Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25205 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR05.10.2022, 14:10

Ísak gerði fimm ára samning við Rosenborg (Staðfest)

Ísak Snær Þorvaldsson hefur skrifað undir fimm ára samning við Rosenborg og tekur samningurinn gildi eftir þetta tímabil með Breiðabliki.

„Ég spila þar sem þjálfarinn vill að ég spili. Ég hef alltaf verið miðjumaður en hef notið þess að spila í sókninni, skora mörk og leggja upp. Ég er þó ekkert mótfallinn því að vera færður til, svo lengi sem ég er að spila," segir Ísak við heimasíðu Rosenborg.

FRÉTTIR05.10.2022, 13:11

Óliver og Sigurvin frá Gróttu til Fjölnis (Staðfest)

Óliver Dagur Thorlacius og Sigurvin Reynisson hafa báðir yfirgefið Gróttu og farið í Fjölni í Lengjudeildinni. Þeir skrifuðu undir tveggja ára samning við Grafavogsliðið. Grótta hafnaði í þriðja sæti Lengjudeildarinnar í sumar en Fjölnir í því fjórða. Óliver skoraði þrjú mörk í átján deildarleikjum í sumar en Sigurvin spilaði ekki í sumar.

FRÉTTIR05.10.2022, 11:16

Brynjar Kristmunds tekur við Víkingi Ólafsvík (Staðfest)

Víkingur Ólafsvík hefur samið við Brynjar Kristmundsson um að gerast aðalþjálfari liðsins en samningurinn er til tveggja ára. Brynjar er fyrrum leikmaður liðsins og hefur verið aðstoðarþjálfari síðustu þrjú ár. Í yfirlýsingu Ólafsvíkurfélagsins segir að Brynjar hafi verið fyrsti kostur til að taka við af Guðjóni Þórðarsyni. Liðið hafnaði í sjöunda sæti 2. deildar í sumar.

FRÉTTIR04.10.2022, 16:00

Sigurður Egill framlengir við Val út 2025 (Staðfest)

Sigurður Egill Lárusson hefur framlengt samning sinn við Val til næstu þriggja ára eða út tímabilið 2025. Gamli samningur hans átti að renna út eftir yfirstandandi tímabil. Sigurður Egill, sem er þrítugur, hefur verið hjá Val síðan 2013. Sem leikmaður félagsins hefur hann þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þá hefur hann spilað tólf Evrópuleiki með liðinu.

FRÉTTIR04.10.2022, 11:47

Jón Stefán og Perry látnir fara frá Þór/KA (Staðfest) - Stjórnin vildi ekki gera upp á milli þeirra

Þeir Jón Stefán Jónsson og Perry McLachlan verða ekki áfram þjálfarar Þór/KA. Þeir tóku saman við þjálfun liðsins síðasta haust þegar Andri Hjörvar Albertsson var látinn fara, og skrifuðu undir þriggja ára samning. Jón Stefán segir í færslu á Facebook að ástæða uppsagnar þeirra sé sú að þeir Perry vildu báðir halda áfram þjálfun liðsins en að það þyrfti að velja á milli þeirra. Þeir hafi báðir fundað með stjórn sem hafi ekki viljað gera upp á milli þeirra og því varð niðurstaðan að láta þá báða fara.

FRÉTTIR30.09.2022, 09:00

Alfreð Elías ekki áfram með Grindavík (Staðfest)

Alfreð Elías Jóhannsson verður ekki áfram þjálfari Grindvíkinga í Lengjudeildinni. Hann tilkynnir þetta sjálfur á Facebook síðu sinni. „Nú er það orðið ljóst að ég mun ekki halda áfram störfum hjá knattspyrnudeild Grindavíkur á komandi tímabili. Mig langar að þakka öllu því góða fólki sem ég hef unnið með síðastliðið ár fyrir ánægjulegt samstarf. Það hefur verið lærdómsríkt að þjálfa sinn heimaklúbb og ég hlakka til að fylgjast með Grindavíkurliðinu á komandi árum," skrifaði Alfreð.

FRÉTTIR30.09.2022, 08:07

Kuol til Newcastle (Staðfest) - Kemur eftir áramót

Newcastle hefur tryggt sér einn efnilegasta leikmann Ástralíu, hinn 18 ára gamla Garang Kuol sem kemur frá Central Coast Mariners. Kuol er framherji og hafði þetta að segja við heimasíðu Newcastle:

FRÉTTIR29.09.2022, 06:00

Jóhann Birnir þjálfar ÍR með Árna (Staðfest)

Jóhann Birnir Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍR sem leikur í 2. deild. Hann mun vera þjálfari liðsins ásamt Árna Frey sem var ráðinn í sumar.

Þá mun hann stýra uppbyggingu afreksþjálfunar fyrir yngri iðkendur félagsins. Jóhann var síðast á mála hjá FH þar sem hann starfaði sem afreksþjálfari.

FRÉTTIR27.09.2022, 09:47

Arnar Halls tekur við Njarðvík (Staðfest) - Hólmar Örn kveður

Arnar Hallsson hefur verið ráðinn þjálfari Njarðvíkur í Lengjudeildinni. Arnar hefur á sínum þjálfaraferli m.a. þjálfað meistaraflokk karla hjá Aftureldingu og ÍR. Hann hætti hjá Breiðholtsliðinu á miðju tímabili í sumar þegar hann sagði félagið ekki hafa staðið við gefin loforð.

FRÉTTIR26.09.2022, 23:50

20 mest lesnu fréttir vikunnar - SMS, viðskilnaður og umsóknir

Þjálfatatengdar fréttir vöktu mikla athygli í liðinni viku. Arnar Grétarsson stýrir KA ekki áfram, Davíð Smári sendi Davíð Þór SMS, umsóknir um stöðu yfirmanns fótboltamála og ýmislegt fleira rataði inn á topplistann. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR26.09.2022, 13:25

Slaven Bilic tekur við Watford (Staðfest)

Króatinn Slaven Bilic hefur verið ráðinn sem nýr stjóri Watford á Englandi. Búið er að staðfesta þessi tíðindi. Bilic er níundi stjóri liðsins á þremur árum. Félagið er mikið fyrir það að reka og ráða stjóra.

FRÉTTIR26.09.2022, 12:30

Gaui Þórðar ekki áfram með Víking Ólafsvík (Staðfest)

Guðjón Þórðarson mun ekki stýra Víkingi Ólafsvík áfram eftir að hafa stýrt liðinu í sumar. Hann stýrði einnig Ólsurum hálft tímabilið 2020 og hálft tímabilið 2021. Ólsarar segja að ákvörðun hafi verið tekin um að framlengja samning Guðjóns ekki, en liðið endaði í sjöunda sæti 2. deildar í sumar.

FRÉTTIR26.09.2022, 12:14

Edwards látinn fara eftir ellefu leiki hjá Watford (Staðfest)

Watford hefur rekið þjálfann Rob Edwards úr starfi en þetta tilkynnti félagið fyrir stuttu. Watford er mikið fyrir það að reka og ráða stjóra, en félagið er núna að fara að ráða sinn 17. stjóra síðan í apríl 2017.

FRÉTTIR25.09.2022, 21:59

Al Wahda kaupir Allan frá Everton (Staðfest)

Brasilíski miðjumaðurinn Allan skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Al Wahda í Sameinuðu arabísku furstaríkjunum en félagið kaupir hann frá Everton.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.