Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
06.09.26 13:08
Byrjunarlið Stjörnunnar og ÍBV: Árni Vill byrjar
Fyrir leik
Alex Þór Hauksson í áhugaverðu viðtali
Fyrir leik
Óhappabrot
Örvar Logi varð fyrir því óláni að handarbrotna á Kópavogsvelli, en hann fór útaf fyrir seinni hálfleik. Hann verður því ekki með í dag
Fyrir leik
Milan Tomic framlengir
Vestmannaeyingar fengu frábærar fréttir í gær þegar tilkynning barst frá ÍBV að Milan Tomic hafi framlengt við liðið!
Fyrir leik
Okkar allra besti maður, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, hendi í skemmtilega grein fyrir áskrifendur um samningslausa leikmenn og nefndi þar að meðal Emil Atlason og Omar Sowe, en þeir leika með liðunum sem keppa í Miðgarði í dag!
Fyrir leik
Spá leiksins!
Bjartur Bjarmi Barkarson, leikmaður Aftureldingar, var fenginn til að spá í spilin fyrir lokaumferðina! Þetta hafði hann að segja um þennan leik!
Stjarnan 3 - 1 ÍBV (14:00 á sunnudag)
BK ball skilar þremur stigum, Birnir búinn að skora í tveimur leikjum í röð og hendir í þrennu í þessum leik.
Stjarnan 3 - 1 ÍBV (14:00 á sunnudag)
BK ball skilar þremur stigum, Birnir búinn að skora í tveimur leikjum í röð og hendir í þrennu í þessum leik.
Fyrir leik
ÍBV
ÍBV situr í 11. sæti en geta komist upp í 10. sæti ef Þór tapar sínum leik gegn FH og verða því í neðri hlutanum.
Seinustu leikir þeirra hafa ekki verið upp á marga fiska, en ÍBV hefur ekki sigrað í 2 mánuði, eða síðan þeir tóku Val á heimavelli 4. júlí síðastliðinn.
Seinustu leikir þeirra hafa ekki verið upp á marga fiska, en ÍBV hefur ekki sigrað í 2 mánuði, eða síðan þeir tóku Val á heimavelli 4. júlí síðastliðinn.

Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan situr í 8. sæti en geta skotist upp í 6. sæti og þar með í efri hlutann með jafntefli eða sigri, en það fer eftir úrslitum í leik ÍA og KR sem er einnig kl 14:00.
Stjarnan hefur sigrað fjóra af seinustu 5 og náðu sterkum sigri í seinustu umferð á útivelli gegn Breiðablik 0-2!
Stjarnan hefur sigrað fjóra af seinustu 5 og náðu sterkum sigri í seinustu umferð á útivelli gegn Breiðablik 0-2!

Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er Gunnar Oddur Hafliðason en á flöggunum verða Esyteinn Hrafnkelsson og Þráinn Jón Elmarsson. Fjórði dómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson.

Fyrir leik
Miðgarðurinn kallar
Heil og sæl og verið velkomin í Miðgarð þar sem Stjarnan tekur á móti ÍBV í lokaumferð Bestu deildar karla fyrir skiptingu! 











