Í dag munu Þórsarar taka á móti FH-ingum í gríðarlega mikilvægum leik fyrir bæði lið. Eins og staðan er núna er Þór í 10 sæti, þremur stigum á eftir FH í því níunda. Með sigri Þórs fara þeir upp að hlið fimleikafélagsins og rífa sig, með hagstæðum úrslitum annarra leikja, aðeins frá botninum. Ef Hafnfirðingar aftur á móti gera sig breiða og sækja sigur þá eru þeir heldur betur komnir í skjól, í bili hið minnsta, því þeir eru þá komnir í 24 stig, 4 - 7 stigum frá fallsæti. Ef ÍBV og KA tapa þá eru þeir sjö stigum frá fallsæti en annars minna ef annað hvort þeirra nælir sér í stig eða bæði. Það má því segja að jafntefli geri lítið sem ekkert fyrir liðin og því má búast við sóknarleik í dag.
Eins og staðan er núna er Þór í 10 sæti, þremur stigum á eftir FH í því níunda. Með sigri Þórs fara þeir upp að hlið fimleikafélagsins og rífa sig, með hagstæðum úrslitum annarra leikja, aðeins frá botninum. Ef Hafnfirðingar aftur á móti gera sig breiða og sækja sigur þá eru þeir heldur betur komnir í skjól, í bili hið minnsta, því þeir eru þá komnir í 24 stig, 4 - 7 stigum frá fallsæti. Ef ÍBV og KA tapa þá eru þeir sjö stigum frá fallsæti en annars minna ef annað hvort þeirra nælir sér í stig eða bæði. Það má því segja að jafntefli geri lítið sem ekkert fyrir liðin og því má búast við sóknarleik í dag.