SKÝRSLAN: Hetjudáðir hlaupagarpsins kláruðu ískalda Blika
Hvað réði úrslitum?
Stundum er gott að rýna í hvort liðið þurfti meira á stigunum að halda og í þessu tilfelli var það nokkuð augljóst að heimamenn í KA þráðu stigin þrjú meira. Blikarnir áttu ágætis spretti og stýrðu leiknum á löngum köflum, en KA menn fengu betri færi og virtust tilbúnir að fórna sér ansi drjúgt fyrir sigurinn.
Bestu leikmenn
1. Mikael Breki Þórðarson (KA)
Hljóp á við tvo, var yfirvegaður á boltanum og skoraði sigurmarkið. Afar ánægjulegur dagur á skrifstofunni hjá Mikael.
2. Jeppe Pedersen (KA)
Líkt og Mikael var Daninn afar duglegur og vel staðsettur í flestum tilvikum. Flottur í dag.
Atvikið
Mikael Breki sýndi skínandi gæði í marki sínu. Sneri listavel með boltann, áður en hann setti hann framhjá Antoni í markinu. Ólafur Ingi vildi meina að brot hefði átt sér stað í aðdragandanum, en ég þyrfti að sjá það aftur.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn stökkva upp í 11. sætið og eru stigi á eftir Þór og FH, sem að sitja í 10. og 9. sæti. Þeir fá heimaleiki gegn botnliði ÍBV og grönnunum í Þór sem að gæti reynst ansi mikilvægt þegar á hólminn er komið. Breiðablik enda hefðbundið deildarfyrirkomulag í 4. sæti, langt á eftir efstu þremur en jafnir Skagamönnum með 30 stig. Framundan er bikarúrslitaleikur við Aftureldingu.
Vondur dagur
Innkoma Diego Montiel þótti mér arfaslök. Það er kannski harkalegt að taka hann sérstaklega fyrir, en munurinn á vinnuframlagi hans og Ásgeirs Sigurgeirssonar, sem að kemur inná tæpum 10 mínútum á eftir Svíanum, var yfirgengilegt. Þar sem að Ásgeir fórnaði lífi og limum í hverju návíginu á fætur öðru, þá veigraði Montiel sér við hvert einasta návígi. Þetta var dapurlegt að sjá hjá leikmanni í liði sem að róa nú lífróður í deildinni og hver leikur er úrslitaleikur.
Dómarinn - 6
Á köflum sveiflukennd lína og athyglisverð spjaldagjöf en engir skandalar.




