Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Besta karla
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
3 - 1
KR
KR
Viktor Jónsson 24'1 - 0Viktor Jónsson 54'2 - 02 - 162' Ástbjörn Þórðarson Viktor Jónsson 83'3 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: KR-ingar hægeldaðir uppá Skaga!

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn mættu frá fyrstu sekúndu viku sterkari og mun meiri kraftur í Skagamönnum frá upphafi til enda og áttu
KR-ingar fá svör við því sem Ía var að gera og voru heppnir að fara bara með 1-0 forystu inn í hálfleikinn.
Seinni hálfleikurinn var svipaður kom einhver 10 mínútna kafli sem KR voru að ógna aðeins, en annars voru ÍA miklu betri aðilinn, hættulegri færi, betri stöður og bara allt einhvernveginn.

Bestu leikmenn

1. Viktor Jónsson

Hver annar? Viktor er leikmaður umferðarinnar, og var gjörsamlega frábær í dag skorar þrennu, og var alltaf að atast í Finni Tómasi og gerði virkilega vel í dag

2. Haukur Andri

Fannst Haukur líka gjörsamlega frábær stýrði miðjunni vel og spilaði mjög vel í dag. Haukur og Viktor voru í banni í síðasta leik og mættu tvíefldir í þennan leik í dag

Atvikið

Fannst þriðja mark ÍA sem kláraði leikinn og sá maður eitthvað deyja inní KR-ingum þá og sáu titilinn hverfa!

Hvað þýða úrslitin?

ÍA eru tryggðir í top 6 og geta verið þokkalega sáttir úr því sem komið var og byggt soldið ofaná þessu fyrir næstu umferð.
KR hins vega eru væntanlega brjálaðir líka vegna þess að Víkingur gerði jafntefli í dag, og hefðu þeir geta minnkað forskotið, sem hefði orðið gaman fyrir okkur hlutlausu.

Vondur dagur

Set það á Eið Gauta gæti sett þetta á alla sóknarmenn KR en Eiður var skelfilegur og Erik Tobias og Baldvin pökkuðu honum saman í dag.

Dómarinn - 8

Ekkert útá Jóhann inga að setja nánast.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.