04.08.26 - 12:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Breiðabliks í Kasakstan: Herdís Halla í markinu

Herdís í markinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edith kemur inn í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Herdís í markinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 14:00 hefst leikur Breiðabliks og Aktobe í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni. Spilað er í Aktobe í Kasakstan. Sigurliðið fer í úrslitaleik um sæti í 3. umferð keppninnar, en tapliðið spilar um að komast í Evrópubikarinn.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks eru með sextán manna leikmannahóp í Aktobe og Ian Jeffs, þjálfari liðsins, gerir tvær breytingar frá sigrinum á Þór/KA í síðasta deildarleik.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks eru með sextán manna leikmannahóp í Aktobe og Ian Jeffs, þjálfari liðsins, gerir tvær breytingar frá sigrinum á Þór/KA í síðasta deildarleik.

TENGT EFNI
Skýrt markmið í öðruvísi viku hjá Blikum
Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Herdís Halla Guðbjartsdóttir kemur inn í markið og Edith Kristín Kristjánsdóttir kemur inn á kantinn. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, sem skoraði bæði mörkin gegn Þór/KA, er farin til Bandaríkjanna hvar hún stundar nám við Harvard og er því ekki með Blikum.
Byrjunarlið Breiðablik
- 1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
- 3. Elísa Viðarsdóttir
- 4. Elín Helena Karlsdóttir
- 7. Agla María Albertsdóttir (f)
- 8. Katelyn Duong
- 14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
- 15. Edith Kristín Kristjánsdóttir
- 16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
- 17. Karitas Tómasdóttir
- 18. Kristín Dís Árnadóttir
- 19. Líf Joostdóttir van Bemmel
Byrjunarlið Aktobe
- 1. Zukhra Tolibekova (m)
- 4. Ekaterina Morozova
- 7. Alina Litvinenko
- 8. Aida Gaistenova
- 9. Morgan Rees
- 13. Angelique Keona Ikeda
- 14. Yekaterina Babshuk
- 16. Aizhan Boronbekova
- 17. Karina Zhumabaikyzy
- 21. Didem Dülber
- 23. Anastassiya Vlassova

Edith kemur inn í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
