Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Víkingsvöllur
Bongó í Víkinni
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
Fram
Fram
Ármann Ingi Finnbogason 30'1 - 01 - 131' Haraldur Einar Ásgrímsson1 - 253' Kyle Douglas Mc LaganDaníel Hafsteinsson 55'2 - 271' Ægir Jarl Jónasson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

SKÝRSLAN: Svöruðu um hæl

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru langt frá sínu besta í fyrri hálfleik. Þeir komust þó yfir en Framarar svöruðu aðeins mínútu síðar. Gestirnir ógnuðu sífellt og hefðu hæglega getað farið með forystu inn í leikhlé. Kyle McLagan kom Frömurum yfir í síðari hálfleik en þá voru það Víkingar sem svöruðu um hæl með snyrtilegu marki Daníels Hafsteinssonar. Framarar urðu tíu eftir að Ægir Jarl fékk að líta rauða spjaldið, en Víkingar nýttu liðsmuninn illa og sköpuðu sér lítið af færum. Þegar á botninn er hvolft var jafntefli mjög svo sanngjörn niðurstaða.

Bestu leikmenn

1. Kyle McLagan (Fram)

Varðist vel og skoraði frábært skallamark. Stóð undir gælunafninu Air Force 1.

2. Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)

Skoraði glæsimark og var mikið í boltanum á miðju Víkings.

Atvikið

Rauða spjaldið hjá Ægi breytti sviðsmynd leiksins og fær því þessa nafnbót.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar þokast nær Íslandsmeistaratitlinum og eru áfram með átta stiga forystu á toppi deildarinnar. Framarar eru í 2. sæti með eins stigs forskot á KR.

Vondur dagur

Ægir Jarl fer í heimskulega tæklingu á gulu spjaldi og var rekinn af velli. Ellefu gegn ellefu áttu Framarar góðan séns á því að taka stigin þrjú en Ægir gerði liðsfélögum sínum erfitt fyrir.

Dómarinn - 6

ÞÞÞ og félagar byrjuðu daginn nokkuð illa, skrýtnir dómar á köflum. Þá hefði Valdimar Þór átt að fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik fannst mér kvartettinn þó stíga upp og negla allar stóru ákvarðanirnar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.