Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta karla
VÍS völlurinn
Á Þórsvellinum er rjómablíða, smá andvari að norðan en annars hlýtt og gott. Það rigndi í morgun og nótt þannig að völlurinn er blautur, bæði eftir rigninguna og vökvun fyrir leik.
Þór
Þór
1 - 0
FH
FH
Þorri Ingólfsson 59'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Bibbi

SKÝRSLAN: Gríðarlega mikilvæg þrjú stig í Þorpið

Hvað réði úrslitum?

Baráttugleði heimamanna sem börðust um hvern bolta og gáfu aldrei þumlung eftir.

Bestu leikmenn

1. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson

Af mörgum góðum þá verður Gyrðir að fá þetta. Hann hljóp uppi framherja FH þegar þeir reyndu stungusendingar og var firna góður í dag. Fór fyrir sínum mönnum með baráttu og góðum sendingum.

2. Einar og Þorri

Þeir fá annað sætið saman, Þorri fyrir markið og góða baráttu og Einar fyrir stoðsendinguna og skemmtilega takta inni í teig FH þegar þrír FH ingar reyndu í tvígang að taka af honum boltann.

Atvikið

Ætli það verði ekki hárnámkvæm, bæði í tíma og rúmi, stoðsending Einars á Þorra.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin senda Þór upp að hlið FH en eru neðar á markatölu. FH skráði sig í fallbaráttu með tapinu.

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir Hafnfirðinga, nema Haukafólk. FH dróst inn í fjögurra liða fallbaráttu. Þeir voru yfirspilaðir í dag og áttu aldrei "breik". Þeir sköpuðu nánast ekkert og voru seinir í alla bolta sem endaði oftar en ekki með broti.

Dómarinn - 4

Leyfði FH ingum að komast upp með ógrynni brota, spjaldaði þá ekki nema brýna nauðsyn var á. Sleppti víti á FH og var einhvern veginn aldrei í takt við leikinn. FH gekk á lagið og braut ítrekað á Þórsurum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.