Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 0
Fram
Fram
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Fyrir leik
Þurfa toppleik gegn toppliðinu
„Leikurinn leggst bara vel í mig, það er spennandi verkefni að fara í leik á móti toppliðinu. Við þurfum að eiga toppleik til að ná í úrslit," segir Ægir Jarl Jónasson í samtali við Fótbolta.net aðspurður um leikinn.

Hann var spurður hvort hann horfi á leikinn sem tækifæri til að kveikja almennilega í og búa til toppbaráttu?

„Auðvitað væri það mjög skemmtilegt fyrir deildina að fá spennu í þetta á lokasprettinum en Víkingarnir eru búnir að vera frábærir í sumar," sagði Ægir jafnframt.

Eina liðið sem Fram hefur eiginlega ekki átt séns í er Víkingur í fyrri leiknum, Ægir segir liðið hafa þá átt slæman dag.

„Við áttum bara ekki góðan dag þá og margt sem við gátum gert betur en að sama skapi voru þeir líka mjög góðir og beittir í þeim leik."

Fyrir leik
Völtuðu yfir Framara
Víkingar fóru létt með Framara í 11. umferð og enduðu leikar 5-0 á salatinu í Úlfarsárdal.

Fyrir leik
Lokaumferð fyrir tvískiptingu
Fimm leikir fara fram klukkan 14:00 í dag vegna þess að umferðin er sú síðasta fyrir tvískiptingu. Leikið var í Keflavík í gærkvöld vegna Ljósanætur.

Víkingur er með átta stiga forskot á 2. og 3. sætið þegar sex umferðir eru eftir af mótinu. Með sigri Fram kæmi liðið sér í möguleikann á 2. sætinu. Það færi þá eftir því hvort KR misstígi sig á Akranesi gegn ÍA á sama tíma.

Liðin sem enda í 1. og 2. sæti mætast innbyrðis í 27. umferð, lokaumferð mótsins, á heimavelli Víkings.

Fyrir leik
Víkin heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Víkingsvelli þar sem Íslandsmeistararnir taka á móti Frömurum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.