Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Besta karla
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
0 - 0
KR
KR
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Fyrir leik
KR-ingar!
KR mæta uppá Skaga, og keyra væntanlega bara á þrjá punkta til að halda spennu ennþá í mótinu. KR hafa ekki tapað í síðustu átta leikjum en mikið af jafnteflum eru inní þessu.

KR eru 8 stigum á eftir toppliði Víkings og geta minnkað það niður í fimm stig ef Fram tekst að vinna Víkinga á morgun, og haldið spennu í úrslitakeppninni.

KR tóku á móti Víkingum í síðustu umferð í stærsta leik tímabilsins hingað til. Leiknum laum með 1-1 jafntefli í mjög skemmtilegum og spennuþrungnum leik þar sem allt var undir og hvað þá fyrir KR-inga.
Óskar Hrafn óskaði Víkingum til hamingju með titilinn eftir leik en spurning hvort þetta sé góður "Mindgame" hjá Óskari sem kann mörg trixinn í bókinni!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Skagamenn!
ÍA eru taplausir í síðustu sex leikjum og koma á ágætis siglingu inní leikinn gegn KR-ingum.

Skagamenn eru með 27 stig og eru með tryggja sér sæti í efra umspilinu með sigri og fara þá upp fyrir Keflavík með sigri í dag sem eru með 28 stig, og geta þeir þá orðið þokkalega sáttir við tímabilið úr því sem komið var.

ÍA gerði 2-2 jafntefli á Hlíðarenda í síðustu umferð og voru ekki sannfærandi þeim leik, Lárus Orri talaði um að hann hlaupi með þennan punkt uppá Skaga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Jæja Besta deildin er klár!
Góðan daginn, og verið velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu.
ÍA tekur á móti KR á Elkem vellinum á Akranesi, í lokaumferð í þessu hefðbundna móti Bestu deildarinnar áður en deildinni er skipt upp.

Það er hellingur undir í dag fyrir bæði lið, ÍA sætta sig við lítið annað en sigur til að tryggja sér í efra umspilið sem myndi gera helling fyrir Skagamenn!

Skemmtikraftarnir í KR sætta sig einnig við lítið annað en sigur til að geta haldið smávegis pressu ennþá á Víkingum um Íslandsmeistaratitilinn!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.