SKÝRSLAN: Ótrúlegt hvað eitt mark breytir miklu
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan skapaði meiri færi fannst manni og voru meira með boltann en ÍBV voru frábærir varnarlega og refsuðu með skyndisóknum.
Bestu leikmenn
1. Aron Lucas Vokes
Fyrsti byrjunarliðsleikur með mark og stoðsendingu, fyrsta mark í efstu deild líka! Frábærlega spilað hjá honum.
2. Andri Rúnar Bjarnason
Kom frábær inná og skoraði þetta mikilvæga jöfnunarmark sem hélt lífi í leiknum.
Atvikið
Verður að vera jöfnunarmarkið! Það varð allt vitlaust í Miðgarði eftir þetta og hleypti algjöru lífi inn í leikinn!
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan var svo nálægt því að komast upp í efri helminginn. Þá vantaði bara þetta eina mark og því miður fyrir þá var þetta ekki nóg. Jafnir að stigum við Keflavík en vantaði bara upp á markatöluna. En þetta þýðir þá líka að þessi lið mætast einu sinni enn í neðri helmingnum.
Stjarnan situr í 7. sæti eftir þetta með 28 stig á meðan ÍBV situr í 12. sæti með 18 stig.
Stjarnan situr í 7. sæti eftir þetta með 28 stig á meðan ÍBV situr í 12. sæti með 18 stig.
Vondur dagur
Kannski bara á bæði liðin. Ekki misskilja, liðin spiluðu frábærlega en þau nýttu stundum ekki færi sem þau hefðu átt að geta nýtt betur. Væri forvitnilegt að vita xG töluna!
Dómarinn - 8
Gunnar Oddur bara flottur í dag. Ekkert sem ég get sett út á í raun hjá honum.




