SKÝRSLAN: Hausinn kominn á Laugardalsvöll
Hvað réði úrslitum?
Valsliðið var bara talsvert betra í dag, eiginlega bara frá upphafi til enda. Þær hefðu hæglega getað unnið leikinn stærra. Það hafði klárlega mikil áhrif á leikinn að Grindavík/Njarðvík var búið að tryggja sig inn í efri hluta deildarinnar fyrir leikinn og það er bikarúrslitaleikur framundan eftir nokkra daga. Grindavík/Njarðvík hvíldi lykilmenn eftir því sem leið á leikinn og hausinn var farinn hálfa leiðina á Laugardalsvöll. Það verður þó ekki tekið af Val að þær spiluðu mjög vel í dag, líklega þeirra besti leikur í sumar.
Bestu leikmenn
1. Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur)
Stóð plikt sína gríðarlega vel í vörn Vals, hún og Lillý voru mjög sterkar í hjarta varnarinnar. Reynsla hennar verður mikilvæg í baráttunni sem er framundan.
2. Emma Hawkins (Valur)
Skoraði eitt gott mark og átti síðan mjög stóran þátt í sjálfsmarkinu sem Natasha skoraði. Stöðugt ógnandi fram á við fyrir Valsliðið.
Atvikið
Aukaspyrnumarkið sem Lillý skorar af einhverjum 25-30 metrum breytir leiknum. Valur fær aukna trú við það mark og náðu svo að klára leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Valur fer upp af botninum, upp úr fallsæti og liðið tekur með sér sjálfstraust inn í þá þrjá gríðarlega mikilvægu leiki sem eru framundan í fallbaráttunni. Grindavík/Njarðvík var búið að tryggja sig inn í efri hlutann fyrir leikinn og þessi úrslit hafa ekki áhrif á stöðu liðsins í deildinni.
Vondur dagur
Varnarleikur Grindavík/Njarðvík var á köflum vandræðalegur. Sigríður Emma F. Jónsdóttir hefur verið virkilega góð í sumar, en þetta var ekki alveg hennar dagur. Þá var Stephanie Bukovec mjög ósannfærandi í markinu og hefði getað gert betur í allavega tveimur af þeim mörkum sem Valur skorar.
Dómarinn - 5
Margrét Brynja, leikmaður Vals, átti að fá rautt spjald í seinni hálfleik og hefði það mögulega áhrif á leikinn, og hvað þá framhaldið. Annars þokkalegt, ekki mjög hár erfiðleikastuðull.




