fókusinn er alltaf mestur á okkur en við vitum að þær eru með leikmenn frá Bandaríkjunum sem og leikmenn sem eiga landsleiki fyrir t.d. Kasakstan. Þær spila lítið af jöfnum leikjum heima fyrir en vitum að þær mættu Nordsjælland á þessu stigi keppninnar í fyrra og áttu ágætis leik gegn þeim,"


Fyrir leik
Svona virkar fyrirkomulagið
Breiðablik hefur leik í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Blikar eru á svokallaðri meistaraleið (Champions Path), sem er ætluð meisturunum í hverju landi, og taka þátt í fjögurra liða mini-móti þar sem leikið er á einum og sama staðnum.

Leikurinn í dag er undanúrslitaleikur mótsins. Með sigri kemst Breiðablik í úrslitaleikinn og með öðrum sigri þar tryggja Blikar sér sæti í 3. umferð undankeppninnar, sem er síðasta hindrunin áður en komið er í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

Tap í dag þýðir þó ekki að Evrópuævintýrinu sé lokið. Þá fer Breiðablik í leik um 3. sætið og með sigri þar tryggir liðið sér sæti í 1. umferð UEFA Women's Europa Cup. Komist Blikar hins vegar í úrslitaleik mini-mótsins en tapi þar fara þær beint í 2. umferð Europa Cup.

Breiðablik þarf því að vinna báða leiki sína í mini-mótinu til að halda áfram í Meistaradeildinni, en aðrar leiðir geta haldið Evrópuævintýrinu áfram í Europa Cup.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spænskt og Norskt dómarateymi
Á flautunni í dag verður hins spænska Paola Cebollada López og henni til halds og trausts verða landa hennar Rocio Puente Pino og hin norska Helle Reiten.

Fjórði dómarinn er svo Karoline Marie Jensen
Fyrir leik
Meistaradeildin kallar!
Heil og sæl áhorfendur góðir! Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Breiðabliks og Aktobe í Kasakstan, í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 14:00!


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.