Fotbolti.net
03.08.26 - 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skýrt markmið í öðruvísi viku hjá Blikum

Kristín Dís hefur spilað 30 Evrópuleiki á sínum ferli, 28 með Breiðabliki og tvö með Bröndby.

Kristín Dís hefur spilað 30 Evrópuleiki á sínum ferli, 28 með Breiðabliki og tvö með Bröndby.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik mætir á morgun liði Aktobe í forkeppni Meistaradeildarinnar. Breiðablik er ríkjandi Íslandsmeistari og Aktober er meistari í Kasakstan.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma, hann verður i beinni útsendingu á SÝN Sport og textalýsingu hér á Fótbolti.net. Breiðablik og Aktober eru í fjögurra liða riðli ef svo má segja með Dinamo-BSUPC frá Belarús og Servette frá Sviss.

Sigurvegararnir á morgun fara í úrslitaleik um sæti í 3. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni, en tapliðið spilar úrslitaleik um að fara í Evrópubikarinn. Fyrir leikinn á morgun er Breiðablik talið sterkara liðið.
Breiðablik spilar í Kasakstan í næstu viku - Í beinni á Sýn
TENGT EFNI

Breiðablik spilar í Kasakstan í næstu viku - Í beinni á Sýn

Spila lítið af jöfnum leikjum heima fyrir
Kristín Dís Árnadóttir er lykilmaður í liði Breiðablik og hún ræddi við Fótbolta.net.

„Leikurinn leggst mjög vel í okkur. Fókusinn er alltaf mestur á okkur en við vitum að þær eru með leikmenn frá Bandaríkjunum sem og leikmenn sem eiga landsleiki fyrir t.d. Kasakstan. Þær spila lítið af jöfnum leikjum heima fyrir en vitum að þær mættu Nordsjælland á þessu stigi keppninnar í fyrra og áttu ágætis leik gegn þeim," segir varnarmaðurinn.

Kristín lýgur engu varðandi fáa jafna leiki hjá Aktobe. Liðið tapaði síðast stigum í deildinni heima fyrir í september í fyrra. Í deildinni er liðið með 39 stig af 39 mögulegum og markatöluna 129:2.

Fylgdist þú með þegar dregið var í Meistaradeildinni?

„Já, ég fylgist yfirleitt alltaf með drættinum og spennt fyrir að sjá riðilinn."

Ævintýri sem brýtur upp tímabilið
Hvað fór í gegnum hugann þegar þú vissir að Aktobe yrði andstæðingurinn og ferðalag til Kasakstan framundan?

„Það er alltaf gaman að koma til landa sem maður er ólíklega að fara ferðast til annars. Maður hefur ferðast til alls konar landa í gegnum tíðina tengt Evrópuleikjum og ég pæli lítið í því hvert er farið, en Kasakstan er vissulega ævintýri og brýtur aðeins upp tímabilið."

Ferðalag Breiðabliks hófst á föstudagskvöld og var liðið komið á leiðarenda síðdegis á sunnudag. Meira um það í spilaranum neðst.

Hvernig eru aðstæður og hvernig gekk ferðalagið?

„Ferðalagið gekk vel en var svakalega langt, svo það tók aðeins á. Annars er allt búið að ganga vel. Völlurinn lítur bara mjög vel út, það er spáð miklum hita þannig að það verða vatnspásur í leiknum."

Það er fimm klukkutíma munur á Íslandi og Aktobe.

„Tímamismunurinn er mikill, en maður er fljótur að venjast því."

Öðruvísi vika
Í gegnum tímabilið, er mikið horft á þessa fyrstu viku í ágúst?

„Eðlilega er hún í huganum hjá okkur, það er alltaf skemmtilegt að fara út og taka þátt í Evrópuleikjum. En við höfum haft það að markmiði í sumar að einblína á næsta leik og ekki vera hugsa of langt fram í tímann. Þetta er öðruvísi vika út frá því að við þekkjum liðin ekki mikið og þurfum að ferðast. Annars er þetta vika sem við ætlum að reyna nýta sem best og fá sem mest út úr."

Sátt með stöðuna á liðinu
Breiðablik er markatölunni á eftir FH á toppi Bestu deildarinnar þegar fimm leikir eru eftir fram að úrslitakeppni. Ertu sátt með þann stöðuna á liðinu?

„Ég er mjög sátt með staðinn sem við erum á. Það var viðbúið með nýtt þjálfarateymi og leikmenn í stærri hlutverkum en áður að hlutirnir kæmu til með að taka sinn tíma. Auðvitað væri maður til í meiri breidd í hópinn en þrátt fyrir allar þessar breytingar stöndum við okkur vel."

Markmiðið er skýrt
Hvert er markmiðið úr þessari tveggja leikja Evrópuviku?

„Við viljum auðvitað ná í góð úrslit og sýna hvað býr í okkar liði en við byrjum á leiknum gegn Aktobe, en markmiðin eru skýr," segir Kristín Dís.

'Vika sem við ætlum að reyna nýta sem best og fá sem mest út úr'

'Vika sem við ætlum að reyna nýta sem best og fá sem mest út úr'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs tók við Breiðabliki síðasta vetur eftir að Nik Chamberlain hafði stýrt liðinu.

Ian Jeffs tók við Breiðabliki síðasta vetur eftir að Nik Chamberlain hafði stýrt liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablk hefur tekið 30 stig úr 13 leikjum í Bestu deildinni í ár.

Breiðablk hefur tekið 30 stig úr 13 leikjum í Bestu deildinni í ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skýrt markmið í öðruvísi viku hjá Blikum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skýrt markmið í öðruvísi viku hjá Blikum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Kasakstan er vissulega ævintýri og brýtur aðeins upp tímabilið'

'Kasakstan er vissulega ævintýri og brýtur aðeins upp tímabilið'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.